Prófkjör – Express

Prófkjör á ljóshraða í Suðurkjördæmi. Það líða ekki 3 vikur frá því að leikreglur eru settar í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi og þar til prófkjörið fer fram. Flestir frambjóðendur hafa tvær vikur til þess að kynna sig í öllu kjördæminu allan Reykjanesskagann, Suðurlandsundirlendið, Vestmannaeyjar og Hornafjörð. Á sama tíma þarf að hanna kynningarefni, skrifa greinar, […]

Rútufyllir hjá Árna Johnsen á Selfossi

Rútufyllir var hjá Árna Johnsen á rútufundi við Pylsuvagninn hjá Ölfusárbrú á Selfossi í kvöld. Þetta var einstæður fundarstaður í rútu frá Guðmundi Tyrfingssyni og boðið upp á pylsur og kók sem Ingunn Guðmundsdóttir í Pylsuvagninum bar fram og fór vel í fundargesti. Snaggaraleg þjóðmála- og kjördæmisumræða fór fram með góðri þátttöku rútugesta. Fleiri myndir […]

Vestmannaeysk fiskiskip 42 talsins

Reykjavík er heimahöfn flestra fiskiskipa eða alls 88 í lok síðasta árs samkvæmt samantekt Hagtíðinda sem byggja á skrá Siglingamálastofnunar. Þar á eftir kemur Grindavík með 81 skip skráð. Í Reykjavík voru einnig flestir opnir fiskibátar með heimahöfn, alls 35, en 30 bátar áttu heimahöfn í Hafnarfirði. Flest vélskip áttu heimahöfn í Grindavík eða 66 […]

Grímur Gíslason sækist eftir 3. sætinu

Grímur Gíslason, framkvæmdastjóri, hefur ákveðið að gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi og sækist eftir stuðningi í 3ja sætið. Kallað hefu verið eftir uppstokkun og endurnýjun í forystusveit á framboðslistum. Það er kallað eftir fólki sem er tilbúið að takast á við þau krefjandi verkefni sem bíða. Fólki sem hefur reynslu og […]

Oddný G Harðardóttir í 2. sæti

Nú þurfum við íbúar og stuðningsmenn Samfylkingar á Suðurlandi að velja okkur frambjóðendur á lista til Alþingiskosninga. Það er mikilvægt að sá listi sem nú er valin nái að spegla kjördæmið allt, og þá stöðu sem uppi er á hverjum stað. Að á listann raðist fólk sem sýnt hefur í verki að það geti tekist […]

Hvað klikkaði, loðnan, ráðherra eða Hafró?

Gífurlegt tekjutjón er orðið staðreynd hjá sjávarútvegsbæjum Suðurkjördæmis vegna vandræðagangs ráðamanna þjóðarinnar og Hafrannsóknarstofnunnar í ákvörðunartöku hvort leyfa átti loðnuveiðar og gefa út kvóta fyrir nokkrum vikum þegar loðnan kom upp á landgrunnið með suðurströndinni. (meira…)

Auðlindir og framfarir

Brýnasta verkefni okkar Íslendinga er að horfa fram á veginn og hefja kröftugt uppbyggingarstarf nú þegar. Það er nauðsynlegt að skapa atvinnulífinu nýtt svigrúm og ný tækifæri til að nýta krafta þeirra fjölmörgu, sem misst hafa vinnuna undanfarna mánuði. Við eigum að fara í opinberar og mannaflsfrekar framkvæmdir, aðstoða einstaklinga með góðar hugmyndir við að […]

Engin ákvörðun um að taka aftur lokun á flugvellinum og flugstjórn

Eins og greint var frá á dögunum stefnir í að flugvöllurinn í Vestmannaeyjum loki klukka 20.30 yfir sumartímann og að engir flugumferðastjórar verði við völlinn. Árni Johnsen, þingmaður skrifaði grein í síðasta tölublað Frétta þar sem hann fullyrðir að samgönguráðherra lofi að taka aftur lokun á flugvellinum og flugstjórn. Róbert Marshall, aðstoðarmaður samgönguráðherra segir hins […]

Skarst á gagnauga eftir að hafa fengið glas í höfuðið

Það var frekar rólegt hjá lögreglu í vikunni sem leið og um helgina. Að vanda þurfti lögreglan að aðstoða borgarana vegna hinna ýmsu mála sem upp koma. Aðfaranótt sl. laugardags var stúlka á 18. ári staðin að því að reyna að komast inn á veitingastað, þar sem aldurstakmark er 18 ára, með því að framvísa […]

Afrek með tvö ný lög á heimasíðu sinni

Eins og greint var frá á dögunum hefur hljómsveitin Afrek verið í hljóðveri undanfarið og hyggur á útgáfu á breiðskífu á næstunni. Nú hafa hljómsveitarmeðlimir sett tvö lög á heimasíðu bandsins en það eru lögin Í minni veröld og Ég er að segja það. Hægt er að komast inn á vefsíðu sveitarinnar hér að neðan. […]

