Skúli sækist eftir 1. sæti Samfylkingarinnar

Nú eru gerðar kröfur um breytingar í stjórnmálum á Íslandi. Það er lýst eftir fólki sem hefur víðtæka þekkingu og reynslu til að takast á við erfið verkefni framundan. Það þarf kjark og áræði til að vinna að stefnumótun og viðreisn hins nýja Íslands. Það þarf traust til að uppbyggingin megi takast sem best. (meira…)

Víða komið við á fundi VG í gær

Sex frambjóðendur í prófkjöri Vinstri Grænna mættu á framboðsfund í Kaffi kró í gærkvöld en Atli Gíslason, þingmaður gat ekki mætt þar sem hann var bundinn vegna Seðlabankafrumvarpsins, sem stoppaði í nefnd í gær. Fundurinn var vel sóttur en um þrjátíu manns sátu fundinn. (meira…)

Nýir tímar �? ný vinnubrögð

Í dag eru Framsóknarmenn að fá með póstinum atkvæðaseðil sinn vegna vals á lista til alþingiskosninga. Sú aðferð að senda hverjum framsóknarmanni atkvæðaseðil er lýðræðislegri en fulltrúaval kjördæmisþinga en um leið aðferð til að halda niðri kostnaði við opin prófkjör. Þessi aðferð er einnig í takt við þá tíma sem við lifum þ.e. aukið lýðræði […]

Tvö fíknefnamál í vikunni

Lögreglan hafði í ýmis horn að líta í vikunni sem leið við að aðstoða borgarana við hin ýmsu mál sem upp komu. Tvö fíkniefnamál komu upp um helgina og var í öðru tilvikinu um að ræða grun um sölu á fíkniefnum en við húsleit í heimahúsi fundust um 50 gr. af amfetamíni sem karlmaður á […]

Sigurlás �?orleifsson ráðinn þjálfari 2.flokks ÍBV

Knattspyrnuráð ÍBV hefur samið við Sigurlás Þorleifsson um þjálfun 2.flokks félagsins. Sigurlás er einn reynslumesti þjálfari Eyjamanna og hefur verið viðloðandi þjálfun yngri flokka ÍBV síðustu ár en hann hefur einnig þjálfað meistaraflokka félagsins. Hann þjálfar nú 3.flokk félagsins og mun gera það áfram samhliða þjálfun 2.flokks. (meira…)

Mikilvægast að verja þá grunn­- þjónustu sem er til staðar

Það hafa orðið ótrúlegar breytingar hér á landi á skömmkum tíma. Efnahagshrunið og afleiðingar þess hafa vakið fólk til umhugsunar og breytt gildismati. Ljóst er að erfiðir mánuðir eru framundan og það mun þrengja að fólki en í öllum þrengingum felast einnig færi til sóknar. (meira…)

Treystum við bankaflokkunum?

Ófarir Íslendinga í efnahagsmálum eiga sér margslungnar rætur en tvennt stendur þar upp úr. Annarsvegar samþykkt EES samningsins sem ákveðin var á tveggja manna fundi þáverandi formanna Alþýðuflokks og Sjálfstæðisflokks. Hinsvegar einkavæðing ríkisbankanna sem lyktaði með því að aðilar tengdir Sjálfstæðisflokki, Framsóknarflokki og Samfylkingu fengu hver sinn bankann. (meira…)

Björk vill 2. sætið hjá Sjálfstæðismönnum

Björk Guðjónsdóttir, alþingismaður, hefur ákveðið að bjóða sig fram í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi. Hún sækist eftir 2. sæti á listanum og óskar eftir stuðningi í prófkjörinu sem fram fer 14. mars nk. Björk var kjörin á þing árið 2007. Hún er búsett í Reykjanesbæ þar sem hún hefur starfað að sveitarstjórnarmálum um árabil. (meira…)

Guðbjörn sækist eftir 3. sætinu hjá Sjálfstæðisflokki

Ég hef ákveðið að bjóða mig fram í 3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, sem fara á fram 14. mars næstkomandi. Ég á að baki fjölbreytt, skemmtilegt og vinnusamt líf og vona að það breytist ekki í framtíðinni. (meira…)

�?óra vill 2. – 3. sæti hjá Samfylkingunni

Þóra Þórarinsdóttir fyrrverandi ritstjóri fréttablaðsins Gluggans á Suðurlandi hefur ákveðið að gefa kost á sér í 2.-3ja sæti á lista Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi. Í fréttatilkynningu frá Þóru segir:Á Íslandi hafa verið umbrotatímar. Framundan er tími mikilvægrar uppbyggingar sem sinna þarf að af vandvirkni, krafti og auðmýkt. Fjölmargir einstaklingar víðs vegar að úr kjördæminu hafa að […]

