Hermann ánægður með stjórana

Hermann Hreiðarsson hvetur stjórn Portsmouth til að halda tryggð við Paul Hart og Brian Kidd og feli þeim að stjórna liðinu áfram en þeir voru ráðnir tímabundið í knattspyrnustjórastarfið eftir að Tony Adams var látinn taka poka sinn á dögunum. (meira…)
Straumurinn dýpkar innsiglinguna til Landeyjahafnar

Innsiglingin til Landeyjahafnar hefur verið að dýpka af náttúrulegum orsökum. Það skapar möguleika til notkunar gamla Herjólfs til siglinga á milli Eyja og Landeyja með minni frátöfum en reiknað hefur verið með. (meira…)
Bjóðum okkur ekki fram í Alþingiskosningum

Ákveðið hefur verið að prófkjör um val frambjóðenda Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi fyrir alþingiskosningar vorið 2009 fari fram 14. mars næstkomandi. Eins og ætíð eru margir orðaðir við prófkjörsframboð enda rík krafa um endurnýjun í kjördæminu. Meðal þeirra sem títt eru orðuð við framboð erum við undirritaðir bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum. (meira…)
Atvinnumál

Vinstri grænir eru komnir í ríkisstjórn með Samfylkingunni. Hvaða þýðingu hefur það fyrir land og þjóð á þessum erfiðu tímum sem framundan eru, að hér sé komin vinstri stjórn, minnihlutastjórn sem er studd og varin vantrausti af Framsóknarflokknum. Jafnvel heyrist að þessir flokkar myndi kosningabandalag til að gera það mögulegt að vinstri stjórn verði áfram […]
Andrés Rúnar gefur kost á sér
Andrés Rúnar Ingason hefur ákveðið að gefa kost á sér í 4.-5. sæti í forvali Vinstri grænna í Suðurkjördæmi, fyrir komandi kosningar til Alþingis. Andrés er þrítugur tveggja barna fjölskyldufaðir á Selfossi og hef starfað með Vinstri grænum frá stofnun þeirra (meira…)
Botninn dottinn úr gulldepluveiðum í bili

Botninn er dottinn úr gulldepluveiðunum í bili að minnsta kosti, en þessi óvænta búbót nemur nú um það bil 30 þúsund tonnum. Síðast veiddist hún djúpt suðvestur af landinu en þar versnaði veður í gær og eru síðustu skipin nú á landleið til löndunar. Óvissa er um framhaldið, enda liggur ekki fyrir nein vitneskja um […]
Jórunn vill 2. sætið

Nú í gjörbreyttu samfélagi og í aðdraganda kosninga hefur ungt fólk í auknum mæli sýnt það og sannað að það eigi fullt erindi í það verkefni sem framundan er hjá nýrri ríkisstjórn. Þess vegna og hef ég ákveðið að bjóða mig fram í 2. sæti á lista Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs í forvali í Suðurkjördæmi […]
Eysteinn Jónsson vil feta í fótsporin

Eysteinn Jónsson, bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins í Reykjanesbæ, hef ákveðið að gefa kost á mér í fyrsta til þriðja sæti á lista flokksins í Suðurkjördæmi í komandi alþingiskosningum. Ég er 38 ára gamall, þriggja barna faðir, með meistaragráðu (M.sc.) í rekstrarverkfræði frá Álaborgarháskóla en einnig er ég lærður fiskiðnaðarmaður frá Fiskvinnsluskóla Íslands. (meira…)
Matt Garner áfram í ÍBV

Nú rétt í þessu voru að berast þær fréttir að fyrirliðinn Matt Garner verði áfram í herbúðum knattspyrnuliðs ÍBV í sumar. Garner var með lausan samning og hefur verið sterklega orðaður við önnur lið í allan vetur en hefur nú komist að samkomulagi um nýjan samning. (meira…)
Agnarlítinn loðnukvóta

Þingmaður Frjálslynda flokksins, Grétar Mar Jónsson, spurði Steingrím J. Sigfússon sjávarútvegsráðherra að því á Alþingi í dag hvort hann ætlaði að skoða hvort gefa ætti út ,,agnarlítinn kvóta á loðnu eins og hann orðaði það. Sagðist Grétar Mar það ekki hafa teljandi áhrif á loðnustofninn þótt um 50 þúsund tonna kvóti yrði gefinn út til […]
Vakta loðnumiðin næstu daga

