Frjálslyndi flokkurinn opnar kosningaskrifstofu

Frjálslyndi flokkurinn opnar kosningaskrifstofu við Strandveg 43a (þar sem G. Stefánsson, umboðs og heildsali var) föstudaginn 27. mars 2009 kl. 16:00. Ef veður leyfir verður grillað, einnig verður boðið upp á kaffi og með því. Efstu menn á listanum verða á staðnum og munu kynna sig og helstu stefnumál flokksins. (meira…)
Framboðslisti Sjálfstæðismanna samþykktur í gær

Eins og komið hefur fram hér á Eyjafréttir.is var framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi samþykktur á kjördæmisþingi flokksins á Selfossi. 4428 greiddu atkvæði í prófkjöri flokksins 14. mars en efstu fjórir hlutu bindandi kosningu. Listinn tók þó breytingum frá úrslitum prófkjörsins en endanlegan lista má sjá hér að neðan. (meira…)
Strandblak í Klaufinni

Hópur fyrrverandi handboltamanna í Eyjum, sem hefur verið að spila blak innanhúss, tók sig til og spilaði suðrænt strandblak á föstudag. Leikið var í Klaufinni í Vestmannaeyjum. Þessir vösku Eyjapeyjar hafa ákveðið að spila strandblak í auknum mæli með hækkandi sól. Heimildarmaður innan hópsins segir við Suðurlandið.is að búast megi við því að átökin verði […]
5 ára telpu bjargað í sundlauginni á Hellu
Sundlaugargestum og starfsfólki sundlaugarinnar á Hellu tókst að bjarga lítilli telpu sem fannst meðvitundarlaus á botni sundlaugarinnar í dag. Lögreglan þakkar það snarræði og réttum viðbrögðum starfsfólksins að það tókst að endurlífga stúlkuna. Stúlkan er á fimmta aldursári. Sundlaugargestur tók eftir því að hún lá á botni laugarinnar og kom henni upp úr. Starfsfólk sundlaugarinnar […]
�?rengslin lokuð vegna umferðaróhapps
Þrengslin eru lokuð í óákveðinn tíma vegna umferðaróhapps. Á vef Vegagerðarinnar kemur fram að búið sé að opna Hellisheiði eftir umferðaróhapp en þar er hálka. Hálkublettir eru á Sandskeiði. Vegir eru annars víðast hvar auðir. Þó eru hálkublettir á nokkrum leiðum. (meira…)
Anton skoraði sigurmarkið fyrir ÍBV

Eyjamenn unnu góðan sigur á Víkingi frá Ólafsvík í fjórða riðli A-deildar Lengjubikarsins í dag, en leikið var á Akranesi. Sigurmarkið kom í uppbótartíma. Jafnræði var með liðunum allan leikinn, mikið um miðjumoð, en engin spjöld fóru þó á loft. (meira…)
Hermann í liði Portsmouth

Hermann Hreiðarsson er í liði Portsmouth sem tekur á móti Everton í ensku úrvalsdeildinni nú í hádeginu, en leikurinn hefst klukkan 12:45. Portsmouth þarf nauðsynlega á sigri að halda, en þeir eru aðeins einu sæti fyrir ofan fallsæti, með 29 stig. (meira…)
Góður sigur á ÍA á Akranesi

Karlalið ÍBV í knattspyrnu lagði ÍA að velli í Lengjubikarnum í gærkvöld. Lokatölur urðu 1:3 ÍBV í vil en leikurinn fór fram í hinu glæsilega knattspyrnuhúsi þeirra Skagamanna. Staðan í hálfleik var 0:2 en þetta var fyrsti sigur ÍBV í Lengjubikarnum. (meira…)
Björgvin í efsta sæti og Lúðvík í heiðurssætinu

Nú liggur fyrir endanlegur framboðslisti Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar 25. apríl næstkomandi. Björgvin G. Sigurðsson, alþingismaður, mun leiða listann. Oddný Guðbjörg Harðardóttir, bæjarstjóri í Garðinum, skipar 2. sætið og Róbert Marshall, aðstoðarmaður samgönguráðherra, verður í 3. sæti. Lúðvík Bergvinsson, alþingismaður, verður í heiðurssætinu neðst á listanum, en hann hefur tilkynnt að hann muni hætta […]
Atli Gíslason í fyrsta sæti

Framboðslisti Vinstri hreyfingarinna græns framboðs hefur verið birtur. Var hann samþykktur á fundi kjördæmisráðs í gærkvöld. Og er þannig skipaður: (meira…)
Nýtt vallarhús við Grýluvöll í Hveragerði
Strandaverk ehf. afhenti Hveragerðisbæ nýtt vallarhús við Grýluvöll í gær, föstudag. Húsið er 250 fermetrar að flatarmáli og mun bæta aðstöðu knattspyrnuiðkenda í Hveragerði til muna. Húsinu var skilað full frágengnu. Fyrirhugað er að vígja Vallarhús Grýluvallar á sumardaginn fyrsta þann 23. apríl næstkomandi. (meira…)
Samsæri KR-inganna

