Bærinn gerir tilboð í hús Skipalyftunnar

Á síðasta fundi framkvæmda- og hafnarráðs lá fyrir skýrsla um tjón á upptökumannvirkjum við Skipalyftuna frá sérfræðingum Berry Consultants. Einnig koma fram í skýrslunni valkostir við viðgerð og endurbætur á skipalyftunni. (meira…)
990 atvinnulausir á Suðurlandi
990 eru á atvinnuleysisskrá á Suðurlandi, samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun Suðurlands á Selfossi. 618 karlar og 372 konur. Flestir eru atvinnulausir í Árborg eða 526, 122 í Hveragerði, 122 á Hellu og Hvolsvelli, 93 í Þorlákshöfn, 79 í Vestmannaeyjum, 41 í uppsveitum Árnessýslum og 17 eru atvinnulausir í Mýrdalshreppi og Skaftárhreppi. 12 laus störf eru […]
Stormur í vatnsglasi

Eins og greint var frá í morgun fékk ÍBV ekki þátttökuleyfi hjá KSÍ en leyfisnefnd sambandsins tók fyrir umsóknir þeirra 24 félaga sem tefla fram liði í tveimur efstu deildum Íslandsmótsins. Átta liðum var synjað um þátttökuleyfið, þar á meðal ÍBV. Sigursveinn Þórðarson, formaður knattspyrnudeildar segir hins vegar að einungis þurfi að leysa nokkur smáatriði […]
Háskólafélag Suðurlands

Það frumkvæði sveitarfélaga á Suðurlandi að beita sér fyrir stofnun Háskólafélags Suðurlands ehf. er mikið og gott framtak. Markmiðið með stofnun Háskólafélagsins er að efla háskólamenntun og auka aðgengi almennings að henni enda sé það eitt brýnasta hagsmunamál Sunnlendinga. Háskólafélag Suðurlands sótt um styrk til fjárlaganefndar Alþingis til stofnunar Þekkingaseturs á Suðurlandi líkt og þekkist […]
ÍBV fær vikufrest til að ganga frá sínum málum

Í gær voru teknar fyrir umsóknir þeirra 24 félaga sem leika í efstu tveimur deildum Íslandsmótsins í knattspyrnu karla. Gefin voru út þátttökuleyfi 16 félaga en átta var gefinn vikufrestur til að klára sín mál, þar á meðal ÍBV. Hins vegar virðist enginn hjá félaginu vita hvaða skilyrði félagið uppfyllir ekki. (meira…)
Margrét með 50. landsleikinn

Margrét Lára Viðarsdóttir leikur í dag sinn 50. A-landsleik fyrir Íslands hönd þegar íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu leikur við Kínverja um 5. sætið í Algarve-bikarnum í Portúgal. Margrét Lára, sem er 22 ára gömul, verður tíunda landsliðskonan frá upphafi til að ná þessum áfanga. Hún á markamet landsliðsins, hefur skorað 43 mörk í 49 leikjum. […]
Á grundvelli ábyrgs frelsis einstaklingsins

Mikil krafa er um endurnýjum í forustusveit á framboðslistum fyrir komandi kosningar. Þess er krafist að nýtt og kraftmikið fólk verði kallað til starfa. Venjulegt jarðtengt og vinnusamt fólk sem þekkir þarfir þjóðarinnar og veit og skilur á hverju þessi þjóð byggir afkomu sína. Ég hef ákveðið að bjóða mig fram til að verða við […]
Ráðherra kallar spillingu yfir sjávarútveginn

Sjávarútvegsráðherra hefur sýnt það á fáum dögum að hann er algjörlega óhæfur sem slíkur. Best kom þetta í ljós í aðgerðarleysinu að koma loðnuvertíð í gang með útgáfu bráðabirgðakvóta upp á 50-100 þúsund tonn. Þess í stað var sett í gang að finna leiðir til að afturkalla hvalveiðar sem forveri hans leyfði á síðustu metrunum […]
Opið bréf til Ísfélags Vestmannaeyja

Í síðustu viku sagði stjórn Ísfélagins upp tveimur af þremur yfirstjórnendum félagsins, þeim Ægi Páli Friðbertssyni og Baldvini Johnsen á þeim forsendum að þeir hefðu farið út fyrir heimildir í störfum sínum hvað varðar svonefnda afleiðusamninga eða gjaldeyrisskiptasamninga. (meira…)
Glæsilegt prófkjör Samfylkingarinnar

Nú er prófkjörsslagnum hjá Samfylkingunni í Suðurkjördæmi lokið. Baráttan var einkar skemmtileg og drengileg. Það er líka frábært að fá tækifæri til þess að kynnast svo mörgum stórskemmtilegum einstaklingum, bæði í hópi frambjóðenda og kjósenda. Ferðirnar um kjördæmið, þar sem frambjóðendur hittu og ræddu við kjósendur – bæði á vinnustöðum og á förnum vegi – […]
Unglingadramað Rómeó og Júlía Remix!
Í vetur hefur Leikfélag NFSu æft af kappi hið sígilda og klassíska verk eftir William Shakespeare, Rómeó og Júlíu. Hins vegar er verkið ekki algjörlega í sinni upprunnalegu útfærslu heldur eru fjögur pör af Rómeó og Júlíu á mismunandi tímaskeiðum. Verkið er sýnt í Fjölbrautaskóla Suðurlands, nánar tiltekið í gryfju skólans. Leikstjóri verksins er Ólafur […]
Gamlir jaxlar og nýir í Suðurkjördæmi

