Glæsilegt hópflug á gamlársdag
Flugklúbbur Selfoss hefur mörg undanfarin ár farið í hópflug á gamlársdag þegar veður leyfir og sjaldan hefur hópurinn verið jafn glæsilegur og nú eða samtals 19 flugvélar. Að þessu sinni fengum við heimsókn flugvéla frá Flugfélaginu Geirfugli í Reykjavík, Flugklúbbi Mosfellsbæjar, Þyt og Lágflugi sem voru í sínu árlega Gamlársdagshópflugi. Eftir kaffiboð í Flugstöð Selfoss […]
Mikil kjötsala fyrir hátíðarnar
Íslendingar borðuðu íslenskt um hátíðarnar samkvæmt upplýsingum frá Félagi afurðastöðva en þar eru menn afar sáttir við kjötsöluna fyrir hátíðarnar. Nokkur aukning virðist vera í kjötsölu á milli ára.Sölutölur fyrir síðasta ár liggja ekki fyrir en að sögn Sigurðar Jóhannessonar, framkvæmdastjóra SAH afurða á Blönduósi og formanns Félags afurðastöðva, virðist vera nokkur aukning í kjötsölu […]
�?órarinn Ingi hjá belgíska liðinu Mechelen

Hin bráðefnilegi Þórarinn Ingi Valdimarsson er nú á æfingum með belgíska liðinu Mechelen. Liðið er þessa stundina í Tyrklandi í æfingaferð. Forráðarmenn liðsins vildu fá Þórarinn með sér í þessa ferð enda hrifust þeir af drengnum eftir síðasta tímabil þegar hann fór þangað til æfinga. (meira…)
�?rettándabrenna verður þriðjudaginn 6. janúar kl. 20:00 við Gestshús
Jólin verða kvödd á Selfossi með glæsilegri þrettándagleði þriðjudaginn 6. janúar (á þrettándanum). Farin verður blysför frá Tryggvaskála kl. 20:00 að brennustæði við tjaldstæði Gesthúsa þar sem kveikt verður í þrettándabálkesti. Glæsileg flugeldasýning verður og jólasveinar og álfar og tröll mæta á svæðið. (meira…)
Loðnu leitað næstu daga

Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson og þrjú loðnuskip eru lögð upp í leitarleiðangur umhverfis Ísland í von um að bjarga milljarða loðnuvertíð. Skipverjarnir á Faxa voru í Reykjavíkurhöfn upp úr hádegi að undirbúa brottför en ásamt Faxa taka nótaveiðiskipin Lundey frá Vopnafirði og Börkur úr Neskaupstað þátt í leitinni í samvinnu við Hafrannsóknastofnun. Rannsóknarskipið Árni Friðriksson fer […]
Afskrifa þarf skuldir í sjávarútvegi

Árni Johnsen þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir öruggt mál að afskrifa þurfi hluta af skuldum í sjávarútvegi. Hann segir aldrei hægt að koma því þannig fyrir að jafnt gangi yfir alla en vill að megin línan verði sú að menn njóti sama réttar. Hann segir bankana hafa valdið sér vonbrigðum. Þeir vinni of hægt og málin þurfi […]
Keflavíkurflugvöllur ohf. tekur til starfa
Opinbera hlutafélagið Keflavíkurflugvöllur tók til starfa nú um áramótin í því er sameinuð starfsemi Flugmálastjórnar á Keflavíkurflugvelli og Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Félagið er stofnað samkvæmt heimild í lögum sem samþykkt voru á Alþingi í fyrravor. Samgönguráðherra fer með hlut ríkisins í félaginu og framkvæmd laganna. Forstjóri Keflavíkurflugvallar ohf. er Björn Óli Hauksson rekstrarverkfræðingur. (meira…)
Vilja veiða hafbeitarlax að vetrarlagi
Ritstjórn veiðivefsins votnogveidi.is telur að leyfa eigi vetrarveiði í þeim ám sem byggja á hafbeitarlaxi. „Í stuttu máli þá eru þarna í Rangárþingi ár sem eru smekkfullar af laxi sem er ekkert í þessum venjulega fasa að hrygna til að halda uppi stofni af eigin rammleik. Ef til eru veiðimenn sem vilja eyða góðviðrisdögum á […]
Íslendingar aldrei verið svartsýnni
Íslendingar eru yfirleitt svartsýnir á horfur ársins 2009 og hafa aldrei verið jafn svartsýnir frá því mælingar hófust, samkvæmt niðurstöðum könnunar Gallup sem gerð var undir lok síðasta árs. Könnunin var gerð í 46 löndum. Um 67% Íslendinga töldu að persónulegir hagir þeirra yrðu verri á árinu 2009 en þeir voru í fyrra. Tæplega 30% […]
Glugganum lokað endanlega
Fimm ára útgáfusögu sunnlenska fréttablaðsins Gluggans er nú lokið, en síðasta eintak blaðsins kom út fyrir áramót. Öllum starfsmönnum hefur verið sagt upp. Blaðið var fríblað og borið í hvert hús á Suðurlandi og hafði tekjur sínar af auglýsingum. Gerð var tilraun til að breyta því í áskriftarblað en það gekk ekki sem skyldi þar […]
Árið 2008 var hlýtt
Í bráðabirgðayfirliti yfir tíðarfar ársins 2008 frá Veðurstofu Íslands kemur fram að árshitinn var vel yfir meðallagi á landinu og er þetta 13. árið í röð með hita yfir meðallagi í Reykjavík og það tíunda á Akureyri. Árið var 17. hlýjasta ár frá upphafi samfelldra mælinga í Reykjavík (1870), 14. hlýjasta árið í Stykkishólmi (mælingar […]
Íslendingar taka við formennsku
ÍSLENDINGAR tóku við formennsku í Norrænu ráðherranefndinni nú um áramótin. Í tilkynningu segir að meginatriðin í formennskuáætlun Íslendinga séu að stórefla rannsóknir og nýsköpun, ekki síst á sviði loftslags-, orku-, og umhverfismála, og að efla samstarf um verndun Norður-Atlantshafsins og málefni norðurskautsins. (meira…)
Margrét Lára þriðja í kjöri Íþróttamanns ársins