�?urfum að fá nýtt og sterkt fólk eins og Oddnýju í stjórnmálin

Oddný G. Harðardóttir hefur mestallan starfsferil sinn starfað að skólamálum, lengst af sem framhaldsskólakennari og stjórnandi í Fjölbrautaskóla Suðurnesja í Reykjanesbæ. Oddný starfaði þar sem aðstoðarskólameistari í meira en áratug, og sem skólameistari í eitt ár, við einstaklega góðan orðstír. Oddný er mjög góður stjórnandi, hún er áræðin og vandvirk, fljót að taka ákvarðanir, drífandi […]

Hitafundur í Ráðhúsinu í dag

Fyrir hádegi í dag var haldinn fjölmennur fundur með foreldrum tilvonandi leikskólabarna en foreldrar hafa talsverðar áhyggjur á skorti leikskólaplássa í Vestmannaeyjum. Elliði Vignisson, bæjarstjóri tók á móti hópnum, rúmlega 50 fullorðnir og þó nokkuð af börnum sátu fundinn en bæjarstjórinn fór yfir þær leiðir sem verið væri að skoða til að leysa vandann. (meira…)

Fiskiskipum fækkaði um 113 í fyrra

Í lok árs 2008 voru 1.529 fiskiskip á skrá hjá Siglingastofnun og hafði þeim fækkað um 113 frá árinu áður. Fjöldi vélskipa var alls 769 og samanlögð stærð þeirra 86.390 brúttótonn. Vélskipum fækkaði um 65 á milli ára og dróst flotinn saman um 5.266 brúttótonn. Togarar voru alls 60 og fækkaði um fjóra frá árinu […]

Traustið endurheimt

Öllum ætti að vera ljóst að rof hefur orðið á milli stjórnvalda og almennings. Stjórnvöld njóta ekki trausts almennings. Það efnahagslega óveður, sem yfir okkur hefur gengið, hefur að stórum hluta skapað þetta traustsrof. Fólk vantreystir því sem stjórnvöld halda fram enda töluðu þau um að kerfið væri öruggt allt fram á síðasta dag. Upplifun […]

Eyjamenn, takið þátt í breytingunum

Ágætu Eyjamenn. Nú eru gerðar kröfur um breytingar í stjórnmálum á Íslandi. Það er lýst eftir fólki sem hefur víðtæka þekkingu og reynslu til að takast á við erfið verkefni framundan. Það þarf kjark og áræði til að vinna að stefnumótun og viðreisn hins nýja Íslands. Það þarf traust til að uppbyggingin megi takast sem […]

Fótboltalið ÍBV í upptökur?

Það gæti farið svo að karlalið ÍBV fari í upptökuver og syngi lagið Slor og skítur, eða Dúrí dara eins og margir kalla það, fyrir sumarið en lagið samdi Guðmundur Rúnar Lúðvíksson. Sú hefð hefur skapast síðustu ár hjá ÍBV liðinu að leikmenn syngja viðlagið í búningsklefanum eftir leiki, hinum liðunum til mikillar mæðu. (meira…)

�?ruggur sigur ÍBV í gær

Í gær lagði ÍBV KKF Þóri að velli í 2. deildinni í körfubolta en leikur liðanna fór fram í Eyjum. Lokatölur urðu 96:54 en staðan í hálfleik var 49:32 fyrir Eyjapeyja. Hinn ungi Kristján Tómasson fór á kostum og skoraði 29 stig. Eyjamenn eiga því enn möguleika á að komast í úrslitakeppni 2. deildar en […]

Stór verkefni og baráttumál framundan

Þau stórmál sem skipta miklu máli í meðferð Alþingis fyrir Vestmanna­eyjar á næstu misserum og árum varð­andi uppbyggingu á samgöng­um og þjónustu eru smíði nýrrar ferju milli Eyja og Landeyjahafnar, uppbygging stórskipabryggju í Vestmannaeyjahöfn eða í tengslum við hana, uppbygging Skipalyft­unnar svo að hún geti þjónað öllum Eyjaflotanum, vörn og sókn kvótans fyrir Vestmannaeyjar og […]

Elísa í þriðja sæti

Elísa Guðjónsdóttir, hin 19 ára gamla Eyjamær varð í kvöld í þriðja sæti í keppninni Ungfrú Reykjavík. Elísa hefur búið í höfuðborginni undanfarin tvö ár en hún stundar nú nám við Fjölbrautaskólann við Ármúla. Annar nemandi úr sama skóla bar sigur úr býtum í keppninni, hin 22 ára gamla Magdalena Dubik. (meira…)

Endurreisn efnahagslífsins, aðalatriði eða aukaatriði?

Staða efnahagsmála varðar alla Íslendinga, öll fyrirtæki, heimili og einstaklinga. Verkefni stjórnvalda er að leggja fram lausnir er miði að því að endurreisa fjárhag fyrirtækja og heimila. Lækka þarf stýrivexti og taka á málefnum bankanna því án starfhæfra banka þrífst ekki kröftugt atvinnulíf. Þessi verkefni eru brýn og mega ekki bíða. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.