Guðlaugssund þreytt í Hveragerði

Á fimmtudagskvöld þann 12. mars þreyttu 22 sundmenn Guðlaugssund í Laugaskarði í Hveragerði. Synt var til að minnast frækilegs afreks Guðlaugs Friðþórssonar er komst lífs af er báturinn Hellisey sökk um 6 kílómetra suðaustur af Heimaey og að minnast þeirra skipverja sem fórust. Þetta er í annað sinn sem sundið er þreytt í Laugarskarði en […]

Stöðvaður með fíkniefni við komuna til Eyja

Síðastliðna vika var með rólegra móti hjá lögreglu, en þó þurfti lögreglan að hafa afskipti af fólki vegna hinna ýmsu mála. Nokkuð var um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum án þess þó að upp úr syði milli nágranna. Eitt fíkniefnamál kom upp í vikunni sem leið en maður sem var að koma með Herjólfi var […]

Réttindi sjóðfélaga skerðast ekki

Áunnin réttindi eða lífeyrisgreiðslur sjóðsfélaga hjá Lífeyrissjóði Vestmannaeyja skerðast ekki en lífeyrissjóðir hafa margir tilkynnt um allt að 10% skerðingu. Heildarskuldbindingar Lífeyrissjóðs Vestmannaeyja eru 3,2% umfram hreina eign í árslok 2008 og er því innan 10% lögbundinna marka. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lífeyrissjóði Vestmannaeyja sem má lesa hér að neðan. (meira…)

Prjónakaffið endurtekið á Volcano

Á morgun, þriðjudag verður Prjónakaffið endurtekið á Volcano Café en Prjónakaffið var haldið í fyrsta sinn á dögunum. Síðast mættu sextíu konur á öllum aldri og heppnaðist kaffisamsætið afar vel. Allir eru velkomnir sem endra nær, konur og karlar. (meira…)

Fréttatilkynning frá Frjálsynda flokknum

Opnun kosningaskifstofu Frjálslynda flokksins í Vestmannaeyjum sl. föstudag tókst frábærlega og þökkum við öllum sem komu kærlega fyrir komuna. Einnig var kvöldvakan mjög vel heppnuð og var setið til kl. 1 um nóttina. Ákveðið var strax um hádegið að fresta grillveislunni í bili, enda unnið í öllum frystihúsum og flestir bátar á sjó. (meira…)

Skotið á að aflinn hafi verið um 500 tonn

Það var góð stemmning á bryggjunni í Vestmannaeyjum í dag þegar Kap VE byrjaði að veiða síld í höfninni. Þetta er í annað sinn sem skipið reynir við síldina í höfninni en eftir fyrsta túrinn var veiðin stöðvuð. Hún var hins vegar leyfð að nýju á föstudaginn enda fyrirséð að talsverð mengun yrði af síldinni […]

KFS lagði Afríku í Lengjubikarnum

KFS lagði Afríku í gær þegar liðin áttust við í C-deild Lengjubikarsins. Lokatölur urðu 3:0 en mörk KFS skoruðu þeir Sæþór Jóhannesson, Davíð Egilsson og Anton Bjarnason. Leikurinn fór fram á gervigrasvelli Leiknismanna í Breiðholtinu. (meira…)

Svekkjandi tap gegn efsta liðinu

Kvennalið ÍBV tapaði með minnsta mun þegar liðið tók á móti efsta liði 2. deildar, B-liði Vals í Vestmannaeyjum í dag. ÍBV, sem er í 9. sæti deildarinnar sýndi gestunum þó enga virðingu og var síst lakara liðið. Staðan í hálfleik var 16:15 ÍBV í vil en lokatölur urðu 29:30 fyrir Val. (meira…)

Síldveiðar í Vestmannaeyjahöfn leyfðar á ný

Sjávarútvegsráðuneytið gerir ekki athugasemdir við að síldveiðum verið haldið áfram til að hreinsa Vestmannaeyjahöfn. Ráðuneytið hefur sent erindi til hafnaryfirvalda í Eyjum þar sem greint er frá þessu með vísan í erindi sem Hafrannsóknastofnunin sendi til ráðuneytisins eftir könnun á magni og ástandi síldarinnar í gær. (meira…)

