Suðurlandsmótið í skák
Næstu helgi fer fram Suðurlandsmótið í skák á Selfossi. Tefldar verða 7 umferðir. Mótið hefst föstudagskvöldið 30.jan og því líkur á sunnudeginum 1.feb. Nú hafa þegar skráð sig til leiks 25 keppendur, flestir koma frá Selfossi en Eyjamenn koma skammt undan. (meira…)
Stofnun Starfsorku, starfsendurhæfingar í Vestmannaeyjum

Frá miðju ári 2008 hefur verið starfandi starfshópur sem hefur unnið að stofnun starfsendurhæfingar í Vestmannaeyjum. Að hópnum koma fulltrúar helstu hagsmunaaðila: Lífeyrissjóður Vestmannaeyja, Viska, fræðslu- og símenntunarmiðstöð, Vestmannaeyjabær, Heilbrigðisstofnunin Vestmannaeyjum auk fulltrúa stéttarfélaga og atvinnulífsins í Vestmannaeyjum. Atvinnuþróunarfélag Suðurlands vann framanaf náið með starfshópnum að framgangi verkefnisins. (meira…)
Herjólfur líklega í viðgerð í enda apríl

Nú liggur fyrir nánari tímasetning á varahluti fyrir veltiugga Herjólfs en ugginn á skipinu bilaði um miðjan nóvember á síðasta ári. Varahlutirnir verða tilbúnir í enda apríl en Guðmundur Pedersen, hjá Eimskip telur að viðgerðin komi til með að taka þrjá til fjóra daga. (meira…)
Af snillingi í knattspyrnu

Áríðandi fundur er hjá ÍBV á morgun um málefni knattspyrnunnar. Í tilefni þess eru hér nokkur myndbrot úr knattspyrnuleikjum þar sem MU snillingurinn Ronaldo er í aðalhlutverki, sýnir snilli sína, en fær líka margar bylturnar. (meira…)
Fagnar ákvörðun sjávarútvegsráðherra

Stjórn Útvegsbændafélags Vestmannaeyja fagnar þeirri ákvörðun Einars K. Guðfinnssonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, að auka heildaraflamark í þorski á yfirstandandi fiskveiðiári um 30.000 tonn. Jafnframt fagnar stjórnin þeirri yfirlýsingu ráðherra að gert sé ráð fyrir því að heildaraflamark í þorski verði ekki lægra en 160 þúsund tonn á næsta fiskveiðiári. (meira…)
KFS lagði KV í rokleik í gær

KFS lagði KV í miklum rokleik í gær en lokatölur urðu 2:5 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 0:4 fyrir KFS. Leikurinn fór fram á gervigrasi KR-inga en KV er dótturfélag Vesturbæjarstjórveldisins. Egill Jóhannsson skoraði tvö mörk fyrir KFS og Sigurður Ingi Vilhjálmsson, Viktor Smári Kristjánsson og Anton Bjarnason eitt mark hver. Eins og […]
Fundað um knattspyrnuna á morgun

Á morgun, laugardag verður haldinn félagsfundur ÍBV íþróttafélags í Týsheimilinu. Fundurinn hefst klukkan 16.00 en fundarefnið er staða meistaraflokks karla í knattspyrnu. Ekkert knattspyrnuráð er starfandi eins hjá úrvalsdeildarliðinu sem setur undirbúning liðsins í mikla óvissu. (meira…)
Slegist úti á götu um miðjan dag

Í síðustu viku var pólskur maður, búsettur í Vestmannaeyjum, dæmdur fyrir alvarlega líkamsárás á samlanda sinn og átti atvikið sér stað í Eyjum um miðjan dag. Maðurinn hlaut skilorðsbundinn fangelsisdóm, var gert að greiða skaðabætur og að greiða allan sakarkostnað. Það var lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum sem ákærði í málinu, en árásin átti sér stað í […]
Baráttugleði og bjartsýni í byggðum Suðurkjördæmis

Það var mögnuð þátttaka á 11 opnum fundum í jafn mörgum bæjarfélögum í Suðurkjördæmi um miðjan desember. Liðlega 1.000 manns sóttu fundina þar sem nær 100 ræðumenn komu við sögu. Fundirnir voru haldnir í Þorlákshöfn, Sandgerði, Garðinum, Reykjanesbæ, Grindavík, Hveragerði, Selfossi, Hellu, Vík, Hornafirði og í Vestmannaeyjum. Á hverjum fundi töluðu 8 til 10 forsvarsmenn […]
Erum mjög hamingjusöm með þessi þrjú yndislegu börn

