Málið fellt niður
Samkvæmt tilkynningu sem Árna Johnsen hefur borist bréfleiðis frá ríkissaksóknara hefur mál vegna kæru Gunnars Gunnarssonar aðstoðarvegamálastjóri á hendur Árna fyrir ærumeiðingarbrot, verið fellt niður. (meira…)
Hermann frá vegna flensu?

Óvíst er hvort Hermann Hreiðarsson getur spilað með Portsmouth í dag þegar liðið mætir nýliðum Stoke á útivelli í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Hermann, sem hefur skorað í síðustu tveimur leikjum Portsmouth, nældi sér í flensu í vikunni og ekki víst að hann verði búinn að ná sér í tæka tíð. (meira…)
Björgvin G. Sigurðsson opnaði kosningaskrifstofu í dag
Björgvin G. Sigurðsson, alþingismaður og oddviti Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi gefur kost á sér í 1. sæti á lista flokksins fyrir Alþingiskosningarnar 25. apríl n.k. Prófkjör verður hjá Samfylkingunni 7. mars.n.k og opnaði Björgvin kosningaskrifstofu í Tryggvaskála á Selfossi kl. 17:00 í dag og varð þar með fyrstur frambjóðenda allra flokka að opna skrifstofu og var […]
Flug hafið að nýju milli Eyja og Bakkaflugvallar

Flugfélag Vestmannaeyja hefur á ný hafið flug milli Bakkaflugvallar og Eyja. Um miðjan nóvember hættu félagið flugi milli þessara staða vegna samdráttar í farþegaflutningum. Ætlunin var að hefja flug til Bakka á ný þann 1. apríl næstkomandi en vegna eindreginna óska var byrjað að fljúga á ný 12. febrúar. (meira…)
Bankarnir sýna Alþingi óvirðingu

Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, kvartaði undan því á Alþingi í morgun að enn hafi ekki borist svör við tveggja mánaða gamalli fyrirspurn frá henni um bifreiðahlunnindi fyrrverandi og núverandi starfsmanna bankanna. Hún sagði bankanna sýna Alþingi óvirðingu. (meira…)
Konur og bílar?
Stundum er sagt að konur kunni ekki að leggja bílum í stæði og karlar geti bara hugsað um eitt í einu. Af hvoru kyninu ökumennirnir í þessu myndbandi eru, skal ósagt látið. En öll eru atvikin bráðfyndin í óheppni sinni og hægt að hlæja svolítið að þeim. (meira…)
Stuðningsmenn Eyþórs Arnalds hvetja hann til að leiða lista Sjálfstæðismanna

Stuðningsmenn Eyþórs Arnalds létu í vikunni Capacent Gallup framkvæma skoðanakönnun á meðal kjósenda í Suðurkjördæmi. Í könnuninni er spurt hvort kjósendur í Suðurkjördæmi vilji sjá Árna M. Mathiesen eða Eyþór Arnalds leiða lista Sjálfstæðismanna. Af þeim sem tóku afstöðu vildu 63.9% sjá Eyþór leiða listann en 36,1% Árna. Úrtak könnunarinnar var 800 manns en svarhlutfallið […]
Bæjarstjórn harmar skerðingu á flugumferðaþjónustu

Bæjarstjórn Vestmannaeyja tók fyrir á fundi sínum í gær fyrirhugaða skerðingu á flugumferðaþjónustu við Vestmannaeyjaflugvöll. Bæjarstjórn harmar ákvörðunina og bendir á að vegna sérstöðu Vestmannaeyja megi ekki skerða niður flugþjónustu með jafn afgerandi hætti og fyrirhugaðar aðgerðir fela í sér. Bókun bæjarstjórnar má lesa hér að neðan. (meira…)
Nokkur skip að veiðum

Nokkur loðnuskip eru nú að veiðum vestur af Reykjanesi. Þar er þokkalegt veður. Þar voru í morgun m.a. Aðalsteinn Jónsson SU og Lundey NS að veiðum. Börkur NK var einnig kominn á miðin. Aðalsteinn Jónsson SU var nýkominn á miðin í morgun til að veiða það sem þeir eiga eftir af sínum skammti. Þorsteinn Kristjánsson […]
Steini Gunn kjörinn formaður knattspyrnudeildar Grindavíkur

Á aðalfundi knattspyrnudeildar Ungmennafélags Grindavíkur, sem haldinn var í gærkvöldi, var Þorsteinn Gunnarsson, fyrrverandi blaðamaður á Fréttum, kjörinn formaður deildarinnar. (meira…)
Lúðvík býður sig ekki fram

Lúðvík Bergvinsson, þingmaður og þingflokksformaður Samfylkingarinnar hefur ákveðið að bjóða sig ekki fram í komandi kosningum til Alþingis. Lúðvík hefur setið á þingi í 14 ár en í tilkynningu frá Lúðvík segir hann eðlilega kröfu að breyting verði á skipan Alþingis. Tilkynninguna má lesa hér að neðan. (meira…)
Heildargjöld 191 þúsund krónur fyrir 220 fm hús

