Gömul ferja!
Það er sjálfsagt góðra gjalda vert af bæjaryfirvöldum að vera vakandi yfir hvort notuð ferja er á lausu einhver staðar og gæti hentað okkur. Ég er reyndar þeirrar skoðunar að ekki eigi að slá af kröfum okkar um nýja og sérhannaða ferju fyrir Landeyjahöfn, ferju sem lágmarkar frátafir og með hámarks öryggi. Danska ferjan sem […]
Árni Johnsen bætist í kátan detox-hóp

„Var í Kartuzy með mennina mína hér í Póllandi. Þetta er bráðskemmtilegur hópur, skrifar Jónína Benediktsdóttir heilsuræktarfrömuður á Facebook-síðu sína. Og þar er ekki orði ofaukið. Fréttablaðið greindi frá því fyrir skömmu að gríðarlega kátur og skemmtilegur hópur landsþekktra manna stefndi til Póllands eftir áramótin í detox-meðferð. Á síðustu stundu bættist Árni Johnsen alþingismaður í […]
Fundu loðnu af og til í nótt

Skipshöfnin á loðnuskipinu Faxa hefur verið að finna loðnu af og til í alla nótt eftir að hennar varð fyrst vart norðaustur af landinu í gær. Á Berki NK hafa menn líka verið að finna loðnu á svipuðum slóðum en skipin eru að leita að loðnu í samvinnu við Hafrannsóknarstofnun. (meira…)
8,8% fækkun farþega um Keflavíkurflugvöll 2008
Samkvæmt tölum frá Keflavíkurflugvelli fóru tæplega 2 milljónir farþega um völlinn á nýliðnu ári. Þetta er um 8,8% fækkun á milli ára. Hlutfalsllega er meiri fækkun í hópi áfram- og skiptifarþega (transit) en meðal farþega á leið til og frá landinu. Þannig voru komu- og brottfararfarþegar samtals 1.746.023 talsins sem er næst mesti fjöldi frá […]
Brotist inn í Sláturhúsið á Hellu
Fimm menn brutust um helgina inn í Sláturhúsið á Hellu og stálu þaðan samtals 670 kílóum af kjötvörum. Vitni sá hvar tveimur fólksbílum var ekið frá kjötvinnslunni og þar sem þeir virtust óvenjuþungir á sér lét það lögreglu vita. Selfosslögreglan stöðvaði bílana rétt austan við Selfoss og fann þýfið. Einhverjir mannanna hafa áður komið við […]
Íþróttamenn Hveragerðis 2008
Íþrótta- og tómstundanefnd ákvað á fundi sínum þann 9. desember síðastliðinn hverjir myndu hljóta viðurkenningar og útnefningar sem íþróttamenn Hveragerðis 2008. Hátíðarathöfn fór fram í Listasafninu 30. desember síðastliðinn og var um 70 manns sem sóttu samkomuna. Birkir Sveinsson, form. íþrótta- og tómstundanefndar stýrði samkomunni. Þeir íþróttamenn sem fengu viðurkenningu fyrir góðan árangur á árinu […]
Vestmannaeyjabær með danska ferju í sigtinu

Samkvæmt upplýsingum Frétta hafa bæjaryfirvöld í Vestmannaeyjum undanfarið leitað að hentugri ferju sem kemur til með að sigla upp í Landeyjahöfn. Eins og áður hefur komið fram ákvað ríkisstjórn að fresta smíði nýs skips og voru hugmyndir upp um að nota annað hvort núverandi Herjólf áfram eða leita að notuðu skipi. Vestmannaeyjabær hóf þá þegar […]
Lést í umferðarslysi austan við Selfoss
Maðurinn sem lést í umferðarslysi á Suðurlandsvegi skammt austan við Selfoss í gærmorgun hét Guðjón Ægir Sigurjónsson. Hann var hæstaréttarlögmaður og til heimilis að Hrísholti 4 á Selfossi. Guðjón var fæddur 4. janúar 1971 og lætur eftir sig eiginkonu og tvö börn. (meira…)
26% fjölgun farþega milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja

