Fjölmenni í veglegri skötuveislu
Fjölmenni var í Íþróttahúsinu á Stokkseyri í dag í árlegri skötuveislu Ungmennafélags Stokkseyrar. Félagið er brautryðjandi á Suðurlandi í slíku og hefur verið með veislur á Þorláksmessu frá árinu 1999 sem byggir á vestfirskri skötumenningu í bland við sunnlenskar hefðir. Víða á Suðurlandi eru nú skötuveislur á Þorláksmessu og er þetta glæsileg opnun jólahaldsins. (meira…)
Jólaverslunin góð þetta árið
Kaupmenn á landinu eru nokkuð sáttir við jólaverslunina, þó vissulega sé einhver samdráttur. Minna er um að fólk noti kreditkort nú en á sama tíma í fyrra og greiða nú margir frekar með reiðufé. Verslanir á Selfossi auglýstu mikið sameiginlega nú í desember og telja margir að það hafi skilað sér vel í verslun í […]
Herjólfur fer úr �?orlákshöfn klukkan 11.00 á morgun
Á baksíðu fréttablaðsins Vaktarinnar er auglýstur brottfarartími farþegaskipsins Herjólfs á aðfangadag og gamlársdag. Tíminn sem þar er auglýstur er hins vegar rangur, réttur brottfarartími úr Þorlákshöfn er klukkan 11.00 báða dagana. Engar ferðir eru farnar á jóladag og nýársdag. (meira…)
Lúðrasveit, Rán, Líkn, Bókasafn og Tryggvi fengu styrk
Árleg úthlutun úr Styrktar- og menningarsjóði Sparisjóðs Vestmannaeyja, sem stofnaður var til minningar um Þorstein Þ. Víglundsson fyrrverandi sparisjóðsstjóra fór fram í fundarsal Sparisjóðsins á Þorláksmessu, þann 23. desember 2008. Þetta er í tuttugasta og fyrsta skiptið sem úthlutað er úr sjóðnum, en fyrsta úthlutunin var á Þorláksmessu árið 1988. Að þessu sinni hlutu viðurkenningar […]
Drangavík VE verður í Eyjum að morgni 2. í jólum
Drangavík VE er á heimleið, eftir miklar breytingar sem gerðar voru á skipinu í Póllandi. Þegar haft var samband Magnús Ríkharðsson, skipstjóra, rétt eftir hádegið á Þorláksmessu, var Drangavíkin stödd við Shetlandseyjar í þokkalegu veðri. Ef veðrið helst þokkalegt það sem eftir er leiðar, sagði Magnús að þeir yrðu í Eyjum að morgni 2. í […]
Skötuveisla á Kirkjugerði
Það er víða siður af hafa skötu í matinn á Þorláksmessu. Til margra ára hafa Akógesar boðið til skötuveisla í hádeginu á Þorláksmessu, og ávallt vel mætt. Og starfsfólkið á Leikskólanum Kirkjugerði bauð börnunum líka skötu- og saltfiskveislu ala Sóla ásamt kartöflum, rófum og rúgbauði, og kunnu þau að sögn, ágætlega við matinn, en lyktin […]
Verðbólgan mælist nú 18,1%
Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í desember hækkaði um 1,52% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkaði um 1,71% frá nóvember. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 18,1%. Verðbólgan hefur ekki verið jafn mikil síðan í maí 1990 er hún mældist einnig 18,1%. (meira…)
Innbrot í bát sem var við bryggju í �?orlákshöfn
Þrír menn voru handteknir í Þorlákshöfn eftir hádegi í gær, sunnudag, vegna gruns um innbrot í bát sem var við bryggju í Þorlákshöfn. Útgerðarmaður bátsins hafði átt leið niður að höfn þegar hann sá til manns um borð í bátnum. Hann fór að huga að hverju það sætti. Eitthvað fór um þann sem var um […]
Sunnlendingum fjölgar umfram landsmeðaltal
Búið er að taka saman íbúaþróun á síðasta ári á suðurlandi en þar kemur m.a. fram að sunnlendingum fjölgaði um 688 eða um 2,69% sem er tæpu hálfu prósentustigi meira en yfir landið allt. Hlutfallsleg fjölgun var langmest í Grímsnes- og Grafningshreppi eða 17,6% en íbúum fjölgaði mest í Árborg eða um 363 íbúa. Þá […]
Búið að draga í happadrætti Gleðibankans

