Sr. Sveinn Valgeirsson kominn til þjónustu

Séra Sveinn Valgeirsson hinn nýi prestur í Eyrarbakkaprestakalli er kominn til starfa. Hann flytur jólahugvekju í Eyrarbakkakirkju á aðventukvöldi í dag 1. desember kl. 20:00 þar sem sameiginlegur kór Eyrarbakka- og Stokkseyrarkirkna syngur ásamt barnakór og einsöngvurum. Sambærilegt aðventukvöld verður haldið í Stokkseyrarkirkju á morgun þriðjudaginn 2. desember kl. 20:00 (meira…)

Jólahlaðborð starfsmanna

Starfsmenn í Flóahreppi tóku sig saman og fóru á jólahlaðborð í Skíðaskálanum Hveradal, föstudaginn 28. nóvember s.l. Þetta var í fyrsta en örugglega ekki síðasta skipti sem starfsmenn fara saman út að borða í upphafi aðventunnar. Myndir frá jólahlaðborði má sjá í myndasafni. www.floahreppur.is/ljosmyndir/gallery.asp?categoryid=58 (meira…)

SÍS vill rannsókn á Gift

AÐALFUNDUR Sambands íslenskra samvinnufélaga, sem fram fór á Hótel Loftleiðum á föstudag, samþykkti að skipa sérstaka rannsóknarnefnd til þess að fara yfir málefni Giftar fjárfestingarfélags, sem stofnað var um skuldbindingar Eignarhaldsfélags Samvinnutrygginga í júní í fyrra. Samvinnusjóðurinn hefði orðið stærsti hluthafinn Eins og greint hefur verið frá í Morgunblaðinu eru skuldir félagsins nú á þriðja […]

Selfyssingar vissu vel af viðræðum við Viðar

Gunnlaugur Jónsson, nýráðinn þjálfari 1. deildarliðs Selfoss gagnrýndi vinnubrögð ÍBV harðlega í viðtali á Fótbolti.net í vikulok og sagði m.a. að Eyjamenn hefðu haft uppi óheiðaleg vinnubrögð og segir Selfyssinga ekkert hafa vitað af undirskrift Viðars Kjartanssonar sem gekk í raðir ÍBV frá Selfossi. Nú hefur Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV svarað Gunnlaugi þar sem hann […]

Opnun Ungmennahúss í Árborg

Í tilefni 10 ára afmælis Sveitarfélagsins Árborgar, opnunar Ungmennahúss og stofnunar Ungmennaráðs Árborgar verður haldinn hátíðarfundur bæjarstjórnar Árborgar og Ungmennaráðs Árborgar í Ráðhúsinu á morgun mánudaginn 1. des kl 17:00. Á fundinum verða til umræðu málefni ungs fólks í sveitarfélaginu. Að loknum hátíðarfundinum fer fram formleg opnun Ungmennahúss í húsnæði þess að Austurvegi 2 (Pakkhúsið). […]

Mökkinn leggur á haf út

Þessi athyglisverða MODIS-mynd sem tekin var í gær, 28. nóvember kl. 13:10 sýnir svo ekki verður um villst afleiðingar allhvassrar N -áttarinnar. Það leggur greinilegan sandmökk langt suður af landinu. Strókarnir eða taumarnir vísa á uppruna s.s. á Mýrdalssandi. Takið eftir einum þeim skýrasta austur af Heimaey. Hann virðist án tengingar við land, en líklega […]

Einleikur um Gísla Súrsson

Á morgun mánudaginnn 1. desember, fullveldisdaginn, verður boðið frítt á leiksýningu í Félagsheimilinu í Árnesi kl. 19:30. Um er að ræða einleikinn Gísla Súrsson sem Elfar Logi Hannesson í Kómedíuleikhúsina á Ísafirði flytur. Hann samdi verkið ásamt leikstjóranum Jóni Stefáni Kristjánssyni. Það er áhugahópur um Þjórsárdal sem stendur fyrir sýningunni og kynnir með þessu hetju […]

Aðventusamkoma verður haldin í félagsheimilinu Leikskálum

Aðventusamkoma verður haldin í félagsheimilinu Leikskálum í Vík í dag sunnudaginn 30. nóvember kl. 16:00. Samkoman er samstarfsverkefni allra skóla og sókna í Mýrdal. Sérstakir gestir verða félagar í kirkjukórum, organisti og sóknarprestur Kirkjubæjarklaustursprestakalls. Í lok samkomunnar verða tendruð ljós á jólatré Mýrdælinga. (meira…)

Aðventukvöld í Hvergerðiskirkju

Aðventukvöld verður í Hveragerðiskirkju í dag sunnudaginn 30. nóvember kl. 20:00. Á dagskrá verður fjölbreytt tónlist flutt af Kirkjukór Hveragerðis- og Kotstrandarsókna og fleira tónlistarfólki. Einnig flytja fermingarbörn helgiþátt, Englar og aðventan. Séra Jakob Ág. Hálmarsson, fyrrum Dómkirkjuprestur í Reykjavík og prestur á Íafirði, flytur hugvekju. (meira…)

Fundur um stöðuna á vinnumarkaði og menntunarúrræð

Á miðvikudag fór aðstoðarskólameistari, Þórarinn Ingólfsson, á fund þar sem hittust fulltrúar frá stéttarfélögum, Landsmennt, Svæðisvinnumiðlun Suðurlands og Fræðsluneti Suðurlands. Á fundinum var rætt um stöðuna á vinnumarkaði og möguleg menntunarúrræði í því sambandi. (meira…)

