Flóahreppur aðili að �?lafsvíkuryfirlýsingunni
Flóahreppur hefur bæst í hóp þeirra sveitarfélaga sem skrifað hafa undir svokallaða Ólafsvíkuryfirlýsingu. Sveitarfélög sem gerast aðilar að yfirlýsingunni staðfesta þar með framlag sitt til sjálfbærrar þróunar. (meira…)
Kvótakerfið (að gefnu tilefni)

Þó nokkuð er um það, að útgerðarmenn telji að hugmyndir Frjálslyndra um breytt kvótakerfi gangi út á það, að taka af þeim réttinn til að veiða fiskinn, til þess að færa hann einhverjum öðrum. Þetta að sjálfsögðu alrangt og bara dapurlegt þegar útgerðarmenn reyna að troða upp á sína sjómenn einhverjum tilbúnum upplýsingum um það […]
Engin skerðing á fæðingarþjónustu á Selfossi
Engin skerðing verður á fæðingarþjónustu á Selfossi, eins og fyrrverandi heilbrigðisráðherra hafði boðað. Þetta kom fram á fundi sem Ögmundur Jónasson, núverandi ráðherra heilbrigðismála, hélt með starfsfólki Heilbrigðisstofnunar Suðurlands nú í eftirmiðdaginn. Áður en fundurinn hófst, tók Ögmundur á móti áskorun með nöfnum um 4300 íbúa á svæðinu, þar sem öllum áformum um niðurskurð var […]
Sjávarútvegsráðuneytið vill að Hafró rannsaki betur síldina í höfninni

Sjávarútvegsráðuneytið hefur nú óskað eftir því við Hafrannsóknastofnunina að afla enn frekari gagna um ástandið í höfninni í samstarfi við heimamenn og Heilbrigðiseftirlit Suðurlands, til þess að unnt sé að meta þá mengunarhættu sem bæjaryfirvöld í Vestmannaeyjum hafa áhyggjur af. Niðurstöður munu liggja fyrir innan fárra daga og mun ráðuneytið þá taka ákvörðun um framhaldið. […]
Kári Kristján til ZMC Amicitia

Kári Kristján Kristjánsson, línumaður Íslandsmeistara Hauka í handknattleik, gengur til liðs við svissneska meistaraliðið ZMC Amicitia í Zürich í sumar. Hann hefur gert tveggja ára samning við félagið og er ætlað að fylla skarð norska línumannsins Frank Löke sem hyggst róa á önnur mið. (meira…)
Kristbjörg Steinunn skipar 1. sæti L-listans í Suðurkjördæmi

Oddviti L-lista fullveldissinna í Suðurkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar verður Kristbjörg Steinunn Gísladóttir. Oddviti L-listans í Reykjavík suður verður Már Wolfgang Mixa. (meira…)
Sparkaði í höfuð dyravarðar

Það var í nógu að snúast hjá lögreglunni í síðustu viku. Tvær líkamsárásir voru kærðar til lögreglu og áttu þær báðar sér stað í Höllinni. Í öðru tilvikinu var ráðist á dyravörð og m.a. sparkað í höfuð hans. Hann er þó ekki alvarlega slasaður. Í hinu tilvikinu var maður sleginn í andlitið þannig að hann […]
Um fjögur þúsund undirskriftir afhentar í dag
Ögmundi Jónassyni, heilbrigðisráðherra, verður síðar í dag afhent um fjögur þúsund undirskriftir Sunnlendinga sem mótmæla fyrirhugaðri skerðingu á heilbrigðisþjónustu á Suðurlandi. (meira…)
Godthaab greiðir launahækkanir

Fiskvinnslufyrirtækið Godthaab í Nöf í Vestmannaeyjum hefur ákveðið að greiða starfsfólki sínu umsamdar launahækkanir frá 1. mars síðastliðnum. Fyrirtækið er ekki í samtökum atvinnurekenda. Um 80 starfsmenn hjá Godthaab fá 13.500 króna launahækkun útgreidda um næstu mánaðamót. (meira…)
Mikið af dauðri síld á botninum

Þeir félagar Gunnlaugur Erlendsson og Þorbjörn Víglundsson fóru með neðansjávarmyndavél í gær til að kanna ástand síldarinnar sem þar er. Í bloggfærsu Þorbjörns á http://tobbivilla.123.is segir hann að botninn sé þakinn dauðri síld. Myndbandið má sjá hér að neðan. (meira…)
Flatskjáum stolið tvisvar úr bústað á Flúðum

