Töpuðu fyrir Hvanneyri

Í gær áttust við lið Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum og lið Starfsmenntabrautarinnar á Hvanneyri í fyrstu umferð spurningakeppninnar Gettu betur á Rás 2. Þetta var fyrsta keppni vetrarins og töpuðu Eyjamenn 8:4 og eru því úr leik. (meira…)

Skýrist líklega í næstu viku

Hermann Hreiðarsson hefur ekki farið leynt með óánægju sína að fá ekki að spila reglulega hjá Portsmouth og vill því leita á önnur mið. Ólafur Garðarsson, umboðsmaður Hermanns, segir Portsmouth og Coca-Cola Championship-félagið Reading vera að ræða saman um hugsanleg félagaskipti. (meira…)

Smyglaði fíkniefnum inn í fangelsi

Upp komst um fanga á Litla Hrauni, sem grunaðir eru um aðild að smygli á fíkniefnum inn í fangelsið. Að sögn lögreglu var staðið þannig að smyglinu, að einhver kom fíkniefnum fyrir utan á bifreið sem á oft leið inn á svæðið. Fangarnir gengu síðan að bifreiðinni og tóku fíkniefninn. Í þessu tilviki var einn […]

Leppar og leynifélög

Hrun íslensks efnhagslífs er sjálfsagt flestum Íslendingnum ofarlega í í huga. 30 menn og 3 konur eru helstu áhrifavaldar þess, að mati Vilhjálms Bjarnasonar, fyrrverandi bankastjóra í Eyjum. Þá hefur Jón Sullenberger verið gagnrýnin á helstu útrásarvíkingana, og hefur bent á margt vafasamt við þeirra viðskipti. Hann sendi okkur þetta myndband, og það þarfnast ekki […]

Lækka útgjöld til stjórnmálaflokka fyrst

Sem viðbót við fyrri sparnaðartillögur mínar er hér næsta tillaga um hvar þjóðin gæti sparað : Tillaga 3 er að fella niður eða lækka verulega styrki til stjórnmálaflokka, en þangað renna víst nokkur hundruð milljónir á hverju ári af almannafé. Nú í kreppunni eru þessi útgjöld hreinlega arfavitlaus. A.m.k. ætti fyrst að spara þar áður […]

Komnir með um 600 tonn af laxsíld

Huginn VE, sem nú er á tilraunaveiðum á laxsíld eða norrænni gulldeplu, er kominn með um 600 tonn í lestar skipsins og landar aflanum væntanlega til bræðslu í Vestmannaeyjum á morgun, þriðjudag. Gylfi Viðar Guðmundsson, skipstjóri í þessari ferð segir veiðarnar gangi hægt, einungis sé hægt að kasta meðan birtu nýtur við. (meira…)

Kona flutt til Reykjavíkur eftir að karlmaður veittist að henni

Lögreglan í Vestmannaeyjum rannsakar nú líkamsárás sem varð að morgni 10. janúar fyrir utan veitingastaðinn Lundann. Karlmaður lagði hendur á konu með þeim afleiðingum að hún féll aftur fyrir sig og lenti með hnakkann í götunni. Konan fékk höfuðáverka og var flutt til Reykjavíkur þar sem hún var lögð inn á sjúkrahús. Hún mun ekki […]

�?riggja bíla árekstur á Strembugötunni

Nú rétt eftir hádegi varð þriggja bíla árekstur á Strembugötunni. Ekki var um alvarlegan árekstur að ræða og litlar skemmdir urðu á bílunum en áreksturinn varð með þeim hætti að bíll sem var á leið upp brekkuna, missti hraðann, rann aftur á bak og á bíl sem þar var. Sá bíll skall svo á þriðja […]

Samband sunnlenskra sveitarfélaga ekki sátt við hagræðinguna

Stjórn sambands sunnlenskra sveitarfélaga lýsti yfir óánægju sinni með hagræðingu í heilbrigðiskerfinu á fundi sínum síðastliðinn föstudag. Stjórn SASS segir aðgerðirnar í hróplegri mótsögn við þá stefnu ríkisvaldsins að fjölga beri opinberum störfum á landsbyggðinni ef þess er kostur. Ályktunina má lesa hér að neðan. (meira…)

Funda í Eyjum á miðvikudag

Evrópunefnd Sjálfstæðisflokksins heldur í fundarherferð dagana 8. – 17. janúar. Haldnir verða 28 opnir fundir víðsvegar um landið þar sem Evrópumálin verða rædd. Á fundunum munu Kristján Þór Júlíusson, formaður nefndarinnar, og Árni Sigfússon, varaformaður, kynna starf Evrópunefndar og leita eftir sjónarmiðum fólks um land allt. (meira…)

