Logandi flugeldi kastað inn í anddyri lögreglustöðvarinnar
Logandi flugeldi var kastað inn í anddyri lögreglustöðvarinnar um kl. 01:20 aðfaranótt sunnudags. Talið er að um stóran flugeld hafi verið að ræða um 1½ tomma. Prikið hafði verið brotið af. Flugeldurinn sveimaði um anddyrið þar til hann sprakk. Mikill reykur varð af þessu auk þess sem stólar sem þarna voru skemmdust. (meira…)
Tekur rúmt hálft ár að fá varahluti í Herjólf

Nú hefur komið í ljós að rúmt hálft ár tekur að fá varahluti í Herjólf eða um 34 vikur en eins og áður hefur komið fram er annar jafnvægisugginn bilaður eftir að aðskotahlutur fór í hann í síðustu viku. Skipta þarf um uggann að verulegu eða öllu leyti. Endanleg tímasetning á afhendingu varahluta í uggann […]
Tekinn í annað sinn grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna

Lögreglan hafði í ýmsu að snúast í vikunni sem leið vegna enda ýmis verkefni sem rata inn á borð lögreglunnar Má m.a. nefna aðstoð við að koma fólki til síns heima eftir skemmtanahald helgarinnar, afskipti af fólki vegna ónæðis ofl. Eitt fíkniefnamál kom upp í vikunni sem leið en að kvöldi sl. fimmtudag voru tveir […]
Guðni segir af sér þingmennsku
Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, hefur ákveðið að segja af sér þingmennsku. Sturla Böðvarsson, forseti Alþingis, tilkynnti þetta í upphafi þingfundar í dag. Guðni var landbúnaðarráðherra frá 1999 til 2007. Varaformaður Framsóknarflokksins frá 2001 og formaður Framsóknarflokksins frá 2007. Sturla þakkaði Guðna fyrir góð störf og sagði að hann hefði sett svip sinn á Alþingi lengi. […]
Fyrsta skóflustungan tekin að nýju útisvæði við sundlaugina

Skömmu eftir hádegi í dag var tekin skóflustunga að nýju og glæsilegu útisvæði við sundlaug Vestmannaeyja. Búið er að fullhanna svæðið og verða m.a. tvær stórar rennibrautir á svæðinu, tvær vaðlaugar, þrír heitir pottar og sérstök barnarennibraut. Svæðið verður allt hannað með sögu Vestmannaeyja og verður eldfjall á útisvæðinu. (meira…)
Samgöngur, kvótinn og fundur með FF

Það er alveg með ólíkindum, þessi sending sem við eyjamenn vorum að fá frá ríkisstjórninni um að smíði nýrrar ferju sé frestað um óákveðinn tíma, sérstaklega þegar tekið er tillit til þess, að í ríkisstjórnarmeirihlutanum sitji núna þeir tveir þingmenn, sem ættaðir eru úr eyjum og í raun og veru er ótrúlegt að hugsa til […]
Mikið stuð þegar haldið var upp á dag íslenskrar tungu

Dagur íslenskrar tungu var í gær, sunnudaginn 16. nóvember. Í dag höldum við upp á daginn hér á Kirkjugerði með sýningu starfsfólks á leikritinu um Búkollu sem er orðin hefð hjá okkur. Alltaf sama stuðið og ekki gott að segja hvort börnin eða starfsfólk skemmtir sér betur. Að tillögu menntamálaráðherra ákvað ríkisstjórn Íslands, haustið 1995, […]
Vel heppnað málþing um Sigurjón �?lafsson myndhöggvara frá Eyrarbakka
Í tilefni þess að liðin eru 100 ár frá fæðingu listamannsins Sigurjóns Ólafssonar frá Eyrarbakka efndi Listasafn Árnesinga til vel heppnaðs málþings honum til heiðurs í gær, 16. nóv. á degi íslenskrar tungu, í Listasafni Árnesinga í Hveragerði. Stjórnandi málþingsins var Inga Jónsdóttir safnstjóri Listasafns Árnesinga í Hveragerði. (meira…)
Hæsta meðalverð á þorski á mánuði hingað til
Meðalverð á þorski í október síðastliðnum var kr. 298,01 sem er hæsta meðalverð á þorski í einum mánuði sem sést hefur á íslenskum fiskmörkuðum. Meðalverð á slægðum þorski var kr. 316,95, en óslægðum 289,6. Steinbítur hefur hækkað um hvorki meira né minna en 74% á milli októbermánaða. Í október 2008 var meðalverðið kr. 279,87, en […]
Síldarkvóti eykst um 25%

