Japanir heimila innflutning á hvalkjöti frá Íslandi
Fjármála- og viðskiptaráðuneyti Japans hefur samþykkt innflutningsleyfi fyrir 65 tonnum af hvalkjöti frá Íslandi og Noregi. Kjötið hefur beðið mánuðum saman í frystigámum eftir tollafgreiðslu. Ekki hefur fengist leyfi til að leysa kjötið úr tolli í Japan fyrr en nú. Um er að ræða 5 tonn af hrefnukjöti frá norska fyrirtækinu Myklebust Trading og 60 […]
60 ára starfsafmæli á Selfossi
Það mun hafa verið haustið 1948 að Gísli Sigurðsson rakarameistari hóf rekstur rakarastofu á Selfossi og eru því um þessar mundir liðin 60 ár frá stofnun stofunnar. Gísli fæddist 24 desember 1896 að Holti í Arnarbælishverfi í Ölfusi og var hann sonur hjónanna Sigurðar Þorbjörnssonar bónda í Króki í Ölfusi og konu hans Ingigerðar Björnsdóttur […]
Hægt að taka skipið upp fyrir norðan

Nú hefur komið í ljós að það tekur rúmt hálft ár eða 34 vikur að fá varahluti í Herjólf en eins og áður hefur komið fram bilaði annar af jafnvægisuggum skipsins í síðustu viku. Einn uggi hefur þó 60% virkni miðað við fulla ferð skipsins. Skipið hreyfist því meira en áður meðan annar ugginn er […]
Bæjarráð tekur undir með stýrihópnum

Bæjarráð fjallaði um ferjumálið á fundi sínum á þriðjudag. Þar lýsti ráðið yfir vonbrigðum sínum með að samningaviðræðum um smíði skipsins hafi verið hætt. Bæjarráð bendir einnig á að í umfjöllun um efnahagsvanda hafi ríkisstjórnin lýst því yfir að staðinn verði vörður um grunnþjónustu. Því bendir bæjarráð á að samgöngur teljast til grunnþjónustu ríkisins og […]
Vélarvana skip dregið til Eyja

Varðskip Landhelgisgæslunnar vinnur nú að því að taka dragnótabátinn Grímsnes GK-555 í tog þar sem drepist hefur á aðalvél bátsins. Sjókælir bátsins skaddaðist þegar hann strandaði á sandrifi 3,2 sjómílur norðaustan af Skarðsfjöruvita á sjöunda tímanum í morgun. Var þá gripið til þess ráðs að kæla aðalvél bátsins með ferskvatni sem var um borð. Hafa […]
Fjölmenni á stelpuæfingum í Eyjum

Það varð algjör sprenging á æfingu fyrir stelpurnar í gær í Eyjum. Alls mættu 22 stelpur á æfinguna og hafa að sjálfsögðu aldrei verið fleiri stelpur á skákæfingu hér í Eyjum. Byrjað var að bjóða upp á stelpuskákæfingar í síðustu viku og mættu þá sjö stelpur, sem þótti bara nokkuð gott. En það met stóð […]
Fylgist með ferðum hnúfubaks með gervitunglasendi
Í haust hefur Hafrannsóknastofnunin staðið fyrir tilraunum til að merkja hvali með gervitunglasendum. Markmið verkefnisins er að kanna ferðir hrefnu og annarra skíðishvala við landið og far þeirra frá íslenskum hafsvæðum á haustin. Merktir voru fjórir hvalir í Eyjafirði og hafa fengist upplýsingar um ferðir þriggja þeirra. (meira…)
Krossfesting, steinakast og galdrabrennur
FÁTT er fyrir mér óskiljanlegra en mótmæli gegn Davíð Oddssyni. Ekki það að hann sé fullkominn frekar en við hin, en að mótmæla honum minnir mig einna helst á krossfestingu forðum daga. Davíð Oddsson á heiður skilið fyrir að hafa leitt þessa þjóð frá höftum til frelsis, frá fátækt til allsnægta. Hvort frelsið hefur verið […]
�?jónustugæði í ferðaþjónustu

