Sannfærandi hjá ÍBV gegn Leikni

Karlalið ÍBV í körfuknattleik vann öruggan sigur á Leikni í fyrri viðureign liðanna nú um helgina en liðin berjast um laust sæti í úrslitakeppni 2. deildar. Eyjamönnum dugir ekkert annað en sigur í báðum leikjum og nú er sá fyrri að baki. Liðin mætast að nýju á morgun klukkan 13.30 en lokatölur í dag urðu […]
Jafnt hjá stelpunum

ÍBV gerði jafntefli við Fjölni í dag í Íslandsmótinu í handbolta kvenna en liðin leika bæði í 2. deild og áttust við í Eyjum. Lokatölur urðu 23:23 en Eyjastúlkur fóru afar illa að ráði sínu á lokakaflanum enda voru þær 23:20 yfir þegar skammt var til leiksloka. Leikurinn var afar kaflaskiptur en staðan í hálfleik […]
Atli Gíslason leiðir lista VG í Suðurkjördæmi

Atli Gíslason sigraði í forvali Vinstri grænna í Suðurkjördæmi en úrslit voru gerð kunn fyrir skömmu. Arndís Soffía Sigurðardóttir er í öðru sæti, Bergur Sigurðsson í því þriðja og í fjórða sæti er Jórunn Einarsdóttir. Endanleg ákvörðun um röðun á listanum verður tekin fyrir á fundi kjördæmaráðs. (meira…)
Stjórnvöld ofmeta ný störf í sjávarútvegi

Arnar Sigurmundsson, formaður Samtaka fiskvinnslustöðva, segir ekki rétt að hægt sé að skapa 300 ný störf í fiskvinnslu með því að hefta útflutning á óunnum fiski. Störfin sem skapist séu helmingi færri. (meira…)
Kl. 9 í morgun höfðu 1200 manns höfðu greitt atkvæði í prófkjörinu

Kl. 9:00 í morgun voru 1200 manns búnir að kjósa í netprófkjöriSamfylkingarinnar í Suðurkjördæmi en kosning stendur yfir til kl.18:00 í dag laugardag 7. mars, bæði á netinu og á kjörstöðum sem er aðfinna í öllum kaupstöðum kjördæmisins. (meira…)
Hiti við núllið við Suðurströndina
Austlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s, skýjað með köflum og frost 0 til 6 stig. Austan 5-10 og snjókoma eða slydda í nótt. Hægari og léttir til síðdegis og hiti 0 til 4 stig. Á sunnudag og mánudag: Allhvöss eða hvöss norðan átt og snjókoma, en skýjað með köflum og úrkomulítið sunnantil á landinu. Frost […]
�?egar maður ætlar að hafa gaman

Aftur er að koma helgi og margir sletta þá eflaust úr klaufunum, til að hafa gaman. Betra er þó að ganga hægt um gleðinnar dyr. Á þessu myndbandi fer ýmislegt úrskeiðis, en allt er það saklaust og bara gaman. (meira…)
Lítil sala á fiski á Fjölnetinu

Sáralítið hefur selst hingað til á uppboðum á Fjölnetinu þar sem innlendum kaupendum gefst kostur á að bjóða í fisk sem áformað er að selja óunninn á erlendan markað. Boðin hafa verið upp yfir 700 tonn í vikunni á þessum vettvangi en aðeins tæp 4 tonn selst, samkvæmt upplýsingum Reiknistofu fiskmarkaða. (meira…)
Mikilvægir leikir í körfunni um helgina

Um helgina leikur körfuknattleikslið ÍBV sína síðustu leiki í riðlakeppni 2. deildar í Íslandsmótinu. Báðir leikirnir fara fram í Eyjum og eru báðir gegn Leikni en liðin tvö berjast nú um laust sæti í úrslitakeppni deildarinnar. ÍBV dugir að vinna báða leikina og því mikilvægt að ÍBV fái eins mikinn stuðning og mögulegt er. (meira…)
Fyrsti nýi Avensis-bíllinn fer til Eyja

Nýlega var ný kynslóð Avensis kynnt hjá söluaðilum Toyota um allt land og af viðbrögðum að dæma er töluverður áhugi meðal landsmanna á nýjum bílum. Hátt í 2 .000 gestir sóttu frumsýningu bílsins hjá söluaðilum Toyota í Kópavogi, Reykjanesbæ, Selfossi, Egilsstöðum og Akureyri og áður höfðu á þriðja hundrað atvinnubílstjóra sótt forkynningu á bílnum. Nú […]
Frambjóðendur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins með fund í kvöld

