Hreinsun frekar en veiðar

Um eiginlega hreinsun er að ræða, frekar en veiðar, með veiðum úr síldartorfu í höfninni í Vestmannaeyjum en torfan var farin að vera til trafala í höfninni. Hafði hún fært sig æ innar í höfnina á síðustu vikum og haldið þar kyrru fyrir. (meira…)
Leiðbeinendur og lausráðnir kennarar í óvissu

Lausráðnum kennurum og leiðbeinendum við Grunnskóla Vestmannaeyja brá í brún þegar þeir fengu bréf þar sem þeim var tilkynnt um að ekki væri öruggt að þeir héldu starfi sínu við skólann næsta haust. Jón Pétursson, forstöðumaður fræðslu- og fjölskyldusviðs, sagði að skólastjóra bæri að upplýsa starfsmenn um stöðuna og hún væri því að framfylgja þeim […]
Meirihluti íbúða í nýja húsinu við Hilmisgötu seldar

Verslunar- og íbúðarhúsið við Hilmisgötu er óðum að taka á sig mynd en búið er að reisa útveggi á efri hæð hússins. Reiknað er með að húsið verði fokhelt í lok apríl en búið er að hanna klæðningu á húsið eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Stefán Þ. Lúðvíksson, annar eigenda hússins segist mjög […]
Síldveiðar í höfninni í gær

Það fór ekki framhjá bæjarbúum þegar Kap VE veiddi síld í Vestmannaeyjahöfn í gær en Hafró hafði gefið út leyfi til að hreinsa höfnina af síldinni sem þar hefur verið. Samkvæmt því sem næst verður komist veiddist milli fimm og sex hundruð tonn. Töluvert magn af síld, mestmegnis dauðri síld er í höfninni en nauðsynlegt […]
Síldveiðar í miðri Vestmannaeyjahöfn

Fjölveiðiskipið Kap var við síldveiðar í Vestmannaeyjahöfn í gær. Ástæða veiðanna er hreinsun hafnarinnar en þetta er í fyrsta sinn í 50 ár sem síldveiðar fara fram í höfninni. (meira…)
Yngsti Vestmannaeyingurinn í námi hjá Visku

Hún Erica de Carmo lét það ekki aftra sér að halda áfram námi í iðjuþjálfun, þótt hún hafi átt barn síðastliðinn föstudag. Erica mætti í fjarkennslu í húsnæði Visku í morgun, með barnið sitt með sér, sem hlotið hefur nafnið Bríet Líf. Um næstu helgi fer hún síðan til Akureyrar í starfsþjálfun, – með barnið […]
�?jórsársveitir gagnrýna neikvæð áhrif orkuflutningsmannvirkja
Framkvæmdanefnd Þjórsársveita tekur undir gagnrýni sveitarfélagsins Ölfuss um neikvæð áhrif fyrirhugaðra orkuflutningsmannvirkja í sveitarfélaginu. Nefndin hefur áhyggjur af því að ekki standi til að nýta sunnlenska orku til atvinnusköpunar og byggðaþróunar á Suðurlandi í þeim áætlunum sem uppi eru um orkuframleiðslu og orkuflutning. (meira…)
Aðstaða fyrir sjúkraþjálfun á Hvolsvelli
Ný aðstaða fyrir sjúkraþjálfun hefur verið opnuð í Heilsugæslustöðinni á Hvolsvelli. Slík aðstaða hefur ekki verið fyrir hendi á svæðinu og hefur sjúkraþjálfari staðsettur á Hellu ekki annað eftirspurn. Í frétt á vef Heilbrigðisstofnunar Suðurlands kemur fram að fólk hafi þurft að sækja þjónustu sjúkraþjálfara til Selfoss eða jafnvel lengra. Nýja aðstaðan á Hvolsvelli bæti […]
Unnur Brá hættir sem sveitarstjóri

Unnur Brá Konráðsdóttir, sveitarstjóri í Rangárþingi eystra, hættir sem sveitarstjóri í kjölfar þess að hún hlaut kosningu í 3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi um síðustu helgi. Á fundi sveitarstjórnar Rangárþings eystra í dag óskaði hún eftir launalausu leyfi frá störfum frá 23. mars til 25. apríl. Elvar Eyvindsson, formaður byggðaráðs, mun sinna störfum […]
Norðmenn æfir vegna makrílveiða Íslendinga
Norskir útvegsmenn ætla að biðja stjórnvöld í Noregi að banna innflutning á mjöli og lýsi úr makríl frá Íslandi. Þeir eru mjög ósáttir við að Íslendingar ætli í þriðja sinn að leggja út í makrílveiðar án þess að hafa kvóta úr sameiginlegum stofni Norðmanna, Færeyinga og Evrópusambandsríkjanna. (meira…)
ÍBV komið með keppnisleyfi

