Dagskrá Landakirkju um áramót

Sem fyrr verður messuhald á Gamlársdag í Landakirkju en Aftansöngur hefst klukkan 18.00. Á nýársdag verður messa klukkan 14.00 en þar mun séra Ólafur Jóhann Borgþórsson prédika. Þriðjudaginn 6. janúar eða á Þrettándanum verður Guðsþjónusta klukkan 18.00 í Stafkirkjunni og munu félagar í Lúðrasveit Vestmannaeyja spila. Vegna þessa fellur messa niður sunnudaginn 4. janúar og […]
160 tóku þátt í Göngustyrktarhlaupinu
160 manns tóku þátt í Göngustyrktarhlaupi til styrktar Krabbavörn í Vestmannaeyjum en hlaupið fór fram í morgun. Þetta er í annað sinn sem þetta er gert en í fyrra safnaðist um ein milljón króna sem runnu óskiptar til Krabbavarna. Boðið var upp á tvær hlaupaleiðir, annarsvegar frá Stórhöfða og hins vegar frá Steinsstöðum en hlaupinu […]
Björgunarfélagið safnar gömlum farsímum

Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar hefja í dag nýtt fjáröflunar- og endurvinnsluátak undir heitinu „Svaraðu kallinu! og tekur Björgunarfélag Vestmannaeyja við farsímum á Flugeldamarkaði félagsins í dag.” (meira…)
Hitamet var sett á Stórhöfða á árinu og snjódýpt með því mesta
Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur, hefur sett saman veðurannál fyrir árið 2008. Þar rifjar hann upp það helsta sem gerðist í veðrinu á árinu. Nýtt hitamet var sett á Stórhöfða í Vestmannaeyjum 30. júlí, (21,6 stig) en þar hefur verið mælt samfellt frá 1921. Þá var snjódýpt í Eyjum að morgni 3. mars með því mesta sem […]
Aftansöngur í Selfosskirkju
Gamlársdagur 31. desember: Aftansöngur kl. 18:00, sr. Úlfar Guðmundsson þjónar. Hátíðarsöngvar. Kór Selfosskirkju leiðir söng við helgihaldið um jól og áramót, undir stjórn Jörg Sondermann organista. (meira…)
Sendir frá sér afkomuviðvörun
Sláturfélag Suðurlands hefur sent frá sér afkomuviðvörun þar sem fram kemur að vegna gengisfalls krónu, verðbólgu og hárra vaxta verði fjármagnsliðir Sláturfélags Suðurlands svf. (SS) afar óhagstæðir á árinu 2008 í samanburði við árið á undan. Þetta valdi því að umtalsvert tap verði á rekstri félagsins á árinu 2008 þó endanlegar afkomutölur liggi ekki fyrir. […]
Fjórar úr ÍBV á landsliðsæfingu hjá U-19
Ólafur Þór Guðbjörnsson landsliðsþjálfari U-19 ára liðs kvenna í knattspyrnu hefur valið þær Þórhildi Ólafsdóttur, Kristínu Ernu Sigurlásdóttur, Sögu Huld Helgudóttur og Elísu Viðarsdóttur til æfinga helgina 2. og 3. janúar. Aðeins lið Vals hefur fleiri fulltrúa en ÍBV. (meira…)
Katrín �?sp Jónasdóttir íþróttakona Árborgar
Katrín Ösp Jónasdóttir er 16 ára og keppir í hópfimleikum með liði Selfoss HM1 sem er meistarahópur Selfoss í hópfimleikum sem samanstendur af 20 stúlkum á aldrinum 15-23 ára. Katrín Ösp er einnig nemandi í Fimleikaakademíu FSU. Katrín Ösp er fimleikakona sem hefur farið vaxandi ár frá ári undanfarin ár. (meira…)
Flugeldaratleikur á Jólarásinni
Útsendingar Jólarásarinnar eru enn í gangi á fm 104,7 en á morgun fer í gang skemmtilegur flugeldaratleikur. Leikurinn er í samstarfi við Björgunarfélag Vestmannaeyja og hefst klukkan 13.00. Nú er bara að stilla útvarpið og vera tilbúinn í slaginn enda glæsileg verðlaun í boði fyrir vinningshafann. (meira…)
Aflaverðmæti Ísfélagsskipanna rúmir 5 milljarðar króna

Samtals aflaði floti Ísfélagsins 131.981 tonnum úr sjó árið 2008. Langmesti hlutinn er vegna uppsjávarveiða skipanna, en ca. 6700 tonn eru bolfiskur. Aflaverðmæti skipanna var um 5,1 milljarður íslenskra króna. Afli og aflaverðmæti skiptast þannig milli skipanna (meira…)
Opið Gamlársmót í skák á Volcano
Skákmót verður haldið á Volcano Café á Gamlársdag og hefst mótið klukkan 13.00. Teflt verður í tveimur flokkum, fullorðins- og barnaflokki en það er Taflfélag Vestmannaeyja sem hefur umsjón með skráningu og mótshaldi. Volcano Café er opið fyrir gesti og gangandi á meðan móti stendur. Vegleg verðlaun eru í boði fyrir efstu þrjú sætin, bæði […]
Fréttir koma út í dag