Margrét Lára Viðarsdóttir, knattspyrnukona og íþróttamaður ársins 2007 varð þriðja í kjöri á Íþróttamanni ársins 2008 en handknattleiksmaðurinn Ólafur Stefánsson tekur við kyndlinum. Hermann Hreiðarsson var einnig í hópi tíu bestu íþróttamanna þjóðarinnar í kjöri íþróttafréttamanna en Hermann varð sjötti í kjörinu. (meira…)
Hermann orðaður við Rangers og tvö ensk 1. deildarlið

Hermann Hreiðarsson fyrirliði íslenska landsliðsins í knattspyrnu er orðaður við skoska úrvalsdeildarliðið Rangers í enskum netmiðlum í dag sem og ensku 1. deildar liðin Reading og Ipswich. (meira…)
�?tgáfu Gluggans hætt

Ákveðið hefur verið að hætta útgáfu sunnlenska fréttablaðsins Gluggans. Blaðið hefur verið fríblað á Suðurlandi í rúm fimm ár og verið borið út til heimila á Suðurlandi. Þrengingar á auglýsingamarkaði urðu til þess að reynt var að breyta blaðinu í áskriftarblað en þær tilraunir mistókust og því var ákveðið að leggja blaðið niður. (meira…)
Enginn lét lífið í sjóslysi árið 2008

Nýliðið ár var einstakt að því leyti að enginn maður lét lífið í sjóslysi á íslenskum skipum, að því er fram kemur í tilkynningu frá Siglingastofnun Íslands. Þar segir að jafnvel sé hægt að leiða að því líkur að árið 2008 hafi verið fyrsta árið frá landnámi án banaslysa á sjó. (meira…)
Vel heppnuð áramót í Eyjum

Óhætt er að segja að áramótin hafi gengið vel í Vestmannaeyjum þrátt fyrir að mikið hafi verið skotið upp af flugeldum og fjöldi manns hafi skemmt sér fram undir morgun á nýársdag. Lögregla var reyndar kölluð út að Illugagötu 25 á Gamlárskvöld þar sem kviknað hafði í bíl og ekki ólíklegt að það hafi gerst […]
Flugeldasýning á Stokkseyrarbryggju í kvöld kl. 20:00
Flugeldasýning á Stokkkseyrarbryggju í kvöld, 2. janúar, kl. 20:00 Björgunarfélag Árborgar hefur á undanförnum árum verið með glæsilegar flugeldasýningar á Stokkseyrarbryggju. Umgjörð þar er hin besta og gefur Menningarverstöðin ofan bryggjunnar magnað bergmál sem gerir sýningarnar enn áhrifameiri. Fjölmennum. (meira…)
Netabátar í desember
Ekki margir bátar eru að róa núna. Hvanney SF var með 23 tonn í 3 ferðum frá Hornafirði. Kristrún RE er kominn á listann, og með stærsta róðruinn sinn í haust, tæp 190 tonn og þar af grálúða um 185 tonn. Annars þeir netabátar sem eru að róa núna eiga það allir sameiginlegt að róa […]
Gleðilegt nýtt ár!
Starfsmenn og eigendur Eyjasýnar ehf. óska lesendum sínum og landsmönnum öllum gleðilegs nýs árs og farsældar á komandi ári. (meira…)