Víkjumst ekki undan ábyrgð

Þangað til um daginn hafði Sjálfstæðisflokkurinn verið samfellt í ríkisstjórn í 18 ár – næstum allan þann tíma í stjórnarforystu. Á þessu skeiði urðu gríðarlegar framfarir á Íslandi, – lífskjör þjóðarinnar stórbötnuðu og velmegun jókst á öllum sviðum. (meira…)
Frambjóðendur Samfylkingarinnar á súpufundi í Alþýðuhúsinu á laugardag

Frambjóðendur í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi bjóða Eyjamönnum í súpu og fjörugar umræður um stjórnmál í Alþýðuhúsínu laugardaginn 28. febrúar. Fundurinn hefst kl. 12 og er öllum opinn. Fundurinn er liður í fundaröð frambjóðendanna um kjördæmið. Kosning í prófkjörinu fer fram í gegnum netið dagana 5-7. mars, nánari upplýsingar má finna á www.samfylking.is. (meira…)
Kynferðisleg áreitni

Við heyrðum sögu um daginn þar sem starfskona í stóru fyrirtæki kvartaði við yfirmann sinn undan kynferðislegri áreitni sem hún yrði fyrir í vinnunni. Yfirmaðurinn spurði hvað hefði gerst og hún sagðist alltaf fá athugasemdir frá sama starfsmanninum um að það væri svo góð lykt af hárinu á henni. (meira…)
Elísa keppir í kvöld í beinni á Skjá1

Elísa Guðjónsdóttir, 19 ára gömul Eyjamær keppir í kvöld í Ungfrú Reykjavík sem verður sýnt beint á Skjá1 í kvöld. Keppnin hefst klukkan 22.00 en Elísa er dóttir Gauja á Látrum og Önnu Svölu en þau hjónin opnuðu einmitt Svölukot um síðustu helgi. (meira…)
Eru breytingar á stjórnarskrá og kosningalöggjöf brýnustu verkefnin?

Dettur einhverjum heilvita skipstjóra í hug að láta áhöfnina fara að skúra messann, í stað þess að koma vélinni í gang, ef skipið er vélarvana í ölduróti? Það er dapurlegt að fylgjast með hvernig reynt er að nota ástandið sem skapast hefur hér, í kjölfar efnahagshrunsins, til að gera byltingar á innviðum samfélagsins. Það er […]
Samgönguráðherra lofar að taka aftur lokun á flugvellinum og flugsstjórn

Um leið og fréttir bárust af því að samgönguráðuneytið hefði valið til sparnaðar eina af hugmyndum Flugstoða með því að setja lokanir og takmarkanir á þjónustutíma Vestmannaeyjaflugvallar, þá hafði ég samband við Kristján Möller samgönguráðherra og óskaði eftir utandagskrárumræðu í Alþingi um þessa fáránlegu aðgerð. (meira…)
Saga af leiguliða

Trillueigandi á Suðurnesjum hugðist gera góðverk með því að lána atvinnulausum nágranna sínum trillu sem hann átti og hafði ekki nein sérstök not fyrir. Gerðu þeir félagar bátinn kláran og leigðu á hann kvóta, eins og lög gera ráð fyrir, tonn af hvoru ýsu og þorski. Leiguverð á þorski var 220 kr. á kílóið en […]
Tæp átta og hálf milljón kom til Vestmannaeyja

Íþrótta og Ólympíusamband Íslands úthlutaði í dag, styrkjum úr ferðasjóði íþróttafélaga, vegna keppnisferða á árinu 2008. Alls var úthlutað tæplega 60 milljónum króna til 123 félaga. Í fyrra var þessi upphæð 30 milljónir. Í hlut félaga innan Íþróttabandalags Vestmannaeyja komu 8.453.197 kr. sem að langstærstum hluta fer til ÍBV íþróttafélags. (meira…)
Samkomulag um starfslok

Á fundi sveitarstjórnar Skeiða-og Gnúpverjahrepps í gær var gert samkomulag milli mín og sveitarstjórnar um starfslok mín. Mér kom það gjörsamlega í opna skjöldu að eitthvað væri athugavert við vísitöluútreikninga launa minna, enda aldrei verið gerðar athugasemdir hvorki af endurskoðanda eða öðrum þar til nú. (meira…)
Árni Mathiesen ekki í framboð

Árni M. Mathiesen, alþingismaður og fyrrverandi ráðherra, hefur sent kjördæmisráði Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, að hann ætli ekki að gefa kost á sér í prófkjöri flokksins í kjördæminu, sem haldið verður 14. mars. (meira…)
Níu mörk Sigurðar dugðu ekki

