Sættust á skiptan hlut

Meistaraflokkslið Vestmannaeyja í knattspyrnu, ÍBV og KFS mættust í Íslandsmótinu í Futsal á laugardag og eðli málsins samkvæmt, fóru báðir leikirnir fram í Eyjum. 3. deildarliðið kom á óvart í fyrri leiknum og lagði úrvalsdeildarliðið með fimm mörkum gegn fjórum í fjörugum leik. ÍBV hafði svo betur í síðari leiknum 3:1. (meira…)
Gáfu Sambýlinu 100 þúsund
Meðlimir mótorhjólaklúbbsins Drullusokkar í Vestmannaeyjum eru með hjartað á réttum stað undir leðurjökkunum en í gær komu þeir færandi hendi á Sambýlið, þjónustumiðstöð fyrir fatlaða. Kapparnir mættu að sjálfsögðu á mótorfákum sínum og í fullum skrúða og afhentu Huldu Líneyju Magnúsdóttur, forstöðumanni Sambýlisins eitt hundrað þúsund krónur að gjöf. (meira…)
Trilla strandaði í innsiglingunni í morgun
Línubáturinn Hlöddi VE 98 strandaði í morgun í innsiglingunni í Vestmannaeyjahöfn. Báturinn var á útleið með tvo um borð þegar sjálfstýring í bátnum bilaði með þeim afleiðingum að bátinn rak fljótlega upp í fjöru. Lítil hætta var á ferðum enda veður gott. Greiðlega gekk að ná bátnum af strandstað og var hann færður til hafnar […]
Kjaraskerðing í Hveragerðisbæ
Laun bæjarstarfsmanna í Hveragerði verða skert samkvæmt drögum að fjárhagsáætlun bæjarins fyrir næsta ár. Bæjarstjórnin gerir líka kröfur til stjórnenda bæjarins um hagræðingu og lækkun rekstrarkostnaðar. Launalækkunin felst í því að umsamin föst yfirvinna starfsmanna verður skert um 10 prósent og föstum bílastyrkjum verður sagt upp og akstur í staðinn greiddur eftir akstursdagbókum. (meira…)
Kyrkjufyllir á Ingimundarhátíð í dag
Ingimundarhátíðin er liður í tónleikaröðinni Tóna við hafið í Þorlákshöfn. Ingimundur Guðjónsson var menningarfrömuður í Þorlkáshöfn, stjórnaði Söngfélaginu, var organisti í kirkjunni og ein helsta driffjöður þess að kirkja var byggð í Þorlákshöfn. Sonur Ingimundar heitins, Jónas, píanóleikari lék ásamt söngkonunni Auði Gunnarsdóttur og fluttu þau mörg falleg sönglög og byrjuðu á Draumalandinu eftir Sigfús […]
Fjör á körfuboltaæfingu hjá Eyjapeyjum

Yngstu flokkar körfuboltans komu saman á dögunum og héldu jólapartý í íþróttamiðstöðinni. Um var að ræða sameiginlega körfuboltaæfingu þar sem teknar voru léttar æfingar og einnig öðruvísi æfingar eins og þríhjólakeppni og skotkeppni. Þá borðuðu strákarnir saman pizzur og drukku gos með og dregið var úr nöfnum þátttakenda í léttu happadrætti. Ljósmyndari Eyjafrétta var á […]
Lögreglan fann landa og bruggtæki
Lögreglumenn gerðu húsleit í íbúð í uppsveitum Árnessýslu fyrir nokkru vegna gruns um að þar ætti sér stað framleiðsla á landa. Um 25 lítrar af landa fundust auk bruggtækja. Engin framleiðsla var í gangi. Einn maður var handtekinn vegna málsins og viðurkenndi hann að hafa staðið einn að brugguninni sem hann ætlaði fyrir sig einan. […]
Uppskeruhátíð ÍTÁ verður 29. desmber kl. 20:00 í sal FSu
Hin árlega uppskeruhátíð íþrótta- og tómstundanefndar Árborgar verður haldin í sal Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi mánudaginn 29. desember kl. 20:00. Þar verða afhentir styrkir úr verkefnasjóði Íþrótta- og tómstundanefndar, Afreks-og styrktarsjóði Árborgar og íþróttafélaganna, þ.e. Umf. Selfoss, Umf. Stokkseyri og Íþf. FSu. Hvatningaverðlaun veitt. (meira…)
Mannabreytingar um áramótin
Nú um áramótin verða mannabreytingar hjá Búnaðarsambandinu og Kynbótastöðinni. Þorsteinn Ólafsson, dýralæknir, hverfur til annarra starfa eftir að hafa starfað hjá Búnaðarsambandinu, Kynbótastöðinni og Sauðfjársæðingastöðinni í 22 ár sem sérfræðingur í frjósemi og júgurheilbrigði. Hann tekur við stöðu dýralæknis nautgripa- og sauðfjársjúkdóma hjá Matvælastofnun á nýju ári. Þá lætur Bjarni Böðvarsson, frjótæknir, af störfum nú […]
Elverum náði ekki að verja titilinn
Sigurður Ari Stefánsson og félagar hans í norska handboltaliðinu Elverum náðu ekki að verja bikarinn í norsku bikarkeppninni sem lauk í dag. Elverum vann bikarinn fyrir ári síðan og átti möguleika á að verja titilinn í úrslitaleiknum gegn Runar, þar sem Íslendingurinn Kristinn Björgúlfsson leikur. Runar hafði hins vegar betur 27:24 en Sigurður Ari var […]
Tvær og hálf milljón safnaðist
Tæp tvær og hálf milljón safnaðist á tónleikum sem haldnir voru í dag í Háskólabíói, til styrktar Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna, SKB. Fullt var út úr dyrum og uppselt á tónleikana, sem haldnir voru þeir tíundu í röðinni. Alls hafa safnast rúmar 27 milljónir á þessum tíu árum. Tónleikarnir voru fyrst haldnir í desember árið 1998 […]
Menningarstund Tóna við hafið sunnudag 28. des. kl.16:00
Sunnudaginn 28. desember verður menningarstund í Þorlákskirkju klukkan 16:00 Menningarstundin er liður í tónleikaröðinni Tóna við hafið og er nú haldið í annað skipti eftir langt hlé, en þá var þetta kallað Ingimundarkvöld. Ingimundur var menningarfrömuður í Þorlkáshöfn, stjórnaði Söngfélaginu, var organisti í kirkjunni og ein helsta driffjöður þess að kirkja var byggð í Þorlákshöfn. […]
Jóla-og áramótaklipping á Selfossi
Miklar annir voru á Alþingi síðustau dagana fyrir jól og fengu þingmenn jóla- og áramótafrí rétt fyrir jólin. Árni Mathiesen, fyrsti þingmaður Sunnlendinga og fjármálaráðherra, hafði t.d. ekki tíma til þess að fara í jólaklippinguna og sló því saman jóla- og áramótaklippingu á Rakarastofu Björns og Kjartans í dag laugardaginn 27. des. Lenti ráðherrann strax […]
Jólatónleikar Mandal í safnaðarheimilinu

