�?tla að selja jólasælgætið sitt um helgina

Hin árlega jólasælgætissala Kiwanisklúbbsins Helgafells, mun fara fram næstu helgi, 28.-30. nóvember nk. Allur ágóði af sölu sælgætisins rennur til hinna ýmsu góðgerðamála í bænum, og er það von og ósk okkar Kiwanisfélaga að bæjarbúar taki vel á móti okkur nú, sem áður fyrr. (meira…)
Nýi þjálfari Selfoss ósáttur við Eyjamenn

Gunnlaugur Jónsson þjálfari Selfoss býst við að liðið missi nokkra leikmenn frá síðustu leiktíð en þegar er ljóst að nokkrir eru farnir og aðrir eru í óvissu. Efnilegasti leikmaður 1. deildar, Viðar Örn Kjartansson gekk á dögunum í raðir ÍBV og Gunnlaugur sér mikið á eftir honum. (meira…)
Vilja gefa út sjálfshjálparbók fyrir ung börn

Á fundi fjölskyldu- og tómstundaráðs í vikunni lá fyrir erindi frá Thelmu Gunnarsdóttur og Árnýju Ingvarsdóttur sálfræðingum þar sem þær sækja um fjárstyrk til útgáfu á sjálfshjálparbók fyrir börn á aldrinum 6 – 12 ára. Markmið bókarinnar er að hjálpa foreldrum og börnum þeirra að takast á við áhyggjur, áður en þær verða að alvarlegum […]
Tvöldur sigur HSK manna á Íslandsmótinu í hryggspennu
Íslandsmótið í hryggspennu fór fram í glímuhúsi Ármanns í Reykjavík fyrir skömmu. HSK vann tvöfaldan sigur í -80 kg flokki karla. Hreinn Heiðar Jóhannsson sigraði og Magnús Bjarki Snæbjörnsson varð annar. Sannarlega glæsilgur árangur hjá þessum ungu og efnilegu fangbragðamönnum úr Laugardalnum. (meira…)
Samgöngur til Eyja í algjöru uppnámi

Hætt hefur verið tímabundið við útboð á smíði nýrrar Vestmannaeyjaferju og Flugfélag Vestmannaeyja er hætt að fljúga á milli lands og Eyja. Bæjarráð Vestmannaeyja lýsir yfir miklum vonbrigðum með stöðu mála. Skorað er á samgönguráðherra að leita leiða til að bjóða út smíði skipsins og í ljósi kreppu að allra leiða verði leitað til að […]
Alls var 106.500 fjár slátrað á Selfossi í haust
Hjá Sláturfélagi Suðurlands á Selfossi er sauðfjárslátrun lokið þetta haustið en alls var slátrað 106.500 fjár: Það er mesti fjölödi sem slátrað er í einu húsi á landinu þetta haustið. Meðalvigtin var 15,4 kg og slátrun gekk mjög vel að sögn Hermann Árnasonar, stöðvarstjóra. Hermann er á förum frá Sláturfélaginu eftir að unnið við sauðfjárslátrun […]
Jólaljósin kveikt á morgun 28. des. kl. 15:30
Á morgun föstudaginn 28. nóvember klukkan 15:30 verður kveikt á jólaljósum í Krakkaborg og í Þingborg. Allir íbúar sveitarfélagsins eru velkomnir. Foreldrar barna sem ekki eru í vistun á þessum degi eru hvattir til koma með börn sín og taka þátt í jólastemmningunni. (meira…)
Jólamarkaður – spákona – og gleði – helgina 29-30 nóvember
Jólamarkaður verður í Lista og Menningarverstöðinni á Stokkseyri helgina 29. og 30. nóvember 2008 kl. 13:00-17:00. Ókeypis sölubásar í stóra sal, fyrir alla sem vilja selja eitthvað, hvort sem er kompudót-handverk-matvara-fatnaður eða hvað sem er.Hvetjum eldri sem yngri til að nýta sér þetta, bæði til að selja og kaupa. Spákona verður á staðnum fyrir þá […]
�?rettándaskemmtunin samkvæmt dagatalinu

Ákvörðun var tekin á fundi Þrettándanefndar ÍBV í morgun. Þrettándinn 2009 verður haldinn þriðjudaginn 6. janúar á Þrettándanum sjálfum og hefst kl. 19.00. Einhver umræða hefir verið um breytingar á dagsetningu hátíðarinnar, þ.e. færa hana að helgi. Það fór hins vegar ekkert á milli mála í morgun að Grýla, Leppalúði og jólasveinarnir þrettán höfðu haft […]
Engum sagt upp í Eyjum

Í morgun tilkynntu tvö stórfyrirtæki, Eimskip og Húsasmiðjan, fjöldauppsagnir á starfsfólki en bæði fyrirtækin eru með útibú í Vestmannaeyjum. Eftir því sem næst verður komist hefur engum starfsmanni í Vestmannaeyjum verið sagt upp hjá fyrirtækjunum tveimur. (meira…)
Sökudólgurinn fyrir bilun Herjólfs fundinn?

