Hermann skoraði í öðrum leiknum í röð

Hermann Hreiðarsson skoraði annað mark Portsmouth þegar að liðið lagði Manchester City í eina leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Hermann skoraði þarna í sínum öðrum leik í röð en hann skoraði einnig gegn Liverpool um síðustu helgi. (meira…)
KFS mætir KFR í bikarkeppninni

Búið er að draga í fyrstu umferðum Visabikarkeppninnar í knattspyrnu, ekki seinna vænna enda aðeins rétt rúmir þrír mánuðir í að leikirnir fara fram. KFS mætir nágrönnum sínum af Suðurlandi, KFR sem leikur sína heimaleiki á Hvolsvelli. Það lið sem kemst áfram í næstu umferð, mætir svo Víði og fer leikurinn fram í Garði. Þá […]
Sjálfstæðismenn á Selfossi vilja breytingar
Sjálfstæðisfélagið Óðinn á Selfossi skorar á nýja frambjóðendur til þess að gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins. Félagið telur mikilvægt að það verði endurnýjun í forystu flokksins og þingmannaliði. Ljóst sé að þær breytingar nái ekki fram að ganga, nema nýtt fólk gefi kost á sér. (meira…)
Verður núverandi Herjólfur notaður í Bakkafjöru?

Samkvæmt þeim upplýsingum sem ég hef aflað mér er helst til skoðunar nú hjá Siglingastofnun að nota núverandi Herjólf til siglinga í Bakkafjöru, þegar höfnin þar verður tilbúin til notkunar um mitt ár 2010. Verið er að kanna möguleika á að dýpka niður á sandrifið þannig að djúprista skipsins verði ekki takmarkandi þáttur við innsiglingu […]
Unnur Brá vill 2. sætið

Unnur Brá Konráðsdóttir, sveitarstjóri í Rangárþingi eystra og varaþingmaður, gefur kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi. Hún óskar eftir stuðningi í 2. sæti í prófkjörinu. Unnur Brá er 34 ára gömul og er lögfræðingur að mennt frá Háskóla Íslands en auk þess hefur hún stundað nám í opinberri stjórnsýslu (MPA). (meira…)
Drífandi vill að staðið verði við launahækkanir

Stjórn og trúnaðarráð stéttarfélagsins Drífanda vill að staðið verði við launaþátt núgildandi kjarasamninga. Önnur stéttarfélög hafa undanfarið ályktað að ekki eigi að standa við fyrirhugaðar launahækkanir fyrr en í sumar en stjórn og trúnaðarráð Drífanda telur mikilvægt að staðið verði við, af hálf vinnuveitanda, þá hófstilltu launahækkun sem koma á til framkvæmda 1. mars. Ályktun […]
Draumur hvers manns?

Hvaða karlmaður hefur ekki upplifað það að konan segir honum eitthvað merkilegt, en hann heyrir ekkert. Eða eins og kona myndi segja það, hann hlustar ekki. Þetta myndband hefur ekkert með karlrembu að gera, – er bara svolítið fyndið. (meira…)
Nokkrar hugmyndir að nýju Íslandi

Við ættum að byrja á því að ákveða hverslags þjóð við ætlum að vera. Margir tala um Nýja Ísland en þá verðum við líka að spyrja: Hvernig Ísland? Við getum nálgast viðfangsefnið eins og fyrirtæki sem setur sér markmið, framtíðarsýn og gildi. Mitt Ísland einkennist af frumkvæði og drifkrafti einstaklinga en þar býr vel menntuð […]
Sprenging í FES-inu í gærkvöldi

Um klukkan 19.15 í gærkvöldi barst lögreglu og slökkviliði tilkynning um mikla sprengingu við loðnubræðslu við höfnina og mikinn reyk. Tvær loðnubræðslur eru við höfnina í Vestmannaeyjum og talsverð vegalengd á milli þeirra. Í ljós kom að sprengingin varð í Fiskimjölsverksmiðju Ísfélagsins en ekkert tjón varð og engum varð meint af. (meira…)
Undankeppni söngvakeppni framhaldsskólanum í kvöld

