Tveir sigrar í fótboltanum um helgina

Karlalið ÍBV í knattspyrnu spilaði um helgina tvo æfingaleiki. Fyrst lék aðallið ÍBV gegn Víkingi frá Ólafsvík í gær og unnu Eyjamenn öruggan sigur, 3:0. Bjarni Rúnar Einarsson skoraði fyrsta markið en annar tveggja nýrra framherja ÍBV, Viðar Örn Kjartansson skoraði næstu tvö. Í dag lék svo varalið ÍBV gegn Þrótti Vogum. (meira…)

Andri �?lafsson Íþróttamaður ársins 2008

Í gærkvöldi var tilkynnt hver væri Íþróttamaður ársins 2008 hjá ÍBV-héraðssambandi. Andri Ólafsson, knattspyrnumaður varð fyrir valinu en Andri var einn af burðarrásum ÍBV-liðsins sem vann 1. deildina síðasta sumar og vann sér um leið sæti í úrvalsdeild. Þá var einnig útnefndur Íþróttamaður æskunnar og fyrir valinu varð kylfingurinn Hallgrímur Júlíusson, en Hallgrímur hefur undanfarin […]

Grétar Mar vill ekki skera niður fjárstuðning við stjórnmálaflokkana

Frjálslyndi flokkurinn hélt fund á Kaffi Kró í gærkvöldi en þangað mættu Grétar Mar Jónsson, alþingismaður og Kolbrún Stefánsdóttir, ritari flokksins. Fundarmenn voru ekki ýkja margir en Grétar Mar kom víða við á fundinum. Hann byrjaði á að ræða um fund í efnahags- og skattanefnd, sagði frá því hvað væri verið að gera og hversu […]

KSÍ eykur stuðning við aðildarfélög

Stjórn Knattspyrnusambands Íslands samþykkti á fundi sínum í gær að auka fjárhagslegan stuðning við aðildarfélög sambandsins. Þannig tekur KSÍ nú á sig ferða- og uppihaldskostnað dómara fyrir árið 2009 í öllum deildum beggja kynja og í leikjum VISA bikarsins. Um leið falla niður gjöld félaganna í jöfnunarsjóð. Þá verður framlagi til liða í efstu tveimur […]

Hlæjum svolítið

Hvað er betra en að hlæja svolítið. Hér er myndband með tveimur sprellikörlum sem létta manni lund og örva hláturtaugarnar. (meira…)

�?orskkvótinn aukinn um 30 þúsund tonn

Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur í dag gefið út reglugerð þar sem hámarksafli í þorski er aukinn um 30 þúsund tonn. Heildaraflamark verður því 160 þúsund tonn á yfirstandandi fiskveiðiári, í stað 130 þúsund tonna sem áður hafði verið ákveðið. Með þessari ákvörðun er stefnt að nokkru hægari uppbyggingu viðmiðunarstofns og hrygningarstofns en […]

Stofnfé í sparisjóði ekki til skipta

Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt í deilu fyrrverandi hjóna um stofnfjáreign í Sparisjóði Vestmannaeyja, sem ekki var getið í skiptasamningi þegar hjónin skildu árið 2004. Þá var stofnfjáreignin talin verðlaus en vísbendingar eru um að verðmæti hennar kunni nú að hlaupa á tugum milljóna króna. (meira…)

Andy fór fyrir sigurliði �?ganda

Síðustu vikur hefur knattspyrnumótið Cecafa Senior Challenge Cup í Afríku farið fram en Úganda var eitt tólf liða sem léku í mótinu. Andrew Mwesigwa, leikmaður ÍBV var fyrirliði úganska liðsins sem gerð sér lítið fyrir og vann mótið. Úganda lagði Kenýa í úrslitaleiknum 1:0 og tók Andy við sigurverðlaununum í leikslok við mikinn fögnuð úganskra […]

Aflinn 8493 tonn

Skip Bergs-Hugins ehf. lönduðu á síðasta ári 8.493 tonnum, og er verðmæti aflans 1,723,5 milljónir króna. Bergur-Huginn gerir út þrjú skip og var afli og aflaverðmæti þeirra sem hér segir: Smáey VE 144 landaði 2290,5 tonnum að verðmæti 497,1 millj­ónir króna, Vestmannaey VE 444 landaði 3153,8 tonnum að verð­mæti 617,3 milljónir króna og Bergey VE […]

�?Núningur�? ekki vandamál

ÍBV Íþróttafélag var stofnað undir lok ársins 1996 þegar að Týr og Þór voru lögð niður. Undirritaðir hafa ekki orðið var við nokkuð annað innan félagsins en að þar rói allir sama báti í góðum takti. Vissulega er það þannig að deildirnar vilja fá meiri peninga í sinni rekstur frá aðalstjórn félagsins, slíkar kröfur eru […]

Enginn rígur milli deilda félagsins

Vegna umfjöllunar á vef eyjafrétta fyrr í dag vill undirritaður taka eftirfarandi fram. Það er mikil einföldun hjá varaformanni félagsins að stilla vandamálum félagsins upp sem ríg á milli handbolta og fótbolta. Með því er hann að beina athyglinni frá raunverulegum vandamálum félagsins sem er rekstur aðalstjórnar og framkvæmdastjórn ÍBV. Það er súrt að sitja […]

Á að þjóðnýta lífeyrissjóðina?