Lögreglan á Selfossi handtók tvo menn um fimmleytið í nótt með drekkhlaðinn bíl af þýfi sem reyndist vera úr sumarbústöðum við Þverlág á Flúðum. Að sögn lögreglunnar var bíllinn svo niðursiginn að aftan að hann vakti athygli við keyrslu og reyndist við nánari athugun vera smekkfullur af þýfi. (meira…)
Sparisjóðir á Suðurlandi þurfa að auka stofnfé

Engar breytingar urðu á daglegri starfsemi sparisjóðanna á Suðurlandi við yfirtöku ríkisins á SPRON (Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis). Sparisjóður Vestmannaeyja rekur afgreiðslu 6 sparisjóða á Suðurlandi. Líkt og með aðra sparisjóði er unnið að því að auka stofnfé Sparisjóðs Vestmannnaeyja. Sótt hefur verið um framlag frá ríkissjóði sem nemur fimmtungi stofnfjár, í samræmi við neyðarlög […]
�?tgjöld lækki um 14 milljónir króna á ári

Framkvæmdastjórn Heilbrigðisstofnunar Suðurlands (HSu) segir óhjákvæmilegt að niðurskurður um rúmlega 200 milljónir króna á ári hafi áhrif á þjónustu stofnunarinnar. Framkvæmdastjórnin hefur sent frá sér tilkynningu vegna gagnrýni á fyrirhugaðar breytingar við sjúkraflutninga í Rangárvallasýslu. (meira…)
Fundað með hagsmunaaðilum um flugsamgöngur í Eyjum

Í morgun var haldinn fundur í Ráðhúsi Vestmannaeyja en fundarefni voru flugsamgöngur við Vestmannaeyjar. Á fundinum sátu m.a. Árni Gunnarsson, framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands, Valgeir Arnórsson, framkvæmdastjóri Flugfélags Vestmannaeyja, Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri Flugstoða auk fulltrúa heimamanna. Elliði Vignisson, bæjarstjóri segir að leitað sé allra leiða til að takmarka það tjón sem orðið hefur vegna breytinga á […]
Vestmannaeyjabær krefst þess að hreinsun hafnarinnar fái að hefjast að nýju

Vestmannaeyjabær hefur sent Steingrími J. Sigfússyni, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra bréf þar sem farið er fram á að tafarlausa heimild til að hefja hreinsun á ný. Ef ekki verður orðið við beiðni Vestmannaeyjabæjar, áskilur hann sér rétt til að krefja ríkið um greiðslu vegna þess kostnaðar sem verður af hreinsun vegna umhverfisslyss sem líkur eru fyrir. […]
Orri vann keppni bakaranema

Orri Arnórsson, sonur Arnórs Hermannssonar, bakarameistara og Helgu Jónsdóttur, sigraði í Nemendakeppni Kornax sem haldin var um helgina. Þetta er í tólfta sinn sem keppnin er haldin en markmiðið með keppninni er að efla faglegan metnað í bakaraiðn og hvetja bakaranema til nýsköpunar og til að temja sér öguð vinnubrögð. Sjö tóku þátt í keppninni […]
Atli Guðjónsson í ÍBV

Atli Guðjónsson hefur fengið félagsskipti úr ÍA yfir í ÍBV en þetta kemur fram á Fótbolti.net. Atli, sem er varnamaður, lék með ÍBV í Lengjubikarnum um helgina einmitt á móti sínum gömlu félögum úr ÍA og einnig gegn Víkingi frá Ólafsvík. Atli mun leika með ÍBV í Lengjubikarnum til reynslu. (meira…)
Farið inn í tvo sumarbústaði við �?ykkvabæ
Farið var inn í tvo sumarbústaði í nágrenni Þykkjavabæjar um helgina og þaðan stolið sjónvörpum, flatskjá og töluverðu magni af verkfærum. Lögreglan á Hvolsvelli biður þá sem hafa orðið varir við grunsamlegar mannaferðir á þessu svæði frá föstudegi til laugardags að hafa samband í síma 488 4110. (meira…)
Stórtónleikar með Ný Dönsk

Hljómsveitin Ný Dönsk mun halda stórtónleika í Höllinni 4. apríl næstkomandi en engu verður til sparað á tónleikunum. Sveitin er ein vinsælasta dægurlagasveit landsins og hefur síðan 1987 framleitt hvern stórsmellinn á fætur öðrum. Forsala á tónleikana hefst á morgun klukkan 12.00 á Volcano Café. (meira…)
Eyjamenn sigruðu 2. deild með yfirburðum

Taflfélag Bolungarvíkur vann öruggan sigur á Íslandsmóti skákfélaga sem fór fram á Akureyri um helgina. Taflfélag Vestmannaeyja vann aðra deild með yfirbuðum. Björn Ívar Karlsson náði besta árangri Eyjamanna en hann var með 6,5 vinninga af 7 mögulegum. (meira…)