Í nógu að snúast hjá lögreglunni

Lögreglan hafði í nógu að snúast í vikunni sem leið, en þó nokkur erill að kvöldi sl. föstudags og aðfaranótt sl. laugardags vegna þess óveðurs sem gekk yfir eyjarnar. M.a. fékk lögreglan fimm tilkynningar vegna foktjóns, en veðurhæðin náði í um 40 m/sek. á Stórhöfða þegar mest gekk á. Þá þurfti lögreglan, að vanda, að […]

Kæru stuðningsmenn

Þakka ykkur innilega fyrir stuðninginn í prófkjörinu á laugardaginn. Ég fékk góða kosningu í það sæti sem ég sóttist eftir þannig að árangurinn var í samræmi við mínar björtustu vonir. Fyrir það er ég ykkur afar þakklát. (meira…)

Stuðningur okkar ekki neikvæður fyrir aðra frambjóðendur

Prófkjör eru gjarnan tími átaka og særinda. Þegar margir keppa að sama marki er viðbúið að einhverjir nái ekki sínum persónulegu markmiðum. Að jafnaði taka stjórnmálamenn því af reisn. Nú að afloknu prófkjöri sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi hefur Árni Johnsen félagi okkar til margra ára valið að líta á sjálfan sig sem fórnarlamb. Ástæðan er sú […]

Heimir með ÍBV næstu tvö árin

Heimir Hallgrímsson þjálfari ÍBV hefur framlengt samning sinn við félagið um tvö ár. Heimir tók við liðinu síðla sumars 2006 af Guðlaugi Baldurssyni og hefur stýrt því síðan. Hann hefur stjórnað liðinu í 51 deildarleik, 32 sigrar, 8 jafntefli og 11 tapleikir. Árangur liðsins var frábær á síðasta sumri þar sem liðið sigraði 1.deildina með […]

Aflaverðmæti 99 milljarðar 2008

Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 99 milljörðum króna á árinu 2008 og jókst um tæpa 19 milljarða frá árinu áður þegar aflaverðmætið var 80 milljarðar. Aukningin nemur 23,5% á milli ára. (meira…)

Hanna Birna kosin ritari Frjálslyndra

Landsþing Frjálslynda flokksins fór fram í gær á Stykkishólmi en meðal annars var kosið í stjórn flokksins. Hanna Birna Jóhannsdóttir var kosin ritari flokksins en Hanna Birna, sem er búsett í Vestmannaeyjum, var í öðru sæti á lista Frjálslyndra og óháðra í sveitastjórnakosningum í Vestmannaeyjum og auk þess í þriðja sæti á lista Frjálslynda flokksins […]

Addi Johnsen umvafinn kvenfólki

Lokatölur úr prófkjöri Sjálfstæðismanna eru komnar. Ragnheiður Elín Árnadóttir sigraði með nokkrum yfirburðum, fékk 2192 atkvæði í fyrsta sætið. Árni Johnsen fékk 1576 atkvæði í 2. sætið. Unnur Brá Konráðsdóttir hlaut 1882 atkvæði í 3. sætið og Íris Róbertsdóttir fékk 1812 atkvæði í 4. sætið. (meira…)

Fyrirhafnarlítið hjá ÍBV gegn Fjölni

Karlalið ÍBV átti ekki í vandræðum með lánlausa Fjölnismenn í 1. deildinni í gær en liðin áttust við í Eyjum. Lokatölur urðu 46:25 eftir að staðan var 20:16 í hálfleik. ÍBV teflir fram mjög ungu liði en síðustu mínúturnar var liðið þó sérstaklega ungt, þrír strákar úr fjórða flokki og aðeins tveir á meistaraflokksaldri. (meira…)

Árni kominn í annað sætið

Árni Johnsen, alþingismaður er kominn í annað sætið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Suðurlandi þegar talin hafa verið 3.200 atkvæði af um það bil 4.000. Árni var í 4. sæti eftir að fyrstu tölur voru birtar. Ragnheiður Elín Árnadóttir, alþingismaður heldur enn efsta sætinu en Unnur Brá Konráðsdóttir, sveitarstjóri er fallin í 3. sætið. (meira…)

Fyrstu tölur úr Suðurkjördæmi

Fyrstu tölur úr Suðurkjördæmi voru kynntar af kjörstjórn nú fyrir stundu. í fyrsta sæti er Ragnheiður Elín Árnadóttir, þegar talin hafa verið 1.400 atkvæði af um það bil 4.000. Ragnheiður Elín Árnadóttir hefur hlotið 715 atkvæði í 1. sæti. Unnur Brá Konráðsdóttir er í öðru sæti með 503 atkvæði í 1.-2. sæti. Kjartan Ólafsson er […]