Það eru fjölmargir sem hafa tjáð sig um þá ákvörðun að stöðva síldarhreinsun í Vestmannaeyjahöfn í dag. Flestir eru sammála að hreinsunin sé nauðsynleg enda talsverð mengun sem fylgir dauðum fiski í þúsunda tonna vís. Bestu tilgátuna eiga þeir félagar séra Kristján Björnsson og Halldór B. Halldórsson. Þeir telja þetta einfaldlega samsæri KR-inganna. (meira…)
Surtseyjarsýningin í geymslu

Sýningin Surtsey – jörð úr ægi hefur verið sett í geymslu hjá Náttúrufræðistofnun Íslands. Sýningin var sett upp í Þjóðmenningarhúsinu árið 2007 og átti að flytja hana í Surtseyjarstofu í Vestmannaeyjum að tveimur árum liðnum. Sá tími er liðinn en sýningunni hefur ekki enn verið fundið húsnæði í Vestmannaeyjum. Hugmyndir voru uppi um að hluti […]
Fyndin fótbolti

Knattspyrnuvertíðin er framunda og ÍBV leikur í efstu deíld í sumar. Það er því rétt að rifja aðeins upp þessa skemmtilegu íþrótt með nokkrum sketsum, þar sem allt fer ekki eins og ætlað var, en bara dálítið fyndið. (meira…)
Steini Gunn ráðinn upplýsinga- og þróunarfulltrúi Grindavíkur

Bæjarráð Grindavíkur hefur staðfest ráðningu Þorsteins Gunnarssonar í starf upplýsinga- og þróunarfulltrúa Grindavíkurbæjar. Um nýtt starf er að ræða hjá bænum. Upplýsinga- og þróunarfulltrúinn hefur umsjón með innra og ytra kynningar- og upplýsingastarfi, markaðssetningu og þróun verklags í samvinnu við sviðsstjóra. (meira…)
Eyjamenn eiga í vændum gríðarlegt hreinsunarstarf

Ein gleðilegasta frétt vikunnar er síldartorfan í Vestmannaeyjahöfn. Heilbrigðiseftirlitið á Suðurlandi skrifaði upp á að vissara væri að veiða upp síldina áður en hún dræpist. Grunur lék á að einhver hluti hennar væri sýktur og dæmi eru um að ef síld drepst í stórum stíl verði nánast ólíft vegna ólyktar í kjölfarið. (meira…)
Hópárás á nemanda á Selfossi

Starfsmaður Vallaskóla á Selfossi brást snaggaralega við, eftir hádegi í gær, er hann veitti því athygli er 17 ára piltur kom í skólann og gaf sig á tal við 16 ára gamlan nemanda skólans. Sá eldri fékk hinn til að koma með sér útaf skólalóðinni og allt í einu birtust þar nokkrir piltar og skipti […]
Síldveiðar í Vestmannaeyjahöfn stöðvaðar

Síldveiðar í Vestmannaeyjahöfn hafa verið stöðvaðar. Hafrannsóknastofnun telur ekki fiskifræðileg rök fyrir áframhaldandi veiðum þar sem rúmlega helmingur síldarinnar þar sé nógu vel á sig kominn til að synda af sjálfsdáðum úr höfninni. Eftir umsögn Hafró hefur sjávarútvegsráðuneytið lagt til að veiðarnar verði stöðvaðar. (meira…)
Lýsa yfir vonbrigðum og vantrausti á störf forseta ASÍ

Drífandi stéttarfélag fagnar góðum uppgjörum sjávarútvegsfyrirtækja undanfarið. Staða margra fyrirtækja er góð þrátt fyrir þrengingar í þjóðfélaginu. Það sýnir að málflutningur þeirra stéttarfélaga er kröfðust þess að launahækkunin kæmi til framkvæmda 1. mars, var hárréttur. Drífandi stéttarfélag lýsir yfir miklum vonbrigðum og vantrausti á störf forseta og samninganefndar ASÍ í aðdraganda endurskoðunar kjarasamningana. (meira…)
Veglegt afmælisrit komið á vefinn

Lúðrasveit Vestmannaeyja fagnar í ár 70 ára starfsafmæli sínu en til að minnast tímamótanna, gaf sveitin út veglegt afmælisrit. Í blaðinu er m.a. rætt við Óla Jóns, sem hefur verið í sveitinni í næstum hálfa öld og tvíburasysturnar Höllu Þórdísi og Önnu Vigdísi sem eru að stíga sín fyrstu skref í sveitinni. Nú er blaðið […]