Urszula Voniewska Roguski og Piotr Roguski eiga fyrstu börn ársins í Eyjum, þríbura sem fæddust í Reykjavík 2. janúar. Þríburarnir hafa þegar fengið nöfn, strákurinn heitir Adrian og stúlkurnar Ela og Agata. Eldri systir þeirra sem heitir Alexandra, sjö ára, er dugleg að hjálpa til við að líta eftir systkinum sínum enda nóg að gera […]
Forsala á Sóldögg hefst í dag

Forsala á stórdansleik Sóldaggar í Höllinni hefst á Volcano Café kl 14:00 í dag. Það er því um að gera fyrir Eyjamenn að tryggja sér góðan afslátt á miðanum á þennan risadansleik þeirra Sóldaggarmanna sem fram fer þann 6 febrúar næstkomandi. (meira…)
Sama á við um þingmenn

Þeir mega ekki snúast upp í andhverfu sína – sem virðist því miður vera raunin með æði marga þessa dagana – aðgerðaleysi alls ráðandi. Þjóðinni hefur verið hópnauðgað, ef að svo má að orði komast, og viðbrögð margra á þingi er eins og þeim hafi bara líkað það vel, enda er farið að líta svo […]
Norðurlandamót í Eyjum?

Nú er allt útlit fyrir að Norðurlandamót barnaskólasveita fari fram í Vestmannaeyjum í september 2009. Skáksamband Íslands hefur samþykkt beiðni TV í þessa veru, en þó eru enn ákveðin skilyrði sem þarf að uppfylla til þess að endanleg ákvörðun verði tekin. Þau atriði verða þó ljós í marsmánuði. (meira…)
Mótmælir fyrirhugaðri sameiningu

Starfsmannafélag Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja, telur að fyrirhuguð sameining, Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja og Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, sem kynnt var miðvikudaginn, 7. janúar sl., hafi verið tekin í flýti, af hálfu heilbrigðisráðuneytisins. Ákvörðunin er gjörsamlega vanhugsuð frá upphafi til enda. (meira…)
Evrópunefnd Sjálfstæðismanna ætlar að funda í Eyjum á morgun

Fundaherferð Evrópunefndar Sjálfstæðisflokksins fer senn að ljúka. Nefndin verður á ferð í Eyjum á morgun, miðvikudag 21. janúar og heldur fund Ásgarði kl. 20.00. Á fundinn mætir Árni Sigfússon, varaformaður Evrópunefndar Sjálfstæðisflokksins. Verður starf nefndarinnar kynnt og leitað eftir sjónarmiðum fundarmanna í Evrópumálum. (meira…)
Hver ætlar að handtaka hvern?

Sýslumaðurinn Ólafur Helgi Kjartansson hefur boðað fjöldahandtökur á Sunnlendingum. Hinir seku eru hinir skuldsettu sem ekki hafa mætt til skýrslutöku vegna fjárnáms og annarra leiðinda sem skuldarar vitaskuld lenda í. Ég ætla ekki að mæla skuldaóreiðu bót en margir þeir sem nú eru að lenda á vanskilaskrá hafa til þessa verið vammlausir í sínum peningamálum. […]
Glitrandi síld í Vestmannaeyjahöfn og súlukast á Víkinni

Síld er nú í mklum mæli í Vestmannaeyjahöfn og að sögn kunnugra, er mun meira af síldinni í höfninni nú en fyrir áramótin. Sjá má síldina stökkva uppúr yfirborði sjávar og einnig hefur mikið súlukast verið á Víkinni. (meira…)
Dæmdi 18 ára ungling í 3 mánaða skilorðsbundið fangelsi

Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt átján ára pilt í þriggja mánaða fangelsi, skilorðsbundið, fyrir að hafa í vörslum sínum tæp 40 grömm af amfetamíni þegar hann kom til Vestmannaeyja með Herjólfi í nóvember sl. Pilturinn játaði brot sitt skýlaust og að hafa ætlað efnin til sölu. (meira…)
Slök markvarsla varð ÍBV að falli

Karlalið ÍBV lék í dag gegn ungmennaliði Hauka í 1. deild karla í handbolta. Úr varð hörkurimma þar sem sjaldnast skildu meira en eitt til tvö mörk að en þó voru gestirnir úr Hafnarfirði yfir lengst af í seinni hálfleik. Í stöðunni 25:25 fengu bæði lið tækifæri til að skora sigurmarkið en hvorugu liði tókst […]
Eygló Harðardóttir ritari

Eygló Harðardóttir var nú fyrir skemmstu kjörin ritari Framsóknarflokksins með miklum meirihluta atkvæða eða tæplega 73%. Velti hún þar sitjandi ritara úr sæti en það var Sæunn Stefánsdóttir. Eygló er þingmaður flokksins en hún tók sæti á þingi þegar Guðni Ágústsson sagði af sér þingmennsku. (meira…)