Engin hálfkláruð hús í Eyjum

Kreppan hefur haft þau skelfilegu áhrif á höfuðborgarsvæðinu að heilu hverfin standa hálfkláruð og fátt sem bendir til þess að húsin sem þar standi verði kláruð á næstunni. Kreppan hefur hins vegar haft öfug áhrif á byggingariðnaðinn í Vestmannaeyjum því líklega hefur aldrei verið byggt meira en nú. Þannig er verið að byggja tvö verslunar- […]

Eyjamenn byrja á útivelli 10. maí

Drög að dagsetningu leikja í úrvalsdeild karla í knattspyrnu liggur nú fyrir. Samkvæmt drögunum byrja Eyjamenn á útileik sunnudaginn 10. maí þegar þeir sækja Fram heim í Laugardalinn. Fyrsti heimaleikurinn er svo þremur dögum síðar þegar Breiðablik kemur í heimsókn. Íslandsmótinu lýkur svo 26. september en þá leikur ÍBV gegn Keflavík á útivelli. (meira…)

�?tvegsbændafélagið Heimaey styður ákvörðun ráðherra um hvalveiðar

Útvegsbændafélagið Heimaey lýsir fullum stuðningi við ákvörðun Einars K. Guðfinnssonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, að heimila veiðar á hrefnu og langreyði. Þá er því fagnað að ákvörðunin skuli gilda í fimm ár líkt og almenn venja er innan Alþjóða hvalveiðiráðsins. Á meðan rannsóknir sýna að stofnanir eru ekki í hættu er ekkert eðlilegra en að þjóð […]

Ríkið lagði 700 milljónir króna í vatnsleiðsluna

Hitaveita Suðurnesja hefur hækkað verð á köldu vatni og verður vatnið í Eyjum á sambærilegu verði og á Suðurnesjum og á höfuðborgar­svæðinu. Sigurjón I. Ingólfsson, svæðisstjóri HS í Eyjum sagði að lagning nýrrar vatnsleiðslu til Eyja á síðasta ári hefði verið mjög dýr fram­kvæmd eða nálægt 1,3 millj­örðum. (meira…)

Sigraði Aftureldingu í dramatískum leik

Leikurinn byrjaði illa fyrir Selfoss liðið sem var 2 til 3 skrefum á eftir Aftureldingu í öllu sem þeir gerðu. Sóknin var ómarkviss og byggðist eingöngu á einstaklingsframtaki og þrátt fyrir 14 skoruð mörk í fyrri hálfleik þá var sóknarleikurinn slakur. Þá var varnarleikurinn afleitur og lék Afturelding sér að framliggjandi vörn Selfyssinga. Selfoss reyndi […]

Vél Flugfélags Íslands veðurteppt í nótt

Vél Flugfélags Íslands varð veðurteppt í Vestmannaeyjum í nótt. Vélin lenti síðdegis á flugvellinum í Eyjum en þegar fara átti af stað á ný, snjóaði svo duglega að hvorki náðist að hreinsa flugbrautina, né að afísa vélina. Hún var því í Eyjum í nótt og verður flogið síðar í dag til Reykjavíkur, án farþega. (meira…)

Ekki áhugi fyrir Evrópusambandinu

Eftir langvarandi umræðu í fjölmiðlum og þjóðfélaginu um nauðsyn þess að Íslendingar gengju í Evrópusambandið má segja að málið hafi brotlent í vikunni. Birtar voru tvær kannanir um málið þar aðild er hafnað. Þetta er satt að segja ótrúlegt eftir allt sem á undan er gengið, þar sem meðal annars annar ríkisstjórnarflokkurinn hefur hótað að […]

Fagnar ákvörðun sjávarútvegsráðherra um hvalveiðar

Stjórn Útvegsbændafélags Vestmannaeyja fagnar þeirri ákvörðun Einars K. Guðfinnssonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, að heimila hvalveiðar í atvinnuskyni. Hvalveiðar hafa í för með sér atvinnusköpun og útflutningstekjur. Í hafinu við Ísland eru um 350 þúsund hvalir, stórir og smáir. Árlega éta þeir um 6 milljónir tonna af sjávarfangi, þar af um 2 milljónir tonna af fiski. […]

Leikskólagjöld í Vestmannaeyjum hafa lækkað mest

Litlar breytingar hafa orðið á leikskólagjöldum frá janúar 2008 til janúar 2009 og eru þess jafnvel dæmi að þau hafi lækkað umtalsvert. Þannig hefur gjaldskrá leikskóla í Vestmannaeyjum verið lækkuð um rúm 18% á tímabilinu og á Akranesi nemur lækkunin allt að 12%. Með lækkunum hafa þessi tvö sveitarfélög nálgast meðaltal annara sveitarfélaga en áður […]

Orkuveitu Reykjavíkur dæmdar jarðir

Héraðsdómur Suðurlands staðfesti í dag fullan eignarrétt Orkuveitu Reykjavíkur að landsvæðum sem Orkuveitan hefur keypt úr níu jörðum í sveitarfélaginu Ölfusi. Héraðsdómur felldi þar með úr gildi að hluta úrskurði óbyggðanefndar frá 31. maí 2006 sem hafði úrskurðað landsvæðin þjóðlendur. (meira…)

Lúðvík dómsmálaráðherra?

