Fullhlaðinn vörubíll fauk af veginum

Fullhlaðinn vörubíll fauk af veginum við Dverghamar skömmu fyrir hádegi í dag og mátti ekki miklu muna að bíllin hefði oltið. Bílstjóri vörubílsins sagði við ljósmyndara Eyjafrétta að vindhviðan hefði einfaldlega gripið vörubílinn og stýrt honum út af veginum. Ökumanninn sakaði ekki en búið er að ná bílnum aftur upp á veg. (meira…)
Mótmælir harðlega allri skerðingu á útflutningi á ferskum fiski

Vegna umræðna um skerðingu á útflutningi á ferskum fiski vill Sjómannafélagið Jötunn taka eftirfarandi fram. Haldið er fram að 25% skerðing á ferskfisk útflutningi í gámum skapi 300 störf við fiskvinnslu hér á landi sem við teljum mjög orðum aukið. Ennfremur gengur illa að selja unnin fisk á mörkuðum en ferski fiskurinn selst alltaf því […]
�?etta er ekkert mjög leiðinlegt
Hún tók að sér að gera mönnum hrekk. Stóð í sölubás og afgreiddi karlmenn sem þangað komu. Fletti frá brjóstunum á sér til að sækja skiptimynt. Mönnum var brugðið, en þótti athæfið ekkert mjög leiðinlegt. Hefðu kannski viljað sjá meira, en það var ekki í boði. (meira…)
Hvar skal skera niður

Við heyrum dag eftir dag fréttir um niðurskurð, þetta munum við heyra áfram. Verst þykir mér að niðurskurðurinn er farinn að bitna á þeim sömu og alltaf, landsbyggðarfólki, sjómönnum og hinum almenna borgara. Þá vitna ég í niðurskurð hjá landhelgisgæslunni, lokun skurðstofa, uppsagnir sjúkraflutningamanna, lokun flugturna og margt fleira. Við munum það að þenslan á […]
Fjölmennum á kjörstað

Á morgun laugardag göngum við Sjálfstæðismenn til kosninga í prófkjöri okkar í Suðurkjördæmi fyrir komandi Alþingiskosningar. Hér í Eyjum er mikil og góð hefð fyrir góðri þátttöku í prófkjörum Sjálfstæðismanna og vona ég að svo verði einnig nú. Í framboði eru margir hæfir einstaklingar þar á meðal eru þrír öflugir Eyjamenn, Árni Johnsen sem óskar […]
Sundafrek Guðlaugs með augum Guðna heitins Hermansen

Þess var minnst í gærmorgun, 12. mars, að liðin voru 25 ár frá því Hellisey VE fórst suðaustur af Eyjum og 4 menn fórust. Guðlaugur Friðþórsson vann þá það einstaka afrek að synda til lands um 6 kílómetra leið í kulda og ólgusjó. Sundafreks Guðlaugs vakti á sínum tíma mikla athygli og þótti allt að […]
Sjálfstæðisflokkur og Samfylking nánast jöfn

Í Morgunblaðinu í dag er birt könnun sem Capacent Gallup vann fyrir Morgunblaðið og Ríkisútvarpið. Samkvæmt könnuninni tapar Sjálfstæðisflokkurinn fylgi frá kosningunum 2007, Samfylkingin bætir við sig og munar aðeins rúmri prósentu á fylgi flokkanna í Suðurkjördæmi. Mesta stökkið taka þó Vinstri grænir sem mælast með 20,5% fylgi í könnuninni í Suðurkjördæmi en fengu 9,9% […]
Súperstjarnan Magni mætir í Höllina

Í dag kl 10:30 á Bylgjunni verður frumflutt nýtt lag með hljómsveitinni Á móti Sól en þeir verða einmitt með stórdansleik í Höllinni á Laugardagskvöld eftir langa pásu. Mikil tilhlökkun er í sveitinni að koma og spila og munu örygglega heyrast lög úr Rock Star Supernova og Queen showinu en Mangi fór á kostum þar […]
Sigurstranglegt sóknarlið

Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi er haldið á morgun, laugardag. Ég hvet alla sjálfstæðismenn í kjördæminu til þess að kjósa í prófkjörinu og taka þannig þátt í því að stilla upp sigurstranglegu sóknarliði fyrir kosningarnar í vor. Sóknarliði sem endurspeglar breidd og styrk okkar góða kjördæmis. Suðurkjördæmi er sterkt vígi Sjálfstæðisflokksins og því mikilvægt að við […]
Ekki rétt að 526 séu atvinnulausir í Árborg

Þann 11. mars sl. birtust fréttir af fjölda atvinnulausra í Sveitarfélaginu Árborg í fjölmiðlum. Fram kemur á fréttavef Ríkisútvarpsins, ruv.is, þann dag að 990 séu atvinnulausir á Suðurlandi og þar af 526 í Árborg. Þessar upplýsingar voru einnig birtar á fréttavefnum Sudurlandid.is þann sama dag. Svo virðist sem þær tölur séu ekki réttar hvað Sveitarfélagið […]
�?ór sótti slasaðan sjómann í nótt

