Höldum fast í fullt sjálfstæði

Því verður ekki á móti mælt að íslenskt þjóðfélag hefur ratað í miklar ógöngur. Risavaxin vandamálin blasa við eftir hrun helstu fjármálafyrirtækja landsins. Þau eru tilkomin vegna græðgi, ófyrirleitni og hömluleysis sem fékk að viðgangast öllum til tjóns. (meira…)

Eygló býður sig fram í fyrsta sætið

Eygló Harðardóttir, alþingismaður og ritari Framsóknarflokksins, hefur ákveðið að gefa kost á sér í fyrsta sæti lista Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi í komandi alþingiskosningum. „Ég tók sæti á Alþingi í nóvember síðastliðnum eftir að hafa verið varaþingmaður síðan 2003. Á síðasta flokksþingi Framsóknarflokksins hlaut ég afgerandi stuðning til forystu í flokknum og býð mig því fram […]

Herjólfur fer ekki fyrri ferð í dag

Herjólfur fer ekki fyrri ferð sína í dag, miðvikudaginn 4. febrúar. Áætlað er að skipið sigli seinni ferð sína frá Vestmannaeyjum klukkan 16.00 og frá Þorlákshöfn klukkan 19.30. (meira…)

Framkvæmdir á fullum krafti

Allt bendir til þess að nýr malbikaður Suðurstrandarvegur verði tilbúinn haustið 2011 eins og stefnt var að en þessi nýi vegur verður sannkölluð bylting í samgöngumálum á þessu svæði, ekki síst fyrir Grindvíkinga og Þorlákshafnarbúa. Aðeins á eftir að bjóða út 15 km kafla frá Krýsuvíkurvegi að Ísólfsskóla og að sögn G. Péturs Matthíassonar, upplýsingafulltrúa […]

Smiðjur fyrir 16 ára og eldri

Vegna bágrar fjárhagstöðu ætlar Leikfélag Vestmannaeyja að bjóða upp á Smiðjur fyrir 16 ára og eldri. Byrjað verður mánudaginn 9. febrúar klukkan 20.00 en boðið verður upp á kvikmyndahóp, spuna- og einþáttungahóp, danshóp og sminkhóp. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem má lesa hér að neðan. (meira…)

Fjallað um ástand lundastofnsins á vef National Geographic

Fjallað er um ástand lundastofnsins á vefsíðu National Geographic. Þar er rætt við Erp Snæ Hansen, líffræðing og Margo J. Renner og fjallað bæði um tengingu lundans við Vestmannaeyjar og hugsanlegar ástæður þess að lundastofninn minnki. Hægt er að sjá myndbandið hér að neðan. (meira…)

Af framboðum til Alþingis

Ný ríkisstjórn er að fæðast í dag og óska ég henni alls góðs, þó svo að ég hafi nú ekki mikla trú á neinum stór afrekum á þessum stutta tíma fram að kosningum. Framsóknarmenn fara mikinn þessa dagana og vilja meina það að það hafi orðið stórkostleg endurnýjun í forystu flokksins, en mér er hins […]

Reynt að kveikja í íbúðarhúsi í gegnum bréfalúgu

Aðfaranótt 30. janúar var lögreglu tilkynnt að bréfi hafi verið troðið inn í bréfalúgu á húsi við Hásteinsveg og síðan borinn eldur að. Húsráðanda tókst að slökkva eldinn áður en tjón hlaust að. Húseigandinn hafði orðið var við að einhver var að eiga við bréfalúguna og þegar hann kannaði hvað væri að gerast hafi hann […]

Mikil frjósemi í Eyjamönnum

Svo virðist sem mikil frjósemi sé um þessar mundir í Vestmannaeyingum. Fyrstu börn ársins fæddust 2. janúar. Það voru þríburar, sem fengið hafa nöfnin Adrian, Ela og Agata. Foreldrar þeirra eru pólskir, Ursula Voniewska og Piotr Roguski og hafa búið í Eyjum í þrjú ár. Þá fæddust tvíburar 27. janúar. Foreldrar þeirra eru Drífa Þöll […]

Eyjamenn ekki í vandræðum með Víði í Garði

Karlalið ÍBV í knattspyrnu var ekki í vandræðum með 2. deildarlið Víði í Garði þegar liðin mættust í æfingaleik í gær í Reykjaneshöll. Lokatölur urðu 8:1 fyrir ÍBV en staðan í hálfleik var 4:1. Elías Ingi Árnason, annar tveggja nýju framherja ÍBV skoraði tvö mörk í fyrri hálfleik og Ingi Rafn Ingibergsson líka. (meira…)