Á morgun, sunnudag heldur kvartettinn Mandal tónleika í safnaðarheimili Landakirkju en tónleikarnir heita Fagnið nú jóla fögru nátt. Kvartettinn skipa þau Bára Grímsdóttir, Chris Foster, Helga Jónsdóttir og Arnór Hermannsson en tónleikarnir hefjast klukkan 13.00. Ókeypis er á tónleikana. (meira…)
Jólaböll á Eyrarbakka og Stokkseyri laugardaginn 27. desember
Jólaball Kvenfélags Eyrarbakka verður haldið laugardaginn 27. des. frá kl. 11-13 í samkomuhúsinu Stað, Eyrarbakka. Hið árlega jólaball Kvenfélags Stokkseyrar verður haldið í Íþróttahúsinu á Stokkseyri laugardaginn 27.-12.klukkan 15:00. Jón Bjarnason sér um fjörið á báðum stöðum. Kaffi, Kakó og smákökur. Jólasveinarnir líta inn. (meira…)
Kirkjufyllir í Eyrarbakkakirkju í miðnæturmessu á jólanótt
Hátíðarmessa var í Eyrarbakkakirkju kl. 23:30 í gærkveldi við upphaf jólanætur og var kirkjufyllir. Séra Sveinn Valgeirssson flutti þarna sína fyrstu jólamessu í Eyrarbakkakirkju. Organisti var Haukur Gíslason og kirkjukór Eyrarbakkakirkju söng. Karen Dröfn Hafþórsdóttir söng lagið Helga nótt. Fleiri myndir undir – meira – (meira…)
Suðvestlægar vindáttir yfir jólin
Veðurstofan spáir suðvestlægum áttum yfir jólahátíðina, nokkuð hvössum vindi. Annars hljóðar spáin svona fyrir aðfangadag. Suðvestan 13-18 m/s og skúrir, en hægari og dálítil él í kvöld. Hiti 1 til 6 stig. Suðvestan 13-20 og él á morgun. Hiti um eða rétt yfir frostmarki. (meira…)
Jóladagskrá Landakirkju

Um jólin er kirkjusókn landsmanna ávallt með mesta móti. Prestar Landakirkju hafa í mörgu að snúast þessa daga. Dagskrá Landakirkju yfir jólin er þannig: Aðfangadagur jóla, 24. desember: Kl. 14. Helgistund í Kirkjugarði Vestmannaeyja. Tendrað á útikertum til að bera að leiðum ástvina eftir bæn og blessun í miðju garðsins. Kl. 18. Aftansöngur með hátíðarsöngvum. […]
Gleðileg jól
Sudurlandid.is óskar Sunnlendingum heima og heiman sem og Íslendingum öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Þökkum samstarfið og lestrarheimsóknir á vefinn á liðnu ári og bjóðum alla velkomna til slíks á nýju ári. Sudurlandid.is (meira…)
Aftansöngur og miðnæturmessa í Selfosskirkju
Aðfangadagur 24. desember: Aftansöngur jóla kl. 18:00 sr. Guðbjörg Jóhannesdóttir þjónar. Hátíðarsöngvar. Félagar úr barna og unglinga kórum kirkjunnar syngja við athöfnina. Jólanótt 24. desember: Hátíðarmessa kl. 23:30, sr. Kristinn Ágúst Friðfinnsson og Eygló Jóna Gunnarsdóttir djákni þjóna. Klassískt tón. (meira…)