Stórleikur Sigurðar Ara Stefánssonar með Elverum gegn Fyllingen í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld dugði liðinu ekki til sigurs. Sigurður Ari skorðaði níu mörk en lið hans tapaði með tveggja marka mun, 34:32, og situr áfram í 4. sæti deildarinnar með 22 stig eftir 17 leiki, átta stigum á eftir Fyllingen. (meira…)
Frambjóðendur og formannsefni VR funda í Eyjum

Allsherjaratkvæðagreiðsla meðal félagsmanna VR um framboð til formanns félagsins, einstaklingsframboð til stjórnar og listaframboð til stjórnar og trúnaðarráðs verður haldinn í fyrst skipti í sögu VR . Félagsmönnum VR í Eyjum gefst tækifæri til þess að hitta frambjóðendur til formanns og stjórnar VR á fimmtudagskvöld á Café Volcano ef flogið verður seinni partinn. (meira…)
�?skudagurinn hátíðlegur í Eyjum

Það var mikið fjör í miðbæ Vestmannaeyja í morgun þegar börn bæjarins fór um, sungu í fyrirtækjum og verslunum og fengu eitthvað sniðugt fyrir. Hefð hefur skapast fyrir því að börnin hafi fram að hádegi til að koma við en búningar þeirra voru eins fjölbreyttir og þeir voru margir. Eins og sjá má á myndinni […]
Sjö skip á Gulldepluveiðum djúpt suður af Eyjum

Sjö skip eru nú á Gulldepluveiðum djúpt suður af Vestmannaeyjum. Öll fengu þau einhvern afla í gær en bræla og leiðindaveður er á svæðinu og því ekki hægt að kasta í morgun. Guðmundur Guðmundsson, skipstjóri á Hugin VE, sagði í samtali við Útveginn að menn vonuðust til að úr rættist með veður þannig að hægt […]
Lautarmaður býður sig fram

Ég undirritaður gef kost á mér í 1.-4. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi 7. mars næst komandi. Ég er 59. ára gamall Eyjamaður, búsettur á Selfossi og starfa þar sem verkefnisstjóri. Málaflokkar mínir eru íþrótta- forvarna- tómstunda- og menningarmál hjá Sveitarfélaginu Árborg. Samfélagið hrópar á breytingar í ljósi efnahagshrunsins, m.a.kallar á breytingar á starfsemi […]
Bilun í samfösun á vélum olli óhappinu

Þegar Herjólfur var að leggja af stað í seinni ferð Herjólfs til Þorlákshafnar, síðdegis í dag, kom upp bilun í samfösun á vélum og talið var að stýrið hefði rekist aðeins niður í botninn. Þess vegna var settur niður kafari til að kanna það en allt reyndist í fullkomnu lagi. Við þetta tafðist brottför skipsins […]
Herjólfur bilaði við heimkomuna

Farþegaskipið Herjólfur bilaði þegar skipið var komið í heimahöfn en verið var að l snúa skipinu í höfninni,þegar bilunin kom upp. Samkvæmt því sem næst verður komist var bilunin ekki alvarleg en til öryggis var gripið til þess ráðs að leggja skipinu að næsta bryggjukanti við Kleifarbryggju svo hægt væri að kanna skemmdirnar. (meira…)
Bryggjukanturinn smúlaður

Hafnsögubáturinn Lóðsinn var í botni Friðarhafnar í morgun að smúla bryggjukantinn. Öllu jöfnu er kanturinn ekki þrifinn en dælur í fráveitubúnaði Fiskimjölsverksmiðju VSV bilaði þannig að úrgangur sem dæla átti frá verksmiðjunni, lenti í höfninni. Lýsisgrúturinn hefur legið í dekkjum á kantinum þannig að skip sem lögðust að bryggju fengu grútinn í síðuna. (meira…)
Árni Rúnar sækist eftir 2. til 4. sæti á lista Samfylkingarinnar

Íslenskt samfélag stendur á tímamótum í kjölfar þess að fjármálakerfið og gjaldmiðillinn okkar hrundu á síðasta ári. Eftirlitsaðilar, sem áttu að gæta almannahagsmuna, brugðust og íslenska ríkið þurfti að leita skjóls hjá Alþjóðagjaldeyrisstjóðnum, aðrir möguleikar voru einfaldlega ekki fyrir hendi. Okkar bíður endurreisn á íslensku fjármála- og efnahagskerfi. (meira…)
Anna Margrét býður sig fram í 1.- 3. sæti hjá Samfylkingunni

Anna Margrét Guðjónsdóttir, forstöðumaður skrifstofu Sambands íslenskra sveitarfélaga í Brussel, býður sig fram í 1.-3. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi. Framboð hennar er fyrst og fremst grundvallað á þeirri þekkingu og reynslu sem hún hefur af sveitarstjórnar- og byggðamálum bæði hér á landi og innan Evrópusambandsins. (meira…)