Fundur með samgönguráðherra í kvöld

Í kvöld, þriðjudag, verður opinn fundur með samgönguráðherra, Kristjáni L. Möller í Vestmannaeyjum. Fundurinn hefst klukkan 20.00 og verður haldinn í Alþýðuhúsinu en fundarefnið eru samgöngu- og sveitastjórnarmál. (meira…)
Um 60 milljónir í ferðastyrk

Síðar í þessum mánuði verður úthlutað öðru sinni úr Ferðasjóði íþróttafélaga, en fyrst var úthlutað úr honum í fyrra. Það er ríkissjóður sem greiðir í þennan sjóð og í fyrra var 30 milljónum króna úthlutað en í ár verða það tæpar 60 milljónir. Umsóknir í sjóðinn í fyrra námu ríflega 200 milljónum og sótt er […]
Leyfir takmarkaðar loðnuveiðar í rannsóknarskyni

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, hefur nú ákveðið að heimila takmarkaðar loðnuveiðar íslenskra skipa í rannsóknaskyni. Um er að ræða 15.000 tonna kvóta. Í reglugerðinni er kveðið á um að stjórn og skipulag veiðanna skuli framkvæmt undir stjórn og í nánu samstarfi við Hafrannsóknastofnunina. Fram hefur komið að útgerðarmenn og skipstjórar loðnuskipanna eru vongóðir […]
Einfaldasta hagfræði í heimi

Þetta er algjörlega ofvaxið skilningi venjulegs fólks. Hvenær í ósköpunum ætlar þessi þjóð að vakna upp af draumsvefninum ? Þetta hús er táknmynd gróðærisins og þess tíma þegar menn misstu algerlega áttir í hagstjórninni í okkar blessaða landi. (meira…)
Látum verkin tala

Ef borin eru saman síðasta heila ár Sjálfstæðisflokksins í samgönguráðuneytinu, 2006, og fyrsta heila ár Samfylkingarinnar í sama ráðuneyti, 2008, má sjá að framlög til almenningssamgangna hafa nánast tvöfaldast. Árið 2006 fóru um 303 milljónir í að styrkja flug og siglingar milli lands og Eyja en á árinu 2008 voru það um 590 milljónir. Með […]
Skóladagvistun og hádegisverður grunnskólabarna ódýrast í Eyjum

Vestmannaeyjabær býður upp á ódýrustu þjónustu við skólabörn á landinu þegar kemur að skóladagvistun og hádegisverði grunnskólabarna. Alþýðusamband Íslands stóð fyrir samanburði á verði í báðum tilvikum en samanburður getur verið flókinn þar sem allskonar systkinaafsættir eru í gangi og mismunandi hvað innifalið er í verði. Fyrir eitt barn greiða foreldrar í Vestmannaeyjabæ minnst á […]
Bannað að bera áfengi út og inn á staði með vínveitingaleyfi

Lögreglan hafði í ýmis horn að líta um helgina og í vikunni sem leið. Afskipti voru höfð af manni sem kom út af einum af veitingastöðum bæjarins með poka sem í var áfengur bjór. Viðurkenndi viðkomandi að hafa keypt bjórinn inni á staðnum, en samkvæmt áfengislögum er óheimilt að bera áfengi út og inn á […]
�?að er verk að vinna

Krafa um endurnýjun og uppstokkun í stjórnmálaflokkum landsins er hávær eftir efnahagshrunið. Kjósendur krefjast breytinga og hávær krafa er um að nýtt fólk verði valið til starfa á næsta alþingi Íslendinga. Stjórnmálaflokkarnir verða að bregðast við þessu kalli og nú þegar er ljóst að þessi háværa krafa kjósenda er farin að hafa áhrif. (meira…)
Að minnsta kosti 13 skip við gulldepluveiðar

Fjölveiðiskipin eru aftur byrjuð gulldepluveiðar suður af landinu eftir brælu í gær. Að minnsta kosti þrettán skip eru nú á Grindavíkurdýpi og fara brátt að berast aflatölur. Sú nýbreytni er við þessar veiðar að nú meta sjómenn aflann í rúmmetrum, fremur en tonnum, eins og vaninn hefur verið. (meira…)
Fjármál Lúðvíks ekki ástæðan
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna umfjöllunar Morgunblaðsins um Lúðvík Berginsson alþingismann og formann þingflokks Samfylkingarinnar, í dag sunnudag. Þar hafnar Jóhanna því að fjármál Lúðvíks hafi komið í veg fyrir að hann fengi úthlutað embætti dóms- og kirkjumálaráðherra í minnihlutastjórn Jóhönnu. (meira…)
Ingigerður Sæmundsdóttir ætlar að bjóða sig fram Suðurkjördæmi