Frambjóðendur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi verða á framboðsfundi í Vestmannaeyjum í kvöld. Fundurinn fer fram í Akóges og hefst kl. 20:00. Heitt á könnunni – allir velkomnir! (meira…)
500 búnir að kjósa hjá Samfylkingunni

Klukkan átta í morgun voru rúmlega 500 manns búnir að kjós í netprófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi en kosningin stendur til klukkan 18.00 á laugardag. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Samfylkingunni en þar er einnig sagt að kosningin gangi samkvæmt áætlun eftir smá hnökra í upphafi. Fréttatilkynninguna má lesa hér að neðan. (meira…)
�?tlit fyrir lélega loðnuvertíð aftur næsta vetur

Vísbendingar eru um að loðnuvertíðin næsta vetur, janúar-marz 2010, verði léleg eins og vertíðin í ár. Hins vegar er mun betra útlit fyrir vertíðina árið 2011 miðað við mergð seiða og mikla útbreiðslu þeirra. Fiskifræðingar eru þó áhyggjufullir vegna þess hve lítið af loðnu virðist hafa komið til hrygningar nú á síðustu vikum. (meira…)
�?tgáfu Vaktarinnar breytt
Stjórn Eyjasýnar ehf. hefur ákveðið að gefa breytingar á útgáfu fyrirtækisins. Eyjasýn gefur út bæði Fréttir og Vaktina, auk þess að halda úti vefmiðlunum Eyjafréttir.is og Sudurlandid.is. Vegna lægðar á auglýsingamarkaði hefur verið ákveðið að draga úr útgáfu Vaktarinnar þannig að blaðið komi út einu sinni í mánuði eða svo. (meira…)
Kvótakerfinu verður að breyta

Í fyrradag efndi ég til utandagskrárumræðu á Alþingi um endurúthlutun fiskveiðiheimilda. Tilefnið var ný könnun sem fyrirtækið MMR gerði í síðasta mánuði og kannaði vilja almennings til þess að stjórnvöld afturkalli fiskveiðiheimildir með einum eða öðrum hætti og úthluti þeim að nýju með breyttum reglum. Svörin voru ótrúlega skýr og á einn veg. Rúmlega 60% […]
Kosning hafin í opnu netprófkjör Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi

Kl. 6:00 í morgun hófst kosning í opnu netprófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjörfæmi, kosning stendur yfir til kl. 18:00 laugardaginn 7. mars 2009. Kosningarétt hafa allir sem eru á íbúaskrá í Suðurkjördæmi þann 1. mars og verða orðnir 18 ára þegar Alþingiskosningar fara fram þann 25. apríl. Frambjóðendur Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi eru einu frambjóðendurnir í kjördæminu […]
Ugginn ekki í lag fyrr en í september

Nú hefur viðgerð á veltiugga Herjólfs verið frestað fram í september en ugginn á skipinu bilaði um miðjan nóvember á síðasta ári. Haft var eftir Guðmundi Pedersen í janúar að varahlutirnir yrðu tilbúnir í lok apríl en hann taldi að viðgerðin tæki þrjá til fjóra daga. (meira…)
�?gi Páli sagt upp hjá Ísfélaginu

Stjórn Ísfélags Vestmannaeyja hf. ákvað á fundi sínum í dag að segja upp Ægi Páli Friðbertssyni framkvæmdastjóra félagsins og hefur hann þegar látið af störfum. Ástæða uppsagnarinnar er, að óbreyttu, tap félagsins af afleiðusamningum við íslenska banka. Telur stjórn félagsins að framkvæmdastjórinn hafi farið út fyrir heimildir sínar í störfum sínum. Stjórnin harmar að til […]
Framboðsfundur Samfylkingarframbjóðenda í Hvíta Húsinu í kvöld miðvikudag

Frambjóðendur í opnu netprófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördmistanda fyrir sameiginlegum kynningarfundum þar menn og málefni erurædd. Í kvöld miðvikudaginn 4. mars er fundað í Hvíta Húsinu áSelfossi. Fundarstjóri verður Ásmundur Sverrir Pálsson og hefst fundurinnkl. 20. (meira…)
Atvinnulífið í gang nú þegar

Hjól atvinnulífsins eru undirstaða þess drifkraftar sem knýr íslenskt samfélag. Það verður að koma atvinnulífinu í gang nú þegar, uppbyggingarstarfið verður að hefjast strax, íslenskt samfélag hefur ekki efni á að bíða mikið lengur. Skammtímalausnir duga ekki til langframa, ekki þýðir að plástra heimilin endalaust með plástrum sem duga skammt gegn þeim vanda sem við […]