ÍR-ingar lögðu Eyjamenn

ÍR sigraði ÍBV, 34:24, í 1. deild karla í handknattleik þegar liðin mættust í Austurbergi í dag. ÍR er áfram í þriðja sæti deildarinnar, nú með 22 stig, en Grótta er með 26 stig og Selfoss 24 í tveimur efstu sætunum þegar öll liðin hafa leikið 15 leiki. (meira…)

Geir hefur staðið vaktina svikalaust

Það er ekki annað að sjá en Geir hafi staðið vaktina svikalaust allt til þessa frá því í október. Ekki get ég óskað nokkrum manni að hafa einmitt verið á vakt í haust þegar bankarnir hrundu og ofvaxin spilaborg fjármálaheimsins fauk um koll. (meira…)

Hermann tapaði í 300. leik sínum í úrvalsdeild

Hermann Hreiðarsson, Eyjapeyinn í liði Portsmouth náði merkum áfanga í dag þegar hann lék sinn 300. leik í ensku úrvalsdeildinni. Hermann hefur leikið með fimm liðum í úrvalsdeildinni, Crystal Palace, Wimbledon, Ipswich, Charlton og nú Portsmouth. Landsliðsfyrirliðinn hafði þó litla ástæðu til að fagna í dag enda steinlá Portsmouth fyrir Fulham, 3:1. (meira…)

Rakel í Evróvision í kvöld

Rakel Magnúsdóttir íþróttakennari og Eurovisionstjarna stígur á sviðið í undankeppni sjónvarpsins fyrir Eurovision næstkomandi laugardag. Rakel skipar sönghópinn ELEKTRA ásamt Hildi systur sinni og fjórum öðrum stelpum. Varla þarf að hvetja Sunnlendinga til að styðja sitt fólk í keppninni, enda löngu tímabært að FSu geri aðra tilraun til að hreppa þennan titil. (meira…)

Gönguskíðabrautir lagðar í Árborg

Þar sem einstaklega snjóríkt er í Árborg þessa dagana hefur verið ákveðið að troða gönguskíðabrautir um Árborg fyrir almenning. Byrjað verður að troða brautir á íþróttasvæðinu við Engjaveg og á Gesthúsasvæðinu. Sveitarfélagið hefur fengið Björgunarsveit Árborgar til að gerir brautirnar og munu þeir útbúa þær í dag. (meira…)

Surtseyjarstofa á hrakhólum

Surtseyjarsýningin í Þjóðmenningarhúsinu gæti farið í geymslu í næsta mánuði þar sem ekkert húsnæði er fyrir hana í Vestmannaeyjum. Jón Gunnar Ottósson, forstjóri Náttúrufræðistofnunnar, telur að Vestmannaeyjabær eða Umhverfisstofnun eigi að kosta uppsetningu og rekstur sýningarinnar í Eyjum. (meira…)

Breytt framkvæmd á útflutningi á fiski

Í desember var samþykkt á Alþingi breyting á lögum nr. 57/1996 um umgengni nytjastofna sjávar. Breytingin felur meðal annars í sér að allur óvigtaður afli sem ætlaður er til útflutnings skuli boðinn upp hér á landi áður en aflinn er færður í flutningsfar eða skip sem siglir með afla leggur af stað af miðum. Breytingin […]

Sanngjarn sigur gegn HK

Kvennalið ÍBV í handbolta vann í kvöld góðan sigur á HK í 2. deild Íslandsmótsins en liðin áttust við í Vestmannaeyjum. Gestirnir úr Kópavogi byrjuðu betur í leiknum, komust í 0:3 en Eyjastúlkur jöfnuðu 6:6 og skiptust liðin á að skora það sem eftir lifði fyrri hálfleiks. Eyjastúlkur voru þó yfir í hálfleik 19:18 í […]

Baugsmálið frá sjónarhorni Sullenberger

Kreppan með spillingu í forgrunni er það sem helst er rætt þar sem tveir eða fleiri hittast. Jón Sullenberger hefur verið ólatur að benda á ýmislegt í kringum það þekkta fyrirtæki, Baug. Hann sendi okkur fjórða myndbandið um það mál allt og þarfnast ekki frekari útskýringa. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.