Ísland fær að veiða 238 þúsund tonn úr norsk-íslenska síldarstofninum á næsta ári. Á þessu ári var kvóti Íslands 189.930 tonn. Þetta er því um 25% aukning á milli ára. Stofninn stendur mjög vel um þessar mundir og ákvað Norðaustur-Atlantshafs-fiskveiðinefndin, NEAFC, að heildaraflamark fyrir árið 2009 verði 1.643.000 tonn, samkvæmt frétt frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu. […]
�?ldungaráðið á Stokkseyri á hátíðarfundi í morgun
Öldungaráðið á Stokkseyri hélt hátíðarfund í Shell-skálanum á Stokkseyri í morgun 16. nóvember á degi íslenskrar tungu. Lýstu menn sem fyrr mikilli aðdáun á afmælisbörnum dagsins þeim Jónasi Hallgrímssyni fæddur 1807 og Jóni Sveinssyni, Nonna, sem fæddur var 1857. Þá voru rædd málefni Seðlabanka Íslands, framhald fyrri funda: (meira…)
Hrútaskrá veturinn 2008-2009
Ný hrútaskrá fyrir veturinn 2008-2009 hefur litið dagsins ljós. Skráin er farin í prentun og kemur að öllu óbreyttu út í byrjun næstu viku. Hrútaskráin er einnig birt á vefsíðu Búnaðarsambands Suðurlands eins og verið hefur og á fleiri vefsíðum. Uppfærsla á henni er á lokastigi. Í hrútaskrá þessa vetrar eru samtals 47 hrútar, 24 […]
Fjölmiðlar í heljargreipum eigenda sinna
Seðlabankastjóri, Davíð Oddson, kom inn á útrás Íslendinga í erindi sínu á fundi Viðskiptaráðs í morgun og þau viðvörunarorð sem hann hafði um fylgifiska hennar í gegnum tíðina. Hann vísaði til orða sinna á fundum undanfarna tólf mánuði og að lítt hafi verið hlustað á þessi viðvörunarorð. Spurði Davíð að því hvort það hefði verið […]
Málþing í dag um Sigurjón �?lafsson myndhöggvara frá Eyrarbakka
Í tilefni þess að liðin eru 100 ár frá fæðingu listamannsins Sigurjóns Ólafssonar efnir Listasafn Árnesinga til málþings honum til heiðurs í dag, sunnudaginn 16. nóvember kl. 14:00 í Listasafni Árnesinga í Hveragerði. Aðalsteinn Ingólfsson, listfræðingur, ræðir um verk eftir Sigurjón í opinberu rými og mun hann sérstaklega fjalla um þau verk sem staðsett eru […]
Foreldrafélagið færði gjöf frá Sólheimum í Grímsnesi.
Föstudaginn 7.nóvember s.l. kom foreldrafélag leikskólans Brimvers á Eyrarbakka með gjöf frá Sólheimum í Grímsnesi og var það lítið fallegt jolatré sem var gróðursett með pompi og prakt eftir hádegi þann dag á hringtorgseyjunni fyrir framan leikskólann. Allir komu saman og hjálpuðust að við gróðursettninguna. Ákveðið var að allir mundu hlúa vel að trénu og […]
Dragnót í nóvember
Það eru heldur betur miklar breytingar núna á listanum. Hásteinn ÁR fer úr því 12 og í efsta. Steinunn SH sem rær frá Bolungarvík og kom með 31 tonn í sinni fyrstu ferð þar kemur beint inn í sæti númer 3. Matthías SH er kominn á Patreksfjörð. og eitthvað segir að hann sé að koma […]
�?þarfa tap á heimavelli

Eyjamenn geta nagað sig í handarbökin eftir leik sinn gegn ÍR í dag en lokatölur urðu 28:38. Lokatölurnar gefa þó engan veginn rétta mynd af gangi mála enda gáfust Eyjamenn hreinlega upp á lokamínútunum, eitthvað sem lið ÍBV hafa ekki verið þekkt fyrir í gegnum tíðina. ÍR-ingar eru á toppi 1. deildar á meðan ÍBV […]
Eyjabókamessa og söngur í Mjóddinni um næstu helgi

Eftir rétta viku, laugardaginn 22. nóvember n.k. milli kl. 13 og 16, ætlar ÁTVR, átthagafélag Vestmanneyinga á Reykjavíkursvæiðun, að standa fyrir Eyjabókamessu í Mjóddinni við Álfabakka. Þó nokkra bækur eru að koma út um þessar mundir sem tengjast Eyjum á einn eða annan hátt. Þá mun sönghópur ÁTVR taka lagið. (meira…)
Fjölmenni á fundi hjá sjálfstæðismönnum á Selfossi í morgun
Fjölmenni var á opnum fundi hjá Sjálfstæðisfélaginu Óðni á Hótel Selfossi í morgun. Frummælandi um efnahags- og gjaldmiðlismál var Bjarni Benediktsson, alþingismaður og Eyþór Arnalds, bæjarfulltrúi um fjárhagsstöðu og bæjarmál í Árborg. Á eftir voru fyrirspurnir og líflegar umræður fundargesta. Fleiri myndir undir – meira – (meira…)
Tjörnin sigraði Fossinn í uppgjöri selabæjanna
GRÓTTA frá Seltjarnarnesi lagði Selfoss, 34:28, þegar liðin mættust í 1. deildinni í handbolta karla í gærkvöldi á Selfossi að viðstöddum um 400 áhorfendum. Grótta skaust þar með í efsta sæti deildarinnar með 12 stig líkt og Selfoss og ÍR en Selfoss hefur leikið einum leik meira en hin tvö liðin. Í hinum leik gærkvöldsins […]