Í kvöld, klukkan 21.00 verður undankeppni Söngvakeppni framhaldsskólanna haldin í sal Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum. Fimm keppendur hafa skráð sig til leiks en keppnin er opin öllum og því ekki úr vegi að bregða sér upp í Framhaldsskóla í kvöld að hlýða á stjörnur morgundagsins. (meira…)
og spurning hvernig andans menn taka í þá hugmynd.”Fyrir utan Guðlaugssund

frábæra náttúru (meira…)
Hljómsveitin Afrek vinnur að gerð geisladisks

Hljómsveitin Afrek vinnur nú að gerð geisladisks sem stefnt er að gefa út í apríl. Afrek kom fyrst fram á sjónarsviðið þegar sveitin gerði lagið Guðlaugssund og hélt styrktartónleika í kjölfarið um fallna sjómenn. Fjórir eru í sveitinni, þeir Helgi Tórshamar, Sævar Helgi Geirsson, Ágúst Tórshamar og Birkir Ingason. (meira…)
Erfið barátta Árna Matt
Árni Mathiesen, fyrrverandi fjármálaráðherra, hefur verið tvístígandi varðandi framboð í vor. Hann er fyrsti þingmaður Suðurkjördæmis en þykir hafa verið álíka sjaldséður þar og hvítur hrafn. En nú hefur hann fengið kjarkinn og stefnir á fyrsta sætið þar sem hann þarf að keppa við Árna Johnsen. (meira…)
Styrktartónleikar föstudagskvöld

Kvenfélagið Líkn var stofnað 14. febrúar 1909 og er því hundrað ára um þessar mundir. Líkn hefur frá stofnun félagsins unnið að ýmsum líknar- og félagsmálum, gefið fjölda tækja og búnað til sjúkrahússins ásamt því að styðja einstaklinga sem eru illa staddir félags- eða fjárhagslega. Líkn stendur fyrir Líknartónleikum í Höllinni föstudaginn 13. febrúar í […]
Sigurður í Syðra-Langholti vill leiða listann

Sigurður Ingi Jóhannsson hefur ákveðið að gefa kost á sér til forystu á lista Framsóknarflokksins Í Suðurkjördæmi. Sigurður Ingi hefur lengi tekið virkan þátt í starfi Framsóknarflokksins. Jafnframt hefur hann setið í sveitarstjórn Hrunamannahrepps í 15 ár í vor, þar af sjö ár sem oddviti og 4 ár sem varaoddviti. (meira…)
Fyrsta loðnan til Eyja

Í gærkvöldi kom Kap VE með um 400 tonn af loðnu sem var landað í Vinnslustöðinni. Loðnuna fengu skipverjar í þremur köstum en kastað var við Alviðru í tvígang sem litlu skilaði. Þriðja kastið var reynt vestur að Vík og það var gott en Kap þurfti að gefa frá sér um 300 tonn þar sem […]
Lögregla, slökkvilið og björgunarsveitin heimsóttu leikskóla bæjarins

Í dag, miðvikudaginn 11. febrúar er 112-dagurinn haldin um allt land. Af því tilefni fóru viðbragðsaðilar Neyðarlínunnar í heimsóknir á leikskóla bæjarins með blikkandi ljós og vælandi sírenur. Krakkarnir voru flest himinlifandi með heimsóknina enda fengu þau að skoða bílana og spjalla við slökkviliðs-, lögreglu og björgunarmennina. (meira…)
Samfylkingin með aukakjördæmisþing í Hveragerði

Samfylkingin í Suðurkjördæmi heldur aukakjördæmisþing sunnudaginn 15. febrúar á Hótel Örk í Hveragerði og hefst það kl. 13:30.Á þinginu verður ákveðin aðferð við val á framboðslista Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar þann 25. apríl. (meira…)
Kraftur í Eyjamönnum

Það er gaman að sjá svona frétt frá Vestmannaeyjum. Það er flott að á þessum krepputímum horfa Eyjamenn fullir bjartsýni til framtíðar.Menningarhús í bænum á örugglega eftir að skila bæjarfélaginu miklu. (meira…)
Síldin og súlukastið

Höfnin og Víkin í Eyjum iða af lífi þessa daga og hefur verið svo í margar vikur. Talsvert er þar um smásíld, sem fuglarnir nýta sér og hjá þeim er veisla uppá hvern dag. Og það er alltaf jafn stórkostlegt að sjá náttúruna í öllu sínu veldi. Að sjá Súluna steypa sér úr margra tuga […]