Impra á Nýsköpunarmiðstöð Íslands hefur nú sett á vefinn nýtt vefnám um þjónustugæði fyrir ferðaþjónustufyrirtæki og starfsmenn þeirra. Að ýmsu þarf að huga þegar grunnur er lagður að rekstri fyrirtækja og eitt af því allra mikilvægasta eru þjónustugæði. Vefnám Impru í þjónustugæðum í ferðaþjónustu fjallar um grundvallaratriði þjónustugæða á hnitmiðaðan og aðgengilegan hátt. (meira…)
ESB-aðild verri en kreppan
Gangi Ísland í Evrópusambandið verður hægt að afskrifa sumar búgreinar segir Sigurgeir Hreinsson, formaður Búnaðarsambands Eyjafjarðar, sauðfjárræktin stæði einna skást ef til ESB-aðildar kæmi. Hann segir efnahagskreppu landsins smámál miðað við inngöngu í Evrópusambandið. Sigurgeir sagði að ESB-aðild þýddi mikla launalækkun hjá bændum, finnskir bændur hefðu t.d. lækkað um 45% í launum við inngöngu í […]
Sterkir pólar ráða veðrinu næstu tvær vikur
Svo er að sjá að nú séu að verða glögg umskipti í þeirri stóru mynd sem ræður veðurfarinu við norðanvert Atlantshafi og í Evrópu. Það sem er að gerast er nokkurn veginn svohljóðandi: (meira…)
Tekinn átta sinnum á rúmum þremur mánuðum vegna aksturs undir áhrifum fíkniefna
Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í morgun mann á þrítugsaldri til greiðslu 950 þúsund króna í sekt og svipti hann ökuleyfi í 3 ár og tíu mánuði fyrir ítrekaðan akstur bifreiðar undir áhrifum fíkniefna. Maðurinn var tekinn átta sinnum vegna aksturs undir áhrifum fíkniefna á rúmlega þriggja mánaða tímabili eða frá 22. mars 2008 til 4. júlí […]
Orðin leiðtogi Framsóknarmanna í Suðurkjördæmi
Helga Sigrún Harðardóttir úr Njarðvíkum er heldur betur í rússibanaferðalagi innan Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi. Hún kom inn sem varamaður Bjarna Harðarsonnar, þegar hann sagði af sér þingmennsku fyrir réttri viku. Nú viku síðar er hún orðinn leiðtogi Framsóknarmanna í kjördæminu í kjölfar þess að Guðni Ágústsson sagði af sér þingmennsku í gær. (meira…)
Aflaverðmæti eykst um 7,9% á milli ára
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 63 milljörðum króna á fyrstu átta mánuðum ársins 2008 samanborið við 58,5 milljarða á sama tímabili árið 2007. Aflaverðmæti hefur aukist um 4,6 milljarða eða 7,9% á milli ára. Aflaverðmæti í ágúst nam 8,9 milljörðum miðað við 6,2 milljarða í ágúst 2007. Aflaverðmæti botnfisks janúar til ágúst 2008 nam 44,4 milljörðum […]
Íþróttavakning – 3 km ganga
Miðvikudaginn 12. nóvember s.l. hófst verkefnið „Íþróttavakning í framhaldsskólum“. Eitt aðalmarkmið verkefnisins er að hvetja nemendur til að taka ábyrgð á eigin heilsu og stuðla að heilbrigðum lífsháttum. Nemendur og kennarar FSu fóru út á íþróttavöll og gerðu þar nokkrar upphitunaræfingar að kínverskum hætti undir forystu þeirra Kínafara Guðfinnu Gunnarsdóttur og Lárusar Ágústs Bragasonar. (meira…)
Farsældar frón
Daginn sem ég sagði af mér þingmennsku ákvað ég að koma á prent bókarskræðu sem ég var byrjaður að öngla í á síðasta vetri. Var búinn að salta hana til síðari tíma. Þetta er greinasafn frá síðastliðnum árum sem ég svo bæti með smá játningakafla þar sem ég játa nokkrar yfirsjónir (meira…)
Keypti eigin bílvél sem var stolið
Lögreglan í Árnessýslu rannsakar nú óvenjulegt þjófnaðarmál sem snýst um það að maður í Hveragerði keypti nýverið notaða bílvél, sem reyndist vera sama vélin og stolið var frá honum fyrir nokkrum árum. Þetta kom í ljós eftir að kaupin voru gerð og seljandinn eða þjófurinn var á bak og burt með andvirði þýfisins. Haft verður […]
Ný kapella vígð á HSu á Selfossi
Þann 16. nóvember s.l. var vígð ný kapella í Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi. Hin nýja kapella er í nýbyggingu stofnunarinnar, en 1. áfangi hennar var tekinn í notkun í byrjun þessa árs. Fyrir rúmu ári var eldri kapellu stofnunarinnar tekin úr notkun vegna tengingar eldri og nýrri byggingar. Síðan hefur verið unnið að tengingu gömlu […]
Ramm hf. hættir við smíði tveggja flakafrystitogara í Noregi
Rammi hf. í Fjallabyggð hefur hætt við smíði tveggja flakafrystitogara sem samið hafði verið um smíði á við Solstrand í Noregi þar sem skipasmíðastöðin stefnir í þrot, að því er Unnar Már Pétursson, fjármálastjóri Ramma hf., sagði í samtali við nýjustu Fiskifréttir. Rammi hf. samdi um smíði skipanna 16. júní 2006. Þá kom fram að […]
Bjarni Harðarson svartsýnn á framtíð flokksins
Til hamingju Valgerður Sverrisdóttir með að vera orðinn formaður Framsóknarflokksins,“ segir Bjarni Harðason á heimasíðu sinni í dag. Bjarni segir að líkurnar að flokkurinn nái flugi eftir atburði dagsins séu minni en áður. „Líklega er það rétt hjá Guðna að eftirláta flokkinn því fólki sem hefur nú um langt skeið beitt öllum meðulum til að […]