Ljós tendruð á jólatré á Ráðhústorgi á morgun 30. nóv. kl. 18:00

Á morgun sunnudaginn 30. nóvember, fyrsta sunnudag í aðventu, verður að venju boðið upp á hátíðlega dagskrá í Þorlákshöfn. 11:00. Sunnudagaskóli í Þorlákskirkju. 16:00. Aðventustund í Þorlákskirkju. . 18:00 Ljós tendruð á jólatré á Ráðhústorgi. Lúðrasveit Þorlákshafnar spilar jólalög, skólakórar Grunnskólans syngja með lúðrasveit og forseti Kiwanis, Kári Hafsteinsson flytur erindi. Að lokum mæta jólasveinar […]

Kveikt á jólatrénu á morgun 30. nóv. kl. 18:00

Á morgun, sunnudaginn 30. nóvember, kl.18:00 mun verða kveikt á jólatré Stokkseyringa. Jólatréð verður staðsett á Bankatúninu. Fyrir utan að kveikja á jólatrénu munu leikskólabörn úr Æskukoti syngja nokkur lög sem og að nokkrir jólasveinar gætu kíkt í heimsókn. Það er Ungmennafélag Stokkseyrar sem sér um viðburðinn og eru allir íbúar Árborgar hvattir til að […]

Sigurður sleit hásin

Handknattleikslið ÍBV varð fyrir gríðarlegu áfalli í dag í upphafi leiks ÍBV og Gróttu. Sigurður Bragason, fyrirliði og einn besti leikmaður liðsins undanfarin ár, sleit hásinina. Gera þurfti um tíu mínútna hlé á leiknum áður en fyrirliðinn var fluttur með sjúkrabíl á sjúkrahúsið í Eyjum. Samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá forráðamönnum ÍBV var Sigurður sendur […]

Ný þjónusta í tilefni 60 ára afmælis

Rakarastofa Björns og Kjartans í Miðgarði á Selfossi fagnar 60 ára afmæli um þessar mundir. Af því tilefni býður stofan til sýningar á munum og myndum af starfsemi fyrirtækisins s.l. 60 ár. Sérstök dagskrá kl. 16:00 í dag. Þá hefur einnig verið boðið upp á greiðslumat” og síðan “staðgreiðslu” í gamla rakarastólnum og hefur fjöldi […]

Heilsuþorp á Flúðum

Heilsuþorp rís á Flúðum, samkvæmt viljayfirlýsingu sem fulltrúar Hrunamannahrepps og Heilsuþorpa ehf. undirrituðu í gær. Hrunamannahreppur leggur til átta hektara landsvæði á Flúðum og Heilsuþorp ehf. alla undirbúningsvinnu, svo sem hönnun, skipulag og öflun framkvæmdafjár. Fram kom við undirritunina í gær að félagið mun efna til samstarfs við fjölmarga aðila sem hafa hagsmuni af þátttöku […]

Jólabasarinn á morgun sunnudaginn 30. nóvember

Nú er komið að sjálfum jólabasar Kvenfélagsins á Eyrarbakka, sem á sinn fasta sess í félagsstarfi Eyrbekkinga. Basarinn verður haldinn á Stað sunnudaginn 30. nóvember. Húsið verður opnað kl. 14:00. Seldar verða hefðbundnar basarvörur, hannyrðir af fjölbreyttu tagi og bakstur af ýmsum sortum. (meira…)

Gangið hægt um gleðinnar dyr

Helgin og framundan og margir sem dreypa á einhverjum þeim drykk sem kann að valda vandræðum, sérstaklega ef hans er neytt í miklu magni. Hér er stutt myndband um afleiðingar af slíku. (meira…)

Gáfu Kvenfélagin Líkn peningagjöf

Forsvarsmenn Hallarinnar, veislu- og ráðstefnuhúss í Vestmannaeyjum gáfu í dag Kvenfélaginu Líkn peningagjöf. Tilefnið var að starfsleyfi Hallarinnar barst í hús um leið og 1. des. kaffi Líknar fór fram en kaffisamsætið hefur verið haldið í Höllinni undanfarin ár. Hallarbændur og Einsi Kaldi hf., sem rekur eldhúsið í Höllinni, lána kvenfélaginu húsið og eldhúsið án […]

Ást á Norðrinu, Norrænna bókasafnavikan

Í dag 28. nóv. klukkan 18:00 býður Bæjarbókasafn Ölfuss upp á rökkurstund við kertaljós af tilefni Norrænu bókasafnavikunnar. Lesinn verður texti eftir finnsku skáldkonuna Eevu Kilpi, en Eeva samdi textann sérstaklega til upplesturs í þessari viku og tengist hann þema vikunnar sem að þessu sinni er: Ást á Norðrinu. Textinn verður lesinn á íslensku en […]

Ellefu hænur gengu lausar um bæinn í morgun

Útskriftanemar FÍV dimmiteruðu í morgun en hefð er fyrir því að útskriftanemar klæði sig upp í búninga við þessa athöfn. Í ár klæddust útskriftanemendur frá FÍV hænsnabúningum en hænurnar ellefu létu sér það ekki duga að fara upp í Framhaldsskóla, heldur komu einnig við í öðrum skólum bæjarins og glöddu börnin. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.