Talsvert hefur verið kvartað yfir hærri gjöldum Vestmannaeyjabæjar, sér í lagi fasteignagjöldum sem íbúar telja að hafi hækkað umtalsvert. Fasteignagjöld Vestmannaeyjabæjar eru miðuð við sömu prósentutölu, 0,42% eins og undanfarin ár en Fasteignamat ríkisins hefur hins vegar hækkað mat á verði fasteigna og lóða. Heildarreikningurinn með vatnsgjaldi fyrir um 200 fm hús er 190.862 kr. […]
Ábending var send til barnaverndarnefndar Vestmannaeyja
Héraðsdómur Reykjaness dæmdi 25 ára karlmann í tveggja ára fangelsi í síðustu viku fyrir kynferðisbrot gegn barnungri dóttur sinni. Brotin gegn stúlkunni hófust þegar hún var tæplega eins árs gömul en hún er nú tæplega fjögurra ára gömul. DV fjallaði um málið á þriðjudag en maðurinn dvaldi ásamt barninu í Vestmannaeyjum um tíma. (meira…)
Ragnheiður Elín Árnadóttir sækist eftir 1. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins
Ég hef ákveðið að gefa kost á mér til forystu Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi og óska eftir stuðningi í 1. sæti listans í prófkjöri sem fram fer 14. mars. Undanfarnar vikur hefur verið kallað eftir breytingum og endurnýjun í forystusveit flokksins í kjördæminu. Mikilvægt er að nýta þann kraft sem á að endurspeglast í opnum og […]
Hjörtur vill 5. sætið hjá Samfylkingunni

Hjörtur Guðbjartsson heiti ég og er 25 ára Reykjanesbæingur. Ég er fæddur og uppalinn í Innri-Njarðvíkurhverfi Reykjanesbæjar þar sem ég bý nú með unnustu minni, Vilborgu Pétursdóttur félagsráðgjafanema. Ég er útskrifaður með stúdentspróf frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja og nem nú stjórnmálafræði við Háskóla Íslands auk þess að sinna stöðu framkvæmdastjóra hjá Lyfta.is í Reykjanesbæ. (meira…)
Georg Eiður sækist eftir öðru sæti hjá Frjálslyndum

Vegna fjölda áskoranna í öllu Suðurkjördæmi, þá hef ég ákveðið að taka áskorun um það að sækjast eftir öðru sæti hjá Frjálslynda flokkinum. Ég hef verið útgerðarmaður í Vestmannaeyjum í 22 ár og starfað við fiskveiðar og fiskvinnslu frá unga aldri. Ég er giftur Matthildi Maríu Eyvindsdóttur og ég á fjögur börn. (meira…)
Arndís sækist eftir 2-3 sæti

Arndís Soffía Sigurðardóttir sækist eftir 2-3 sæti í forvali vegna framboðslista Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs fyrir komandi alþingiskosningar. Arndís er 30 ára og býr að Smáratúni í Fljótshlíð ásamt Ívari Þormarssyni, matreiðslumanni og saman eiga þau tvö börn. Að Smáratúni reka þau ferðaþjónustu ásamt foreldrum Arndísar, Sigurði Eggertssyni og Guðnýju Geirsdóttur. (meira…)
Bjarni Hólm til Keflavíkur

Bjarni Hólm Aðalsteinsson skrifar í dag undir samning hjá úrvalsdeildarliði Keflavíkur í knattspyrnu. Bjarni hefur leikið með ÍBV síðan 2005 en var samningslaus. Hann var hins vegar með samningstilboð, bæði frá Keflavík og ÍBV en samkvæmt heimildum Eyjafrétta, bauð Keflavík einfaldlega betur. Bjarni hefur verið einn af sterkari leikmönnum liðsins og mikill sjónarsviptir af honum […]
Tribute tónleikar um Janis Joplin í Höllinni

Hin goðsagnakennda Janis Joplin lifnar við í Höllinni Vestmannaeyjum laugardagskvöldið 28. febrúar næstkomandi. Lífslaupi söngkonunnar, sem lést fyrir aldur fram af völdum fíkniefnaneyslu aðeins 27 ára gömul árið 1970, er gert skil í frábærri túlkun Bryndísar Ásmundsdóttur sem hefur farið á kostum í Íslensku Óperunni að undanförnu og er talin stórkostleg í túlkun sinn á […]
Gefur kost á sér í 4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi

Íris Róbertsdóttir, grunnskólakennari í Vestmannaeyjum gefur kost á sér í fjórða sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi. Í fréttatilkynningu sem Íris sendi frá sér segir hún að nauðsynlegt sé fyrir flokkinn að endurnýja framboðslistann fyrir næstu Alþingiskosningar, ekki endilega vegna þess að núverandi þingmenn hafi staðið sig illa, heldur vegna þess að flokkurinn sé marinn […]