Á Mbl.is er greint frá því að við Dyrhólaós á Reynisfjöru, alveg upp við Dyrhólaey, hafi fundist hræ af stórhveli, 18 til 20 metra langt. Hausinn á hræinu er nokkuð mikið laskaður og er talið að hvalurinn hafi lent í skipsskrúfu eða í árekstri við skip. Jafnvægisuggi Herjólfs eyðilagðist á dögunum og hefur ekki verið […]
Undirbúningur Shellmótsins hafinn

Þær góðu fréttir berast af Shellmótinu, að lið sem ekki hafa verið með undanfarin ár eru nú farin að tilkynna sig. Nú síðast voru Grindvíkingar að boða komu sína, en þeir hafa ekki verið með síðustu ár. Það lítur vel út með krakkamótin næsta sumar, frábærir stuðningsaðilar eru á báðum mótum, og síðustu mót hafa […]
Hermann gæti mætt AC Milan

Tony Adams, knattspyrnustjóri Portsmouth, gaf í gær í skyn að Hermann Hreiðarsson og Kanu gætu hugsanlega verið í byrjunarliði Portsmouth fyrir leikinn gegn AC Milan í UEFA-bikarnum í kvöld. (meira…)
Narfi ehf. leitar að hentugri bát

Útgerðarfélagið Narfi ehf. hefur selt Narfa VE til Keflavíkur. Viðar Elíasson, útgerðarmaður og fiskverkandi, sagði að báturinn hefði ekki hentað, miðað við kvótastöðu félagsins en unnið verði að því að finna hentugri bát. (meira…)
Afmælissýningin opnar í dag 27. nóvember
Rakarastofa Björns og Kjartans í Miðgarði á Selfossi fagnar 60 ára afmæli um þessar mundir. Af því tilefni býður stofan til sýningar á munum og myndum af starfsemi fyrirtækisins s.l. 60 ár og verður uppsett stofa frumherjans Gísla Sigurðssonar í anddyri Miðgarðs sem hefst í dag, fimmtu-daginn 27. nóvember, og stendur til 24. desember. Rakarastofan […]
Tónleikar á Riverside, Hótel Selfossi í kvöld, fimmtudaginn 27. nóvember kl. 20:30
Stórsveit Suðurlands verður með tónleika á Riverside, Hótel Selfossi í kvöld, fimmtudaginn 27. nóvember kl. 20:30 Með hljómsveitinni kemur fram Guðlaug Dröfn Ólafsdóttir djasssöngkona. Efnisskráin er mjög fjölbreytt, hefðbundinn djass, samba, popp og e.t.v. læðast með nokkur jólalög. Sunnlendingar eru hvattir til að koma og eiga skemmtilega stund með stórsveitinni og Guðlaugu. Aðgangseyrir kr. 1.000 […]
Kvótann til fólksins
Ríkið hefur nú í reynd endurheimt stóran hluta af fiskveiðikvótanum sem var færður útgerðarkóngum fyrir aldarfjórðungi með ranglátustu aðgerð íslenskra yfirvalda á síðari árum. Í kreppunni hefur skapast einstakt tækifæri til að kollvarpa þessu ranglæti og koma auðlindinni aftur í hendur fólksins í landinu. (meira…)
Verðbólgan mælist nú 17,1%
Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í nóvember 2008 er 327,9 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 1,74% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 298,3 stig og hækkaði hún um 1,84% frá október. Verð á mat og drykkjarvöru hækkaði um 3,6% (vísitöluáhrif 0,46%), verð á áfengi og tóbaki hækkaði um 6,5% (0,17%) og verð […]
Hvernig félagslíf er í boði á Suðurlandi?
Nú er unnið að gerð gagnagrunns um hvers kyns félags- og menningarstarf sem er í boði á Suðurlandi og opið er öllum almenningi. Stjórnir félagasamtaka eru hvattar til að senda eftirtaldar upplýsingar fyrir 7. desember til skráningar í gagnagrunninn á netfangið glugginn@sudurglugginn.is : (meira…)
Engin ákvörðun liggur fyrir um niðurskurð

Undanfarna daga hafa borist fréttir af fyrirhuguðum niðurskurði hjá heilbrigðisstofnunum á landinu og m.a. var sagt frá tilskipun frá heilbrigðisráðuneyti um að loka ætti skurðstofunni á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Gunnar K. Gunnarsson, forstöðumaður Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja, kannast ekki við slíkar tilskipanir og segir að leitað hafi verið til forstöðumanna og óskað eftir hugmyndum um hvernig skera mætti […]