Þar sem áramótin lenda í miðri vinnuviku kemur áskriftablaðið Fréttir út á þriðjudegi í þessari viku en ekki fimmtudegi eins og vant er. Blaðinu verður dreift í verslanir og til áskrifenda síðdegis í dag. Eins og vant er þá er tekið á atburðum ársins sem er að líða í árlegum fréttaannál blaðsins og birtist fyrri […]
700 m.kr. aukafjárveiting
Alþingi samþykkti í fjáraukalögum fyrir jól ríflega 700 milljóna króna aukafjárveitingu vegna Suðurlandsskjálftanna í vor. 400 milljónir fara til íbúanna. Ólafur Örn Haraldsson, verkefnisstjóri þjónustumiðstöðvar vegna Suðurlandsskjálftans, segir þetta skipta öllu máli fyrir þá sem urðu fyrir tjóni sem ekki fékkst bætt. (meira…)
�?yngsti dómur til þessa hér á landi í kynferðisbrotamáli
KARLMAÐUR var í gær dæmdur í 8 ára óskilorðsbundið fangelsi fyrir ítrekuð, gróf kynferðisbrot gegn stjúpdóttur sinni á þriggja ára tímabili, á meðan hún var á aldrinum 11-14 ára. Dómurinn féll í Héraðsdómi Suðurlands á Selfossi og er sá þyngsti sem um getur hér á landi í kynferðisbrotamáli. (meira…)
Vilja reisa minnisvarða um sr. Sigurð Pálsson og frú
Safnaðarnefnd Selfosskirkju hefur boðið sveitarfélaginu Árborg að taka þátt í að láta reisa minnisvarða um sr. Sigurð Pálsson og frú, en sr. Sigurður var fyrsti sóknarprestur Selfosskirkju. Hann var sóknarprestur í Hraungerði í Flóa, en flutti aðsetur sitt á Selfoss upp úr 1950 þegar fólki var tekið að fjölga á Selfossi. Sr. Sigurður Pálsson varð […]
Heimaleikur við Gróttu í undanúrslitum Eimskipsbikarsins
Dregið hefur verið í 4-liða úrslit Eimskipsbikarsins. Segja má að Selfoss hafi dottið í lukkupottinn því liðið fékk heimaleik við Gróttu. Það lið sem sigrar í þeirri viðureign leikur til úrslita í bikarkeppninni við annað hvort Val eða FH. Valsmenn fengu heimaleik gegn FH í hinum undanúrslitaleiknum. Ljóst er að það verða 1. deildarlið og […]
Áramótabrennur
Kveikt verður í áramótabrennum á eftirtöldum stöðum kl. 20:00 þann 31. desember 2008 ef veður leyfir: Á Selfossi norðan við flugvöll.Á Eyrarbakka vestan við Nesbrú.Á Stokkseyri vestan við Arnhólma. Framkvæmda- og veitusvið Sveitarfélagsins Árborgar. (meira…)
Full eining um �?rettándagleðina
Einhver misskilningur er í gangi varðandi þrettándaskemmtun ÍBV. Mjög gott samkomulag er milli ÍBV og Vestmannaeyjabæjar varðandi framkvæmd skemmtunarinnar. Í fréttum RÚV í gærkvöld ver sagt frá hátíðinni á þann veg að skilyrði fyrir styrk bæjarins væri, að skemmtunin yrði færð að helgi. Hér er misskilningur á ferð, slíkt skilyrði hefir aldrei verið sett fram […]
Karl slóst við tvær konur

Lögreglan í Vestmannaeyjum var vel vakandi yfir jólahátíðina enda vísaði hún nokkrum ungmennum út af skemmtistöðum bæjarins. Þau höfðu komist inn á staðina með því að framvísa skilríkjum annarra. Þar hafði orðið ósætti milli karls og tveggja kvenna sem endaði með stympingum og gengu einhver högg á milli þeirra en ekki var um að ræða […]
Síld gengur inn í Vestmannaeyjahöfn

Sjómenn hafa undanfarið orðið varir við talsvert af síld í innsiglingu Vestmannaeyjahafnar. Valur Bogason, hjá Hafró í Vestmannaeyjum var að kanna málið þegar Eyjafréttir höfðu samband við hann. „Það eru talsvert þykkar lóðningar hérna sem ná frá Nausthamri og út fyrir Klettsnefið. Við höfum verið að reyna veiða eitthvað af þessu til að kanna sýkingu […]