Um klukkan fimm í nótt var Björgunarskipið Þór kallað út til að sækja slasaðan sjómann. Sjómaðurinn var um borð í Erlingi KE en hann hafði slasast á báðum höndum þegar verið var að draga netin um borð sem voru föst. Sjómaðurinn var fluttur á sjúkrahúsið í Vestmannaeyjum til aðhlynningar. (meira…)
Fjölmennur fundur hjá Árna

Í gærkvöldi hélt Árni Johnsen fjölmennan fund á Kaffi Kró en fundurinn er hluti af fundarferð þingmannsins um kjördæmið. Milli 55 og 60 manns sóttu fundinn og fékk Árni góðar undirtektir við málflutningi sínum. Meðal annars kom fram á fundinum að reynslulítil kona úr Garðabæ, sem þyrði ekki í framboð í Suðvesturkjördæmi, hefði litla þekkingu […]
�?g treysti á stuðning Eyjamanna

Á óvissutímum er staðfesta og ákveðni í ákvarðanatöku mikilvæg. Það er mikilvægt að hafa víðtæka reynslu. Reynslu af lífinu. Reynslu úr atvinnulífinu. Reynslu af samningaferli, ákvarðanatöku, almenna pólitíska reynslu og innsæi til að takast á við verkefni á sviði stjórnmála þegar á móti blæs og óvissa er ríkjandi. Þannig er ástand á Íslandi í dag. […]
Vonglaðir tökum sólinni mót

Að gefnu tilefni vilja meðlimir hljómsveitarinnar Tríkot taka það fram að þeir hafa ekkert á móti sól. Þvert á móti fagna þeir hlýnandi verði og hækkandi sól og vonast til að sjá sem mest af henni. Einnig vonast þeir til að sjá sem flesta á Lundanum um helgina en þar mun hljómsveitin halda uppi gleði […]
Árni fundar í kvöld á Kaffi Kró

Árni Johnsen heldur fundarferð sinni áfram um Suðurkjördæmið og í kvöld er komið að hans heimavígi, Vestmannaeyjum. Fundurinn er haldinn undir fyrirsögninni Baráttumál Eyjanna og þjóðmálin og má búast við fjörugum umræðum. Fundurinn hefst klukkan 20.00. (meira…)
Framtak, dugnaður og bjartsýni
Í vor verður kosið um á hvaða grunngildum skal byggja íslenskt samfélag. Í dag skiptir mestu máli að eyða þeirri óvissu sem ríkir um framtíðina. Það gerum við með því að tala skýrt og einbeita okkur að þeim verkefnum sem við blasa þ.e. að lækka vexti, endurreisa bankakerfið og ná með því tryggja þeim heimilum […]
Ofurlaunapartý á 10 ára fresti ?

Þann 1.október sl. skrifaði ég ritgerð í mastersnámi mínu í mannauðsstjórnun sem fjallaði um ofurlaun. Sárafáar og nánast engar heimildir voru fáanlegar um ofurlaunaþróun og hefðir þar að lútandi á íslensku og um íslenskt atvinnulíf og varð því úr að flestar þeirra voru sóttar til Ameríku. Árið 2003, í kjölfar ENRON hneykslisins, var töluvert fjallað […]
Aldrei fleiri synt Guðlaugssundið en í ár

Klukkan fjögur í nótt hófst Guðlaugssundið í Sundhöll Vestmannaeyja en aldrei áður hafa jafn margir verið skráðir í sundið en í ár. Sundið hefur verið haldið árlega frá 1985 en þá höfðu nemendur Stýrimannaskólans í Vestmannaeyjum frumkvæði að því að synda þá vegalengd sem Guðlaugur Friðþórsson hafði synt í ísköldum og úfnum sjónum árið áður. […]
Pétur Run skrifar undir þriggja ára samning

Miðjumaðurinn öflugi, Pétur Runólfsson hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við ÍBV. Pétur lék sinn fyrsta leik fyrir félagið gegn Breiðablik í í 16 liða úrslitum bikarkeppni KSÍ árið 2001. Hann kom þá inn á í 3:1 sigri ÍBV. Pétur hefur leikið 101 leik fyrir ÍBV í deild og bikar síðan árið 2001 og […]
Kveð sterkt og gott félag

Ægir Páll Friðbertsson, fráfarandi framkvæmdastjóri Ísfélagsins, vildi ekkert segja um brotthvarf sitt frá félaginu þegar Fréttir ræddu við hann í gær. „Það er ekkert um þetta að segja á þessari stundu nema að ég er stoltur af mínum verkum þegar ég lít yfir þessi átta ár sem ég var hjá Ísfélaginu. Þetta er sterkt og […]