Búið er að draga í happadræddi Gleðibankans en dregið var úr þeim nöfnum sem höfðu lagt inn gleðibros í bankann. Í tilkynningu frá bankaráði Gleðibankans kemur fram að gaman væri ef þeir sem fengu vinninga myndu vitja þeirra á Þorláksmessu klukkan 17 en boðið verður upp á heitt kakó milli 16 og 18 í höfuðstöðvum […]
Seinni ferðin fellur niður
Aftakaveður er nú í Eyjum. Kl. 12 á hádegi var 30 metra austanvindur á Stórhöfða. Spáin fyrir daginn er þeim dúr og því hefur verið ákveðið að fella niður seinni ferð Herjólfs í dag. (meira…)
Aflaverðmæti Guðmundar 2 milljarðar á árinu 2008

Árið sem er að líða hefur verið viðburðarríkt hjá áhöfn Guðmundar. Þeir hafa aflað fyrir samtals 2 milljarða íslenskra króna, eða nánar tiltekið 2.000.213.313 kr (fob). Aldrei áður hefur skip hjá Ísfélagi Vestmannaeyja hf. aflað fyrir slík verðmæti á einu ári. Samtals hafa verið fryst 17.764 tonn af síld, loðnu, makríl og kolmunna og veiðin […]
Varað við stormi í dag og í kvöld
Veðurstofa Íslands hefur gefið út stormviðvörun um sunnan- og vestanvert landið í kvöld. Spáð er vaxandi suðaustanátt, 13 til 20 metrum á sekúndu eftir hádegi, hita á bilinu 3 til 7 gráður og víða rigningu. Þá eru litlar líkur á hvítum jólum í Vestmannaeyjum þetta árið. (meira…)
�?litið dökkt fyrir loðnuvertíðina

Illa horfir með loðnuvertíðina sem á að hefjast upp úr áramótum. Í nýafstöðnum rannsóknaleiðangri Hafrannsóknarstofnunar fannst svo lítið af loðnu að stofnunin telur ekki ástæðu til að gefa út neinn upphafskvóta fyrir vertíðina. (meira…)
Sárafá skip á miðunum

Sárafá fiskiskip eru á sjó og eru flest, sem þar eru, á landleið. Ekki mátti veiða síld eftir nítjánda desember og svo er jólafrí annarra sjómanna að ganga í garð. Auk þess er stormspá fyrir flest mið umhverfis landið. (meira…)
Skötuveisla á �?orláksmessu
Hin árlega skötuveisla Ungmennafélags Stokkseyrar verðurhaldin í íþróttahúsinu á Stokkseyri á morgun Þorláksmessu milli kl. 11:30 og 13:30. Á boðstólum verður ekta vestfirsk skata, vel kæst, og sunnlennsk minna kæst einnig kartöflur, rófur, saltfiskur og að sjálfsögðu vestfirskur hnoðmör. Öl og gos verður einnig selt á staðnum. Verð: (meira…)
Vextirnir eru að sliga bændur á Íslandi
Kostnaður við mjólkurframleiðsluna var langmestur á Íslandi árið 2007 ef miðað er við flestöll lönd í heiminum, samkvæmt Dairy Report 2008.Í yfirliti frá norskri stofnun sem stundar rannsóknir í landbúnaðarhagfræði kemur fram að Íslendingar hafi mun dýrari framleiðslu miðað við meðalstærð á búi en aðrar þjóðir. Íslendingar hafi um 40 kýr að meðaltali og framleiðslan […]
Flutningabíll fauk útaf á Reynisfjalli.
Í dag sunnudag 21. desember fauk þessi vörubíll útaf inn í Reynisfjalli en þar er mikil krapi á vegi og mjög misvinda. Í einni vindkviðunni gerðis þetta og náði bílstjórinn að aka bílnum útaf svo hann valt ekki. Á fimmta tímanum í nótt (meira…)
Vetrarsólhvörf eru í dag
Brátt á himni hækkar sól, segir í þekktu jólalagi. Það eru orð að sönnu því í dag eru vetrarsólhvörf eða stysti dagur ársins. Þess má geta að dagurinn er ekki jafnstuttur í báða enda því sólin kemur nú fyrr upp á morgnana. Sú þjóðtrú tengist deginum að veður eigi nú að breytast. Samkvæmt veðurspánni ætti […]
�?mögulegt að sjávarútvegurinn lendi í eigu erlendra lánadrottna

Það er engin hætta á því að íslenskar aflaheimildir lendi í eigum erlendra lánadrottna þrátt fyrir að íslensk sjávarútvegsfyrirtæki séu afar skuldsett og geti hugsanlega farið í gjaldþrot. Þetta sagði Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna, í þættinum Sprengjusandi á Bylgjunni í dag. (meira…)