Ég hlustaði á Guðmund Ólafsson,hagfræðing,í Kastljósinu í gærkvöldi.Margt merkilegt sem maðurinn sagði,en það var eitt í hans máli sem maður hrökk illilega við. Guðmundur sagðist hafa heyrt um það að hugmyndir væru uppi um að lífeyrissjóðirnir okkar yrðu þjóðnýttir. Ríkissjóður þurfi á þessum fjármunum að halda.Ég hreinlega trúi því ekki að nokkrum ráðamanni detti þetta […]

Ísfélagið með fimmtung kvótans í norsk-íslensku síldinni

Fiskistofa hefur úthlutað aflamarki í norsk-íslenskri síld á árinu 2009 og verður kvótinn alls 238.400 tonn. Þetta er 8,7% hærri úthlutun en fyrir árið 2008. Heimilt er að veiða 44.362 tonn af heildarkvótanum í norskri lögsögu norðan 62°N og utan 12 sjómílna landhelginnar. (meira…)

Innanfélagskrísa hjá ÍBV

Eins og fram kom í lok síðustu viku sagði knattspyrnuráð karla af sér í heild sinni. Meðal skýringa sem Sigursveinn Þórðarson, fráfarandi formaður gaf var að fyrrum ráðsmenn væru ósáttir við skipulag innan ÍBV-íþróttafélags. Fréttir köfuðu í málið og eftir að hafa rætt við nokkra félagsmenn er ljóst að innri deilur hjá félaginu eru að […]

Tony Adams útilokar að Hermann fari frá Portsmouth

Tony Adams knattspyrnustjóri Portsmouth kom fram í enskum fjölmiðlum í morgun og útilokaði að Hermann Hreiðarsson fái að fara frá félaginu í janúar. Hermann hefur verið óhress með fá tækifæri í liðinu og vill fara annað. Hann hefur verið sterklega orðaður við Reading en nú virðist sem hann fái ekki að fara frá félaginu eftir […]

Bæjarráð bendir ríkisyfirvöldum enn og aftur á landfræðilega sérstöðu Vestmannaeyja

Á fundi bæjarráðs í dag voru málefni Heilbrigðisstofnunarinn í Vestmannaeyjum ofarlega á baugi en bæjarráð bendir ríkisyfirvöldum enn og aftur á landfræðilega sérstöðu Vestmannaeyja og minnir á að ferðatíminn milli Vestmannaeyja og Selfoss eru fjórir klukkutímar við núverandi samgöngur. Þannig yrði fyrirhuguð sameining Heilbrigðisstofnana á suðurlandi þjónustuskerðing fyrir Eyjamenn. Þá kemur fram í svari heilbrigðisráðherra […]

Tók á móti tæpum 65 þúsund tonnum af hráefni á síðasta ári

Samtals var á árinu 2008 tekið á móti tæplega 65.000 tonnum af hráefni. Sem er í góðu meðallagi, þrátt fyrir að veiðiheimildir í loðnu hafi verið minni á síðasta ári en mörg undanfarin ár. Það sem vegur upp árið er talsverð móttaka afla frá erlendum skipum eða um 19.000 tonn. Eftirfarandi er skrá yfir móttekið […]

Sóldögg snýr aftur

Nú hefur eftir langt samningaferli tekist að koma saman aftur hinu magnaða bandi Sóldögg og munu þeir leika á einum dansleik í Höllinni þann 6. febrúar næstkomandi. Sóldögg á sér mikla sögu hér í Eyjum og því var ákvörðun þeirra auðveldari með að koma saman aftur hér. Sóldögg lék í Eyjum nánast um hverja helgi […]

Kolmunnaveiðar í stað loðnu

Sex stór fjölveiðiskip, sem í venjulegu árferði væru byrjuð loðnuveiðar, hafa gefið þær veiðar upp á bátinn í bili að minnsta kosti, og eru farin til kolmunnaveiða suður af Færeyjum. Tvö skip, Jón Kjartansson og Aðalsteinn Jónsson, eru þegar búin að landa fullfermi á Eskifirði og farin aftur út, en um það bil sólarhring tekur […]

�?ung færð í Vestmannaeyjum

Mikil ofankoma í nótt hefur valdið nokkrum erfiðleikum í umferðinni en um 10 sentímetra jafnfallinn snjór er yfir öllu í Vestmannaeyjum. Búið er að ryðja helstu vegi bæjarins og er verið að ryðja götur íbúðahverfanna. Það má þó búast við að snjórinn hafi stutta viðdvöl í Eyjum í þessari lotu en spáð er hlýnandi veðri […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.