Knattspyrnuráðið fullmannað

Þá er knattspyrnuráðið fullmannað. Svenni Þórðar er formaður og með honum hér í Eyjum eru Örn Hilmis, Grétar Ómars, Sigurbergur Ármanns, fjármálastjóri og Bergur Kristins. Í Rvk starfa þeir Gestur Magg, Þorsteinn tengdarsonur Halla Steina og Jóhann Sveinn Sveins. Bara flottur hópur. (meira…)

Atkvæðaseðlar úr Eyjum lagðir af stað til Selfoss

Rétt fyrir klukkan hálf sjö, lagði flugvél á vegum Flugfélags Vestmannaeyja af stað með atkvæðaseðlana úr Eyjum úr prófkjöri Sjálfstæðismanna. Flogið var á Bakkaflugvöll og þaðan verður ekið með þá á Selfoss. Alls greiddu 840 kjósendur atkvæði á kjörstað. Utankjörfundaratkvæði munu vera um 60 talsins. Í prófkjöri fyrir síðustu alþingiskosningar voru heildaratkvæði úr Eyjum rétt […]

Seinni ferð Herjólfs felld niður í dag

Seinni ferð Herjólfs, sem fara átti kl. 16.00 í dag frá Eyjum, verður felld niður vegna veðurs. Ölduhæð út við Surtsey er nú 6.1 metri en við Bakkafjöruduflið er 3.2 metra ölduhæð. (meira…)

Slökkvilið Vestmannaeyja kallað að sjúkrahúsinu

Allt tiltækt slökkvlið Vestmannaeyja var kallað út rétt rúmlega tólf í dag þegar tilkynning barst um lausan eld á þriðju hæð sjúkrahússins. Eins og gefur að skilja var viðbúnaður mikill en þegar betur var að gáð hafði ljós brunnið en við það myndaðist reykur og lykt sem settu brunavarnakerfi hússins af stað. (meira…)

41 metri á sekúndu á Stórhöfða í nótt

Þegar þetta er ritað rétt um miðnætti hafði fyrr í kvöld mælst vindhviða við Hvamm undir Eyjafjöllum upp á 56 m/s*. Meðalvindhraði eða veðurhæðin hefur verið mikil og vaxandi í kvöld syðst á landinu. Á Vatnsskarðshólum í Dyrhólahverfi voru þannig 29 m/s (39 m/s í hviðu), á Steinum undir Austur-Eyjafjöllum 24 m/s (41 í hviðu) […]

Vonskuveður í Eyjum

Nú er vonskuveður í Vestmannaeyjum en Björgunarfélag Vestmannaeyja er í viðbragðstöðu vegna verðurofsans. Björgunarmenn hafa sinnt einu útkalli en bílskúrshurð hafði fokið upp. Í húsinu búa eldri hjón sem treystu sér ekki í slag við hurðina og leituðu aðstoðar lögreglu. Herjólfi seinkaði þó aðeins um hálftíma þrátt fyrir veðurofsann. (meira…)

Frakkar í vandræðum á Sprengisandi

Björgunarsveitir Slysavarnafélagins Landsbjargar eru nú á leið til aðstoðar tveimur frökkum sem eru í vandræðum á Sprengisandi. Ferðalangarnir voru á leið í Nýjadal en veður er kolvitlaust á svæðinu og hafa þeir misst frá sér tjaldið en eru annars vel búnir. (meira…)

Íslenskum skipum heimilt að veiða svipað magn af makríl og í fyrra

Steingrímur J. Sigfússon, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, undirritaði í dag reglugerð um makrílveiðar íslenskra skipa á þessi ári. Miðað er við að heildarafli á árinu fari ekki yfir 112.000 tonn, þar af 20.000 tonn á alþjóðlegu hafsvæði utan lögsögu ríkja. Fari aflinn yfir þetta magn mun ráðherra ákveða hvort gripið skuli til veiðibanns eða takmarkana. Þetta […]

Skákmaraþon hefst á morgun

Nú nálgast hið árlega skákmaraþon Taflfélags Vestmannaeyja og fer það að þessu sinni fram n.k. laugardag 14. mars n.k. og stendur frá kl. 12 á hádegi til 12 á hádegi á sunnudag, eða í sólarhring. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.