Ákveðið hefur verið að vakta öll grunn við sunnanvert landið þar sem von er til að loðna gangi í einhverju magni. Enn hefur ekki tekist að mæla nægilegt magn til þess að fiskifræðingar treysti sér til að gefa út byrjunarkvóta á loðnuveiðunum. Nú er því veitt af 15.000 tonna rannsóknakvóta sem sjávarútvegsráðherra gaf út í […]
Guðni vill 4. sætið hjá Framsókn

Ég, Guðni Ragnarsson hef ákveðið að gefa kost á mér í 4. sæti á lista framsóknarmanna í Suðurkjördæmi fyrir komandi þingkosningar. Ég vil taka þátt í uppbyggingu betra samfélags með hugsjónum framsóknarflokksins að leiðarljósi. Ég tel mjög mikilvægt að fólk úr öllum stöðum og stéttum taki þátt í uppbyggingu Íslands. (meira…)
Netprófkjör Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi

Á aukakjördæmisþingi samfylkingarfólks í Suðurkjördæmi, sem haldið var sunnudaginn 15. febrúar á Hótel Örk í Hveragerði, var ákveðið að velja í 5 efstu sætin á framboðslista flokksins í komandi alþingiskosningum með netprófkjöri þann 7. mars. Rétt til þátttöku í netprófkjörinu hafa allir félagar í Samfylkingunni í Suðurkjördæmi auk þeirra kjósenda Suðurkjördæmis sem sækja sér aðgangslykil […]
Loðnan finnst ekki enn

Engar jákvæðar fréttir var að fá af leit skipa á vegum Hafrannsóknastofnunar að loðnu í gær, samkvæmt upplýsingum frá Þorsteini Sigurðssyni, fiskifræðingi og sviðsstjóra á stofnuninni. Þorsteinn sagði um miðjan dag í gær að rannsóknarskipið Árni Friðriksson hefði verið að leita út af Suðausturlandi og ekkert fundið. Þá hefði skip frá Vestmannaeyjum, sem tekur þátt […]
Vilhjálmur vill 3. til 4. sætið hjá Sjálfstæðismönnum

Vilhjálmur Árnason hefur ákveðið að gefa kost á sér í 3. – 4. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi. Vilhjálmur er fæddur og uppalinn í Skagafirði en er nú búsettur í Grindavík þar sem hann starfar sem lögreglumaður. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Vilhjálmi sem má lesa hér að neðan. (meira…)
Endurskoðar áform um Suðurlandsveg

Kristján Möller, samgönguráðherra. Horfa á myndskeið með frétt Samgönguráðherra hefur ákveðið að endurskoða áform um að Suðurlandsvegur yfir Hellisheiði verði fjögurra akreina. Hann vill hins vegar hafa kaflann milli Hveragerðis og Selfoss tvo plús tvo veg og byrja á honum. Fyrir síðustu þingkosningar kepptust stjórnmálamenn við að lofa fjögurra akreina hraðbraut milli Reykjavíkur og Selfoss. […]
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi
Ákveðið hefur verið að prófkjör um val frambjóðenda Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi fyrir alþingiskosningar vorið 2009 fari fram 14. mars næstkomandi. Val frambjóðenda fer fram með tvennum hætti: (meira…)
Celtic og Rangers vildu fá Hermann

Skosku stórliðin Celtic og Rangers reyndu bæði að fá Hermann Hreiðarsson til liðs við sig í janúarglugganum en Tony Adams þáverandi knattspyrnustjóri Portsmouth kom í veg fyrir að Eyjamaðurinn færi frá Portsmouth. Þetta kemur fram í viðtali við Hermann í skoska blaðinu Sunday Mail í dag. (meira…)
Bæjarráð vill 30 til 50 þúsund tonna loðnukvóta tafarlaust

Bæjarráð Vestmannaeyja hélt aukafund í gær en eina fundarefnið var loðnuveiðar. Bæjarráð skorar á sjávarútvegsráðherra að gefa tafarlaust út 30 til 50 þúsund tonna upphafskvóta í loðnu. Í greinargerð með bókun bæjarráðs segir m.a. að miðað við stöðuna í efnahagslífi þjóðarinnar, eigi að leita allra leiða til að skapa þjóðarbúinu tekjur, m.a. með loðnuveiðum. Bókunina […]
Hvetur ríkisstjórnina til að hætta mannaveiðum en hefja loðnuveiðar strax

Stjórnarfundur Skipstjóra og- stýrimannafélagsins Verðanda haldinn þann 14-02-2009 skorar á Ríkisstjórn Íslands að láta hefja loðnuveiðar strax og telur að í raun hefðu þær átt að hefjast fyrir nokkrum vikum síðan. (meira…)