Ingigerður Sæmundsdóttir, verkefnastjóri í Reykjanesbæ og fyrrum blaðamaður á Víkurfréttum, ætlar að bjóða sig fram fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Suðurkjördæmi. Ingigerður ætlar að sækjast eftir 5. sæti á lista sjálfstæðismanna í kjördæminu. Þetta kemur fram á fréttavef Víkurfrétta. (meira…)
Sanngjörn úrslit gegn unglingunum úr Hafnarfirði

Í dag áttust við ÍBV og ungmennalið Hauka í 1. deild karla í handbolta en leikurinn fór fram í Vestmannaeyjum. Þetta var í þriðja sinn sem liðin mætast og í annað sinn í Eyjum en fyrri leikur liðanna þar, endaði með 25:25 jafntefli í æsispennandi leik. Spennan var ekki síðri í dag en lokatölur urðu […]
Ekkert nýtt að frétta af loðnunni

,,Það er ekkert nýtt að frétta af loðnunni ennþá. Rannsóknaskipið Árni Friðriksson er að leita suðaustan við landið eftir ábendingum frá skipum, sem orðið hafa vör við loðnu, en ekkert stórt hefur fundist. Þeir eru núna rétt ofan við Hvalbakshallið, ætla að skoða Breiðdalsgrunnið og fara svo dýpra þar sem megingangan gæti legið. “ (meira…)
Félagsfundur Samfylkingarinnar í Árborg
Félagsfundur Samfylkingarinnar í Árborg og nágrenni í Tryggvaskála í dag, laugardaginn 7. febr. kl. 11:00 Dagskrá: 1. Kristján Möller, samgönguráðherra – Suðurlandsvegur og samgöngubætur – Verkefni nýrrar ríkisstjórnar 2. Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður – Verkefni samfylkingarfólks fram að kosningum Félagsmenn fjölmenni á fundinn. Stjórnin. (meira…)
Vélsleðafólk týnt og bensínlaust á öræfum
Svæðisstjórn björgunarsveita í Árnessýslu fékk um kl 19:30 beiðni frá lögreglu um að svipast um eftir 3 einstaklingum sem höfðu farið á 2 sleðum og ætlað á Skjaldbreið. Fólkið fór af stað um kl 14:00 og ætlaði að vera í 2 tíma en ekkert hafði spurst til þeirra þegar beiðnin barst.Kallaðar voru út sveitir í […]
Stór hvalur í Vestmannaeyjahöfn

Nú undir kvöld urðu hafnarverðir í Vestmannaeyjahöfn varir við stóran hval í Vestmannaeyjahöfn. Eins og gefur að skilja hefur ekki sést nægilega vel til hvalarins til að greina tegundina en þeir sem hafa orðið hans varir, telja að um stórt dýr sé að ræða. Blaðamaður fór á staðinn, sá ekki dýrið en heyrði greinilega í […]
Aðgát skal höfð á dansgólfinu

Helgin er framundan og eflaust margir sem bregða undir sig betri fætinum á dansgólfinu. En aðgát skal höfð þegar dansinn er stiginn, en það hefur það ágæta fólk, sem leikur aðalhlutverk í þessu myndbandi ekki viðhaft. (meira…)
�?rír vilja vera landshlutafulltrúar Suðurlands hjá KSÍ

Ársþing KSÍ verður haldið 14. febrúar næstkomandi en þá er m.a. kosið í stjórn sambandsins. Tveir Eyjamenn hafa verið í stjórn KSÍ, Jóhannes Ólafsson, Eyjamaður hefur verið varamaður undanfarin ár en varamenn eru kosnir í eitt ár í senn. Þrír varamenn eru í stjórn KSÍ, þrír hafa boðið sig fram sem varamenn í aðalstjórn og […]
Grunnmenntaskólinn kynntur í dag

Í dag, milli 17 og 19 verður Grunnmenntaskólinn kynntur í húsi Visku að Strandvegi 50. Grunnmenntaskólinn er 300 kennslustunda nám fyrir fólk sem hefur stutta skólagöngu að baki. Tilgangur skólans er að stuðla að jákvæðu viðhorfi til áframhaldandi náms og auðvelda fólki að takast á við ný verkefni. (meira…)
Sigurður Ari skoraði 9 í sigri Elverum

Eyjamaðurinnn Sigurður Ari Stefánsson skoraði 9 mörk fyrir Elverum þegar liðið sigraði Follo, 34:26, í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik í gærkvöld. Þá skoraði Kristinn Björgúlfsson 3 mörk fyrir Runar sem hafði betur gegn Haugaland, 33:31. (meira…)