Á fundi leyfisráðs KSÍ dag, var þeim félögum í 1. og efstu deild í knattspyrnu, sem synjað var upp keppnileyfi í síðustu viku, nú veitt keppnisleyfi fyrir næsta sumar, þar sem þau uppfylltu orðið skilyrði ráðsins. Tveimur félögum, Breiðabliki og ÍBV var hinsvegar veitt viðvörun fyrir að uppfylla ekki forsendur vegna aðstoðarþjálfara meistaraflokks. (meira…)
Um 20% niðurfellingu skulda

Framsóknarmenn hafa að undanförnu kynnt hugmyndir sínar um 20% flatan niðurskurð skulda hjá heimilum og fyrirtækjum. Þetta eru athyglisverðar hugmyndir en núverandi ríkisstjórnarflokkar hafa algjörlega blásið á þær. Ekki hefur heyrst múkk í þeim hvað ætti frekar að gera. (meira…)
�?órhallur Heimisson í 1. sæti L-listans í Suðvesturkjördæmi

Þórhallur Heimisson prestur í Hafnarfirði mun leiða L-lista fullveldissinna í Suðvesturkjördæmi. Þetta var ákveðið á fundi í gærkvöldi en unnið er að röðun framboðslista flokksins sem mun bjóða fram í fyrsta sinn í komandi alþingiskosningum. Ekki hefur verið ákveðið hver leiðir L-listann í Suðurkjördæmi en Bjarni Harðarsson, bóksali og fyrrverandi alþingismaður, skipar efsta sæti listans […]
Unnur Brá þakkar stuðninginn

Ágætu stuðningsmenn. Ég vil þakka ykkur kærlega fyrir stuðninginn í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins síðastliðinn laugardag. Það er ánægjulegt að finna fyrir þeim hlýhug og samheldni sem ríkir meðal sjálfstæðismanna í kjördæminu. Listinn hefur verið valinn og vindur sér nú í það verkefni að tryggja að stefna Sjálfstæðisflokksins hljómi hátt og skýrt í kosningabaráttunni. Ég hlakka til […]
Forsala hafin á stórdansleik Skítamórals á laugardag

Það vantar ekki stórböndin sem heimsækja Eyjarnar um þessar mundir, Á móti Sól, með Magna héldu fjölmennt ball í Höllinni um helgina og um næstu helgi er komið að Skítamóral að halda uppi góðum móral í Höllinni. Strákarnir ætla að halda risadansleik á laugardaginn og er forsala hafin á Volcano Café. (meira…)
Yfir hundrað manns búnir að skrá sig á Herrakvöld ÍBV

Herrakvöld ÍBV verður haldið föstudaginn 20. mars næstkomandi í Akógeshúsinu. Heiðursgestur verður Valgeri Guðjónsson, tónlistamaður. Kári Vigfússon, yfirbryti mun sjá um matinn og mun hann bjóða upp á margrétta hlaðborð sjávar- og kjötrétta. Skráning er hafin hjá Viktori Ragnarssyni í síma 8964791 eða bara þegar þú lætur klippa þig. (meira…)
Flottur bardagi hjá Sæþóri
Eyjapeyinn Sæþór Ólafur Pétursson hefur þjálfað í vetur hjá Hnefaleikafélagi Reykjavíkur en Sæþór er við nám í Reykjavík. Hann tók þátt í sínu fyrsta móti í langan tíma um síðustu helgi og sýndi sannkallaða Eyjabaráttu þannig að stöðva þurfti bardagann í annarri lotu vegna yfirburða Sæþórs. Hægt er að sjá myndband af bardaganum hér að […]
Lýst eftir hvítri fólksbifreið á Selfossi

Lögreglan á Selfossi biður þá sem hafa orðið varir við hvíta fólksbifreið, líklega Mitshubishi Lancer, að hafa samband í síma 481 1010. Talið er að bifreiðin tengist innbrotum í tvo sumarbústaði í Grímsnesinu aðfaranótt mánudags. Úr öðrum bústaðnum var stolið flatskjá, hljómflutningstæki og kaffikönnu en vasaljósi úr hinum. (meira…)
Sigurstranglegur listi Sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi

Ágætis þátttaka var í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi. Ég er nokkuð ánægður með hve vel spá mín rættist,sem ég setti fram í byrjun vikunnar. Nöfn sjö efstu voru rétt hjá mér, þótt röð manna hafi ekki verið nákvæmlega eins og ég spáði. (meira…)
Geir fundar með Eyjamönnum í kvöld

Formaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra heldur almennan fund með Vestmannaeyingum í Ásgarði í kvöld kl. 20.00. Þar ætlar hann að ræða stjórnmálastöðuna eins og hún lítur út frá hans bæjardyrum. Skoða niðurstöðu prófkjöranna og spá í kosningarnar. Ekki er að efa að forvitnilegt verður að hlusta á Geir, og væntanlega verður þetta síðasta fundur hans […]