Allar líkur eru á að Lúðvík Bergvinsson setjist í stól dómsmálaráðherra við myndun nýrrar ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstri grænna. Lúðvík er lögfræðingur að mennt og hefur verið þingflokksformaður Samfylkingarinnar á þessu ári. Ef af verður mun Lúðvík verða annar Eyjamaðurinn sem sest í ráðherrastól en Magnús H. Magnússon var félags-, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra 1978- 1980 […]

Fundur á Selfossi um stöðu atvinnulífsins

Samtök atvinnulífsins boða til opins fundar á Selfossi um stöðu atvinnulífsinsHótel Selfossi – þriðjudaginn 27. janúar – kl. 20:00-21:30. Í núverandi ástandi verður að bregðast rétt við þegar í stað, lágmarka skaðann og auðvelda nýja uppbyggingu. Grípa verður til nauðsynlegra ráðstafana og taka ákvarðanir sem skapa grunn að nýrri framfarasókn. (meira…)

Stefnuskrá forseta Íslands

Dagurinn hefur verið ótrúlegur þegar litið er á pólitíkina. Sögulegur í meira lagi, stjórnin fallin, fyrrverandi samstarfsmenn keppast við að skíta hvorn annan út og forsetinn búinn að taka forystuna í myndun nýrrar ríkisstjórnar. Alla vega hefur hann sett fram fjögur stefnumál sem hann ætlast til að næsta ríkisstjórn framfylgi. (meira…)

Margrét Frímannsdóttir skipuð forstöðumaður Fangelsisins Litla-Hrauni

Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra hefur skipað Margréti Frímannsdóttur í embætti forstöðumanns Fangelsisins Litla-Hrauni frá og með 1. febrúar nk. Margrét hefur gegnt embætti forstöðumanns fangelsisins undanfarið ár í forföllum fyrrverandi forstöðumanns. Níu umsóknir bárust um embættið en umsóknarfrestur rann út 15. janúar síðastliðinn. Auk Margrétar sóttu eftirtaldir um embættið: (meira…)

�?rír knattspyrnumenn framlengja samning

Þrír af lykilleikmönnum Selfoss framlengdu samning sínum við félagið í gær. Selfyssingar eru nú að framlengja samninga við þá sem voru með lausa samninga og er búnið að semja við níu leikmenn. (meira…)

�?eir eiga allan heiður skilinn

Huginn VE kom inn til löndunar rétt fyrir miðnættið í gær með fullfermi af gulldeplu. Eða nánast en þeir eru með um 1000 rúmmetra af fiski í skipinu og gætu það verið um 950 tonn. Er þetta langbesti túrinn hjá þeim frá því þeir hófu þessar veiðar. (meira…)

Skrifað undir smíðasamning vegna knattspyrnuhúss

Nú í hádeginu var skrifað undir smíðasamning vegna knattspyrnuhúss í andyri íþróttamiðstöðvarinnar en það er byggingafyrirtækið Steini og Olli ehf. sem reisir húsið. Knattspyrnuhúsið mun rúma hálfan, löglegan knattspyrnuvöll en húsið verður stækkanlegt. Í máli Elliða Vignissonar, bæjarstjóra kom fram að með byggingu hússins tækist bæjarstjórn á við tvö vandamál. (meira…)

Mikið sjónarspil í Klettsvík

Enn er talsvert af síld í höfninni í Vestmannaeyjum en síldin virðist koma og fara með reglulegu millibili. Fuglar í Vestmannaeyjum hafa nýtt sér síldina en í gær var mikið sjónarspil í Klettsvík, austast í innsiglingunni þegar súlur í hundraða tali, köstuðu sér á síldina með tilheyrandi sjónarspili. Talsvert hefur verið um súlukast við Eyjar […]

Sóldögg á laugardegi í Höllinni

Ballið sem átti að vera með Sóldögg föstudagskvöldið 6. febrúar hefur verið fært á laugardagskvöldið 7. febrúar. Þetta er gert vegna margra áskoranna sem okkur hefur borist frá fólki uppá landið sem ætlar sér að mæta á þennan viðburð hér í Eyjum. Í staðinn mun hljómsveitin vera á Volcano Café á föstudagskvöldinu 6. febrúar með […]

Stefnir í fjölgun þátttakenda á Pæjumóti TM í sumar

Verið er að vinna í uppsetningu dagskrár Pæjumóts TM 2009. Mótið verður haldið 11.-13. júní, nú þegar eru farnar að berast fyrirspurnir um þátttöku. Svo virðist, sem enn verði fjölgun þátttakenda í sumar. Mótin hafa heppnast einstaklega vel undanfarin ár og stöðug aukning félaga. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.