�?að er heimskulegt að ætla að búa til einhverja stóra svífandi yfirstjórn

Hugmyndirnar um þessa sameiningu eru ótrúlega vitlausar. Allir sjá að sameining yfir mikil lönd og sjó fela í sér stóraukinn kostnað og því engann sparnað. Í gegnum tíðna hafa litlu sjúkrahúseiningarnar komið best út í rekstri. Það er skömm að sjá hvernig svona vinnubrögð nísta inn að hjarta okkar sem viljum frekar efla heilbrigðisþjónustu okkar […]
Áhyggjur af skertri fæðingarþjónstu
MAGNÚS Skúlason, framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands (HSU), segir starfsfólk hafa lýst miklum áhyggjum af áhrifum breytinganna á skurðlæknis- og fæðingarþjónustu. »Það er þungt hljóð í fólki út af þessu,« segir hann en með því að leggja af kvöld- og helgarvaktir á skurðstofunni á Selfossi gæti enginn fæðingarlæknir verið á vakt á þessum tíma. »Annars á eftir […]
Guðni mætir á flokksþing
Guðni Ágústson, fyrrverandi formaæður Framsóknarflokksins, er síður en svo á förum úr sínum gamla flokki. Hann mun verða á meðal fyulltrúa á flokksþingi um helgina þegar flokknum verður kosin ný forysta. Guðni hefuir ekki gefið upp afstöðu sína til formannsefna en víst er að hann styður ekki Pál Magnússon, sem er einn af höfuðfjendum Guðna […]
FSu keppir 12. janúar við Hraðbraut
Búið er að draga saman lið í spurningakeppninni „Gettu betur“. Lið Fjölbrautaskóla Suðurlands keppir við Menntaskólann Hraðbraut mánudaginn 12. janúar kl. 20:30. Lið FSu er skipað þeim Stefáni Hannessyni, Kára Úlfssyni og Ólafi Yngva Ólasyni, en þess má til gamans geta að hann er fjórði keppandinn af Sandvíkurkyni sem tekur þátt í spurningakeppni framhaldsskólanna fyrir […]
Ný Veðurstofa Íslands tekin til starfa
Ný stofnun, Veðurstofa Íslands, tók til starfa um áramótin. Magnús Jónsson, sem verið hefur veðurstofustjóri frá 1. janúar 1994, lét af störfum en við starfi forstjóra tók Árni Snorrason, sem áður var forstöðumaður Vatnamælinga sem sameinuðust Veðurstofunni 1. janúar 2009. (meira…)
Bjarni Sighvatsson Eyjamaður ársins 2008

Bjarni Sighvatsson var í dag útnefndur sem Eyjamaður ársins 2008 af vikublaðinu Fréttum. Fréttir hafa um árabil veitt svokallaðan Fréttapýramída til handa þeim sem þykja skara fram úr í samfélaginu hverju sinni. Bjarni hafði forystu í því að kaupa sneiðmyndatæki og fleiri smærri tæki á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja að fjárhæð um 30 milljóna króna. Hann bætti […]
Nýtt met í framleiðslu mjólkur
Innvigtun mjólkur til samlaga innan Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði var rúmar 126 milljónir lítra árið 2008 en svo mikil hefur innvigtunin ekki orðið áður í sögunni. Þar með var metið frá 2007 slegið, þá var innvigtunin 124,8 milljónir lítra. Það verður því ekki annað sagt en að framleiðslan hafi gengið vel undanfarin ár, enda hafa […]
OPIÐ H�?S í Gónhól laugardaginn 10. janúar kl. 14-16
Námskeiðin hefjast 12.janúar og verða á mánudögum og miðvikudögum frá kl. 14.30-16.30 og einnig á þriðjudögum og fimmtudögum ef næg þátttaka fæst. 10 skipti kosta 12.900 krónur. Námskeiðin eru fyrir 5-12 ára börn. Önnur námskeið eru einnig í boði og verða auglýst síðar: (meira…)
Reading og Celtic sögð vera á höttunum eftir Hermanni

Hermann Hreiðarsson fyrirliði íslenska landsliðsins í knattspyrnu vinnur sem kunnugt er í því að komast í burtu frá bikarmeisturum Portsmouth og vonast hann til að finna sér nýtt lið áður en mánuðurinn er allur. Enska blaðið Daily Mail greinir frá því í morgun að Hermann sé með tilboð frá enska 1. deildarliðinu Reading og þá […]
Bændur á baráttufund á Austurvelli á morgun, laugardag 10. jan
Hópur bænda hefur komið sér saman um að mæta á stóra baráttufundinn sem haldinn verður á Austurvelli á morgun laugardaginn 10. jan kl. 15:00.Nú hvetjum við alla bændur, starfsmenn afurðastöðva og allt landsbyggðarfólk að mæta á Austurvöll og sýna samstöðu gegn andvaraleysi ríkistjóranarinnar og spillingu í stjórnkerfinu. Með baráttukveðju, Baráttuhópur bænda (meira…)
Stórsigur Selfyssinga á ÍBV