Að velja sér rúm

Þegar velja skal rúm er að mörgu að hyggja. Auðvitað þarf það að vera mjúkt og fara vel með mann. Svo er það í sumum tilfellum líka mjög mikilvægt að hægt sé að skríða undir það, annars getur illa farið. (meira…)

Krókódílarnir afhentu handknattleiksráði 10 milljón króna ávísun

Í gær héldu Krókódílarnir litla veislu í Týsheimilinu en tilefnið var að afhenda handknattleiksráði ÍBV styrk. Krókódílarnir er hópur fólks sem greiðir mánaðarlega upphæð sem rennur óskert til handknattleiksráðs og afhentu Krókódílarnir handknattleiksráði ávísun að upphæð 10 milljónir króna. Það er sú upphæð sem Krókódílarnir hafa lagt til síðustu fjögur ár. (meira…)

Margrét lára með þrennu og lagði upp eitt

Margrét Lára Viðarsdóttir er byrjuð að vekja athygli á sér í Svíþjóð því hún skoraði þrennu og lagði upp eitt mark í 6-0 sigri Linköpings gegn 1. deildarliði Eskilstuna í kvöld. Um var að ræða síðasta æfingaleik Linköpings fyrir fyrsta leik liðsins í deildinnni gegn Sunnanå á fimmtudaginn í næstu viku. (meira…)

Hoffman ætlar að rokka fyrir ÍBV

Eins og Eyjafréttir.is greindu frá á sínum tíma vaknaði hugmynd á spjallvef ÍBV að endurútgefa lagið Slor og skítur, betur þekkt sem Dúrí dara en leikmenn ÍBV syngja lagið hástöfum eftir sigurleiki. Guðmundur Rúnar Lúðvíksson, höfundur lagsins hefur gefið leyfi fyrir endurútgáfunni og Eyjarokksveitin Hoffman ætlar að taka upp, ásamt auðvitað leikmönnum ÍBV sem verða […]

Kærar þakkir Eyjamenn

Fólkið hefur talað. Niðurstöður prófkjörs liggja fyrir. Einhverjir ­liggja eftir sárir og vígamóðir en aðrir brosa breiðar en fyrr, glaðir með sinn árangur. Þannig er það bara. Það geta ekki allið unnið í þessari keppni, frekar en nokkurri annarri. 17 frambjóðendur gáfu kost á sér í fimm efstu sætin og ­flestir að stefna á efstu […]

Fermingar-Vakt með Fréttum

Fermingarblað Vaktarinnar og Frétta, Fermingar-Vaktin kom út í dag og er dreift til áskrifenda Frétta. Þá liggur blaðið einnig frammi í helstu verslunum bæjarins og þá er hægt að lesa blaðið hér á netinu. Í Fermingar-Vaktinni má m.a. finna andlitsmyndir af öllum fermingarbörnum í Eyjum í ár, skemmtileg viðtöl og greinar og auðvitað upplýsingar um […]

Halda mætti að allur síldarstofninn væri í höfninni

Hvers vegna í ósköpunum fá Eyjamenn ekki að hreinsa höfnina? Það verður varla geðslegt ef nokkur hundruð tonn fá að drepast og rotna í höfninni. Það verður óskemmtilegt ástand sem þá skapast. Einhvern veginn hélt maður að það væri bara hið besta mál að veiða þetta magn sem er í höfninni og bræða. Það væri […]

Nauðgun kærð til lögreglunnar í Eyjum

Til rannsóknar hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum er kæra vegna meintrar nauðgunar sem sögð er að átt hafi sér stað aðfaranótt 22. mars sl. Málsatvik liggja ekki ljós fyrir en skýrsla hefur verið tekin af meintum þolanda, sem er kona um fertugt, og meintum geranda, sem er karlmaður um þrítugt. (meira…)

Ný sundlaug Hornafjarðar vígð á sumardaginn fyrsta

Ný sundlaug Hornafjarðar verður opnuð almenningi á sumardaginn fyrsta, þann 23. apríl næstkomandi. Í gær var ákveðið að ekki væri skynsamlegt að opna laugina fyrr en búið væri að keyra laugarkerfið í nokkra daga. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.