Fyrstu prófkjörshelginni er lokið.Segja má að það hafi ekki orðið nein stórtíðindi hvað úrslit varðar.Lítum aðeins á niðurstöður í Suðurkjördæmi. Framundan er svo mikill slagur hjá Sjálfstæðismönnum um næstu helgi.Ég mun síðar í vikunni spá í spilin hvað það varðar. (meira…)
Volcano Café býðir upp á prjónakaffi

Eigendur Volcano Café halda áfram að fara ótroðnar slóðir, á morgun mun starfsfólk Volcano Café í samstarfi við Siggu systir hans Guffa Kristmannns að bjóða upp á nýung sem kallast prjónakaffi. Allir eru velkomnir með prjóna, hekl eða útsaum á Volcano Café og spjalla saman, fá ráðleggingar, hugmyndir og skiptast á uppskriftum. Prjónakaffið verður þriðjudaginn […]
Starfsmenn fundu fíkniefni á skemmtistað

Það var í ýmsu að snúast hjá lögreglunnni í vikunni sem leið og um helgina, við að aðstoða borgarana. Við eftirlit lögreglu með veitingastöðum bæjarins, um helgina, var þremur stúlkum undir aldri vísað út. Eitt fíkniefnamál kom til kasta lögreglu í vikunni sem leið en starfsmenn veitingastaðarins Lundans fundu ætluð fíkniefni þegar verið var að […]
Flug milli Eyja og Akureyrar?

Á dögunum var haldinn fundur með ferðaþjónustuaðilum í Vestmannaeyjum og Ásbirni Björgvinssyni, framkvæmdastjóra Markaðsstofu Norðurlands. Ásbjörn stofnaði Hvalasafnið á Húsavík og stýrir því en tilgangur fundarins var að kanna hug Eyjamanna til þess að fá Flugfélag Íslands til að fljúga beint flug milli Akureyrar og Eyja. (meira…)
Sveit Grunnskóla Vestmannaeyja í öðru sæti

A-sveita Grunnskóla Vestmannaeyja endaði í öðru sæti á Íslandsmóti barnaskólasveita sem fór fram um helgina. Mótið fór þannig fram að sveitirnar kepptu sín á milli og söfnuðu stigum en fjórar efstu sveitirnar léku svo um Íslandsmeistaratitilinn. GRV varð efst að loknum fyrri keppnisdeginum með 24,5 vinninga af 28 mögulegum. Og þegar upp var staðið komu […]
Konukvöld Sjálfstæðiskvenna í Víkingaheimum Reykjanesbæ

Þann 5. mars síðastliðinn stóðu Landsamband Sjálfstæðiskvenna og Sjálfstæðiskvennafélagið Sókn fyrir skemmtikvöldi með öllum kvenframbjóðendum í Suðurkjördæmi. Rúmlega 120 konur mættu til að kynnast frambjóðendum í Víkingaheimum í Reykjanesbæ. Védís Hervör Árnadóttir söng og var boðið uppá léttar veitingar. Mikil ánægja var með fyrirkomulagið meðal gesta en allir kvenframbjóðendur í kjördæminu fengu að kynna sig […]
Töpuðu en samt öruggir í úrslit

Eyjamenn töpuðu í dag gegn Leikni í 2. deildinni í körfubolta en þetta var síðasti leikur ÍBV í riðlinum. Lokatölur urðu 81:89 en mikil barátta var í leiknum. Þrátt fyrir tapið eru Eyjamenn komnir í úrslitakeppni 2. deildar, sem fer fram með breyttu fyrirkomulagi í ár. (meira…)
Sigurður Ingi leiðir Framsóknarmenn í Suðurkjördæmi

Sigurður Ingi Jóhannsson, dýralæknir í Syðra-Langholti verður í fyrsta sæti á lista Framsóknarflokksins á Suðurlandi. Þetta er niðurstaða póstkosningar sem verið var að kynna á kjördæmisþingi flokksins á Selfossi. Eygló Harðardóttir, alþingismaður hafnaði í öðru sæti. (meira…)
Björgvin G. Sigurðsson leiðir Samfylkinguna í Suðurkjördæmi

Niðurstaða úr netprófkjöri liggur nú fyrir hjá Samfylkingunni í Suðurkjördæmi. Björgvin G. Sigurðsson, fyrrum viðskiptaráðherra, leiðir listann en Oddný Guðbjörg Harðardóttir er í öðru sæti og Róbert Marshall í því þriðja. Alls kusu 2389 í netprófkjörinu og varð röð sex efstu þessi: (meira…)