Selfyssingar unnu í kvöld stórsigur á ÍBV, 35:18, í viðureign Suðurlandsliðanna í 1. deild karla í handknattleik sem fram fór á Selfossi. Staðan í hálfleik var 19:6, heimamönnum í vil. Þeir komust með sigrinum að hlið Gróttu á toppi 1. deildar með 18 stig en ÍR er í þriðja sæti með 16 stig. Selfyssingar hafa […]
Fjölgun gistinátta nóvember
Gistinætur á hótelum í nóvember síðastliðnum voru 77.300 og jukust um tæplega 2% frá nóvember 2007 þegar gistinætur voru 76.000. Þetta kemur fram í tölum Hagstofunnar. Gistinóttum fjölgaði hlutfallslega mest á Suðurlandi og Austurlandi eða um 30% miðað við nóvember 2007. Gistinóttum á Suðurlandi fjölgaði úr 5.700 í 7.400 eða um 30% (meira…)
Slökkviliðið kallað fimmtán sinnum út á síðasta ári
Slökkvilið Vestmannaeyja var kallað 15 sinnum út af neyðarlínunni á síðasta ári en í flestum tilvikum var um minniháttar tjón að ræða. Af þessum útköllum voru þrjú vegna bruna í bílhræjum og öðru drasli við Sorpu. Þá sinnir Slökkvilið Vestmannaeyja ýmsum öðrum störfum s.s. heimsóknir í fyrirtæki og skóla, eftirlit með löndun á eldsneyti og […]
Huginn VE prófar veiði á Norrænni gulldeplu
Uppsjávarskipið Huginn VE er nú við tilraunaveiðar á Norrænni gulldeplu, sem einnig er kölluð Laxsíld. Gulldepla er afar smár fiskur, 6-7 cm á lengd og eins og gefur að skilja hafa veiðar ekki gengið sérlega vel enda erfitt að ná fisknum. Áhöfnin á Huginn þarf þó ekki að leita langt yfir skammt því skipið er […]
Framkvæmdir við útisvæðið hefjast strax

Í gær, miðvikudag var skrifað undir verksamninga vegna útisvæðis við íþróttamiðstöðina en það eru fyrirtækin Gröfuþjónusta Brinks og byggingafyrirtækið Steini og Olli sem fengu verkin. Brink mun sjá um alla jarðvinnu en Steini og Olli um steypuvinnu. Framkvæmdir hefjast strax og á svæðið að vera tilbúið 15. maí næstkomandi. (meira…)
Eyjamenn vilja ráða sínum spítala sjálfir
Eyjamenn eru lítt hrifnir af hugmyndum Guðlaugs Þórs Þórðarsonar heilbrigðisráðherra um endurskipulagningu heilbrigðiskerfisins og vilja yfirtaka rekstur sjúkrahússins í Eyjum. „Þetta er ekki draumastaðan, það sem við hefðum helst kosið, segir Elliði Vignisson bæjarstjóri.” (meira…)
Undrandi á heilbrigðisráðherra

Gunnar K. Gunnarsson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja, segir að þær breytingar á starfsemi í heilbrigðisþjónustunni sem heilbrigðisráðherra hefur kynnt geti ekki átt við Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja. Til stendur að hún verði sameinuð Heilbrigðisstofnun Suðurlands. (meira…)
Frítt í strætó til 12. janúar
Fyrsta ferð strætó á milli Selfoss, Hveragerðis og Reykjavíkur var farin árla morguns 2. janúar 2009. Ragnheiður Hergeirsdóttir, bæjarstjóri Árborgar, og Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri Hveragerðis, voru á meðal fyrstu farþega ásamt bæjarfulltrúum og þremur almennum farþegum sem fengu gjafabréf með strætó.Íbúar eru hvattir til að kaupa kort á bæjarskrifstofunni því hluti af andvirði kortanna rennur […]
Ný stjórn Framleiðnisjóðs landbúnaðarins
Landbúnaðarráðherra hefur skipað Framleiðnisjóði landbúnaðarins stjórn til næstu fjögurra ára frá 15. janúar að telja. Eftirtaldir einstaklingar munu þá skipa stjórn sjóðsins:Kjartan Ólafsson, alþingismaður, formaður og Guðný Helga Björnsdóttir, bóndi á Bessastöðum í Hrútafirði, skipuð af landbúnaðarráðherra án tilnefningar; Gunnar Sæmundsson, bóndi í Hrútatungu, og Sveinn Ingvarsson, bóndi í Reykjahlíð á Skeiðum, tilnefndir af Bændasamtökum […]
Heilbrigðisstofnunin Suðurlands sameinuð Heilbrigðisstofnuninni í Vestmannaeyjum

Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra kynnti í dag tillögur um skipulagsbreytingar á heilbrigðisþjónustu í landinu. Breytingarnar eiga að taka gildi 1. mars næstkomandi. Meðal þess sem á fundinum kom fram er að Heilbrigðisstofnunin Suðurlands sameinast Heibrigðisstofnuninni í Vestmannaeyjum sem tekur jafnframt yfir samningum við Heilbrigðisstofnunina á Höfn. (meira…)