Grétar Mar leiðir lista Frjálslyndra

Grétar Mar Jónsson, þingmaður mun leiða lista Frjálslynda flokksins í Suðurkjördæmi í komandi kosningum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá flokknum. Grétar hefur setið á þingi síðan 2007 og hefur auk þess verið þingflokksformaður Frjálslyndra undanfarið. (meira…)

�?etta er mitt mark allan tímann

Hermann Hreiðarsson segist hafa skorað jöfnunarmark Portsmouth gegn Stoke í ensku úrvalsdeildinni í fyrradag. Stoke leiddi 2-1 þar til í viðbótartíma að Hermann átti skot sem að fór af Ryan Shawcross og í netið. Markið hefur verið skráð sem sjálfsmark hjá Shawcrass en Hermann vill hins vegar eiga markið. (meira…)

Guðrún gefur kost á sér í 1. – 2. sæti hjá Samfylkingu

Ég undirrituð gef kost á mér í 1.-2. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi 7. mars n.k. Ég er 46 ára gömul, búsett í Vestmanneyjum og starfa sem sérfræðingur í kjaramálum. Í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu tel ég að 16 ára reynsla mín sem forystumaður í stéttarfélagi og kjarabaráttu, áratuga reynsla af félagsmálum og 8 […]

�?rettán í framboði hjá Framsókn

Það eru 13 sem bjóða sig fram í póstkosningu félagsmanna við val í 6 efstu sætin á lista Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi vegna alþingiskosninganna 25. apríl 2009. En frestur til að skila inn framboðum, rann út í gær, 20. febrúar. Í hópnum eru 7 konur og 6 karlar og er yngsti frambjóðandinn er 18 ára og […]

Hilmar gefur kost á sér í 4. sæti hjá Samfylkingu

Ég, Hilmar Kristinsson formaður Uglu ­ ungra jafnaðarmanna á Suðurnesjum gef kost á mér í 4. sæti á lista Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi. Ég er 28 ára gamall Keflvíkingur, búsettur á stúdentagörðum Keilis í Reykjanesbæ. Ég er með BA gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands og stunda meistaranám í opinberri stjórnsýslu auk þess að starfa hjá […]

Vinstri græn efna til kynningarfunda

Á aðalfundi Kjördæmisráðs VG í Suðurkjördæmi hinn 31. jan . sl. var samþykkt að viðhafa forval um skipan efstu sæta í lista hreyfingarinnar við alþingiskosningarnar 25. apríl nk. Í komandi viku fá allir félagar í VG í Suðurkjördæmi senda kjörseðla og þá fer fram fer póstkosning. (meira…)

Hermann vinsæll meðal stuðningsmanna Portsmouth

Íslenski landsliðsfyrirliðinn Hermann Hreiðarsson hefur heldur betur hrifið stuðningsmenn Portsmouth á nýjan leik með frammistöðu sinni í undanförnum leikjum liðsins í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Eftir bekkjarsetu lengst af í vetur skoraði Hermann í leikjum gegn Liverpool og Manchester City og átti stærstan þátt í jöfnunarmarki liðsins gegn Stoke City í dag. (meira…)

Hermann skorar í þriðja leiknum í röð

Varnarjaxlinn Hermann Hreiðarsson skorar nú sem aldrei fyrr í enska boltanum en Hermann skoraði sitt þriðja mark í jafn mörgum leikjum með Portsmouth í ensku úrvalsdeildinni. Hermann og félagar gerðu jafntefli gegn Stoke, sem í eina tíð tengdist m.a. Vestmannaeyjum en lokatölur leiksins urðu 2:2 og skoraði Hermann síðasta mark leiksins á lokamínútunni. (meira…)

Sævar �?ór Gíslason áfram með Selfyssingum

Sævar Þór Gíslason hefur skrifað undir samning við Selfoss og mun því leika með liðinu á næstu leiktíð. Þetta kom fram í útvarpsþættinum Fótbolta.net. Sævar Þór hafði verið að íhuga að leggja skóna á hilluna en Gunnlaugur Jónsson þjálfari liðsins greindi frá því að Sævar hefði skrifað undir samning í dag. (meira…)

Ungur fíkniefnasali handtekinn í morgun

Karlmaður á tvítugsaldri var handtekinn í Vestmannaeyjum í morgun, grunaður um að hafa selt fíkniefni til ungmenna í bænum. Lögregla gefur ekki upp nákvæmlega hversu mikið magn af fíkniefnum maðurinn hafði í fórum sínum þegar hann var handtekinn, en magnið mun vera ríflega til einkanota. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.