Farþegafjöldi Flugfélags Íslands dróst saman um 2% í heildina á árinu 2008. Er þá miðað við árið áður. Aukning var hinsvegar á farþegum milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja um 26%, en alls flugu 29 þúsund farþegar á þeirri flugleið á árinu 2008. (meira…)
Handboltafólk safnar dósum í kvöld
Í kvöld ætlar handboltafólk að hlaupa á milli húsa í Vestmannaeyjum og safna dósum. Dósasöfnunin er mikilvæg fjáröflun fyrir handboltann í Eyjum og líklega aldrei fyrr sem nú í því árferði sem nú er. Krakkar frá ÍBV munu fara á milli húsa á bilinu 18 til 20 og vonast forráðamenn ÍBV eftir góðum viðtökum bæjarbúa. […]
Heppnir vinningshafar dregnir út í verkefninu fjölskyldan á fjallið
HSK tók í fyrra þátt í verkefninu fjölskyldan á fjallið líkt og undanfarin ár. Fjöllin sem HSK tilnefndi voru Litli-Meitil í Ölfussi og Valafell á Landmannaafrétti. Stjórn HSK ákvað áður en verkefnið fór af stað að draga út einn göngugarp á hvoru fjalli úr röðum þeirra sem rituðu nafn sitt í gestabækurnar á fjöllunum. Þau […]
Skatthlutfall í staðgreiðslu hækkað í 37,2%
Skatthlutfall í staðgreiðslu árið 2009 hefur verið ákveðið 37,2%. Skatthlutfall barna, þ.e. þeirra sem fædd eru 1994 eða síðar, er 6% af tekjum umfram frítekjumark barna sem er kr. 100.745 Persónuafsláttur er kr. 506.466 á ári, eða kr. 42.205 á mánuði og er heimilt er að nýta allan (100%) ónýttan persónuafslátt maka á árinu 2009.Eins […]
Ljósheimar á Selfossi fá peningagjöf
Vörður, félag stjórnenda á Suðurlandi færði hjúkrunardeildinni Ljósheimum kr. 500 þúsund að gjöf, og skyldi gjöfinni varið til iðjuþjálfunar á deildinni. Keyptur hefur verið bakarofn sem er á hjólum og nú geta hjúkrunarsjúklingarnir á deildinni fengið að taka þátt í að baka við og við og er það liður í þeirri iðjuþjálfun sem þeir fá. […]
Steini og Olli ehf. og Brink með lægstu tilboðin
Í dag voru opnuð tilboð í útisvæðið við Sundlaug Vestmannaeyja. Annarsvegar voru opnuð tilboð í steypuframkvæmdir og hins vegar í jarðvinnu. Tvö tilboð bárust í jarðvinnu, annars vegar frá Íslenska Gámafélaginu og hins vegar frá Gröfuþjónustunni Brink. Tilboð Brink hljóðaði upp á tæpar 6,1 milljónir sem er 77,3% af kostnaðaráætlun. Tilboð ÍG var upp á […]
Hlutfall sýktrar síldar minna nú en áður

Kap VE, skip Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum kom í dag með fyrsta síldarfarm ársins til Eyja en skipið er með um 600 tonn sem verður landað í Vinnslustöðinni. Þar hefur síldin verið flokkuð, sýkta síldin tekin frá og ósýkt fryst til manneldis. Því verður haldið áfram. Stefán Friðriksson, aðstoðarframkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar segir að fyrstu prufur segi að […]
Áramótin fóru vel fram

Áramótin fóru vel fram, að mestu leiti en eitthvað var um pústra bæði í kringum áramótin og sl. helgi. Ekki var um nein alvarleg meiðsl að ræða og engar kærur liggja fyrir. Einn þjófnaður var tilkynntur lögreglu í vikunni en um varð að ræða þjófnað á farsíma í Höllinni aðfaranótt 28. desember sl. Um er […]
Atvinnuleysisbætur hækkuðu um áramót
Atvinnuleysisbætur hækkuðu nú um áramótin eftir ákvörðun félagsmálaráðherra um að flýta hækkun sem átti að taka gildi 1. mars næstkomandi. Grunnatvinnuleysisbætur hækka úr kr. 136.036 í kr. 149.536, og tekjutengdar atvinnuleysisbætur hækka úr kr. 220.279 í kr. 242.636. Félags- og tryggingamálaráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, hefur ákveðið að flýta hækkun atvinnuleysisbóta sem átti að koma til framkvæmda […]
Alvarlegt umferðarslys við Selfoss

Gangandi vegfarandi slasaðist mjög alvarlega þegar hann varð fyrir stórri sendibifreið á þjóðveginum austan við Selfoss laust fyrir klukkan átta í morgun. Hann hefur verið fluttur á Slysadeild Landsspítalans. Þjóðvegur eitt í Flóanum er lokaður þar sem rannsóknarmenn eru á vettvangi, en vegfarendur geta farið hjáleið um Gaulverjabæjarveg og Villingaholtsveg. (meira…)
Menningarviðurkenning Árborgar 2008
Menningarviðurkenning Árborgar 2008 var veitt samhliða uppskeruhátíð Íþrótta- og tómstundanefndar Árborgar og fór fram 29. desember síðastliðinn í sal Fjölbrautaskóla Suðurlands. Ásgeir Sigurðsson hlaut hana að þessu sinni en hann hefur stjórnað Lúðrasveit Selfoss frá upphafið eða í 50 ár auk fleiri starfa við tónlistina. Andrés Rúnar Ingason, formaður Lista- og menningarnefndar flutti ávarp og […]
�?rettán nutu góðs af síldarpeningunum
Í síðustu viku afhenti „Síldarútvegsnefnd afraksturinn af síldveiðum sem nefndin stóð fyrir í höfninni í vetur. Ekki fékkst uppgefið hver endanleg upphæð var en ákveðið var að deild þeim út til þrettán félaga í bænum.” (meira…)