Fundarherferð Evrópunefndar Sjálfstæðisflokksins

Evrópunefnd Sjálfstæðisflokksins heldur í fundarherferð dagana 8. – 17. janúar. Haldnir verða 28 opnir fundir víðsvegar um landið þar sem Evrópumálin verða rædd. Á fundunum munu Kristján Þór Júlíusson, formaður nefndarinnar, og Árni Sigfússon, varaformaður, kynna starf Evrópunefndar og leita eftir sjónarmiðum fólks um land allt. (meira…)

Reading eða Portsmouth?

Tony Adams knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarfélagsins Portsmouth leggur nú hart að Hermanni Hreiðarssyni, landsliðsfyrirliða Íslands, að hætta við þau áform sín að ganga til liðs við 1. deildarliðið Reading. Til stóð að Hermann færi í læknisskoðun hjá Reading í dag og myndi í framhaldi af því skrifa undir samning við félagið en því hefur verið slegið […]

Heimir fylgist með knattspyrnumóti í Afríku

Landslið Uganda leikur um þessar mundir í Caefca sem er keppni landsliða í mið og austur Afríku. Uganda er umsjónaraðili mótsins að þessu sinni og hefur heimaliðið staðið sig með miklum sóma og leikur úrslitaleik mótsins á morgun gegn sterku liði Kenýa. (meira…)

Verða engar fæðingar á Suðurlandi?

RÍKISSTJÓRNIN hefur lagt fram endurskoðað fjárlagafrumvarp fyrir árið 2009 þar sem mikill niðurskurður er boðaður í heilbrigðiskerfinu. Það er vert að skoða þau langtímaáhrif sem skerðingin getur haft á heilsu og heilbrigði landsmanna og hvort hún skili hagnaði í raun. Fljótt á litið virðist þetta eingöngu tilfærsla á fjármunum og verkefnum en ekki sparnaður. Heilbrigðisstofnun […]

Sérar �?skar Hafsteinn �?skarsson kominn til þjónustu

Messa var í Selfosskirkju kl. 11:00 í morgun sunnudaginn 11. janúar. Sérar Óskar Hafsteinn Óskarsson söng þar sína fyrstu messu en hann mun þjóna Selfosskirkju næstu fjóra mánuði. Gengið var til altaris og naut séra Óskar aðstoðar Eyglóar J. Gunnarsdóttur djákna. Léttur hádegisverður eftir messugjörð samkvæmt góðri venju sem margir kirkjugesta nýttu sér. Fleiri myndir […]

�?lfusingar segja upp samningi um slökkvilið

Sveitarfélagið Ölfus hefur með bréfi dagssettu þann 22.desember 2008 sagt upp þeim ákvæðum í samstarfssamningi milli Hveragerðis og Ölfus sem taka til rekstrar Slökkviliðs Hveragerðis og Ölfuss. Uppsögnin tekur gildi 1. janúar 2010. Bæjarráð Hveragerðis samþykkti á fundi sínum þann 8. janúar erindi Ölfusinga um uppsögn á þeim atriðum í samstarfssamningi sveitarfélaganna er lúta að […]

Held mínu striki

Hermann Hreiðarsson greindi frá því í þættinum 4-4-2 á Sport2 í gær að Tony Adams, stjóri Portsmouth, hefði tjáð honum á fundi að hann vildi nú halda honum áfram hjá félaginu. Hermann segist aftur á móti vilja halda sínu striki og spila hjá stjóra sem hafi trú á sér. Fréttablaðið greindi frá þessu. (meira…)

Sparkaði upp tveimur hurðum

Einn maður gisti fangageymslur lögreglu á Selfossi í nótt fyrir að sparka upp tveimur hurðum í ölæði, annarri á bar í bænum og hinsvegar í heimahúsi. Ekki er vitað með vissu hvað manninum gekk til en hann var talsvert við skál og fékk að sofa úr sér í fangaklefa. Smávægilegar skemmdir urðu á hurðunum. Þá […]

Messa og sunnudagaskóli í Selfosskirkju

Messa kl. 11:00 í dag, sunnudaginn 11. janúar. Sérar Óskar Hafsteinn Óskarsson þjónar ásamt Eygló J. Gunnarsdóttur djákna. Sunnudagaskóli á sama tíma. Umsjón: Herdís Styrkársdóttir Léttur hádegisverður á eftir. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.