Hagyrðingar hittast í Aratungu

Hagyrðingakvöld verður haldið í Aratungu í kvöld kl. 21. Þar koma fram Sigrún Haraldsdóttir húnvetningur og hestakona, Jón Ingvar Jónsson hugbúnaðarfræðingur hjá Hafró, Séra Hjálmar Jónsson, Jón Kristjánsson fv. ráðherra og Sigurjón V. Jónsson frá Skollagróf. Stjórnandi verður Ólafur G. Einarsson fv. ráðherra og forseti Alþingis. Allur ágóði rennur til líknarmála (meira…)

Ferjusmíði boðin út þegar betur árar

Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í morgun að hætt skuli frekari samningaviðræðum við þýsku skipasmíðastöðina Fassmer um smíði nýs Herjólfs og stöðinni tilkynnt að tilboði hennar yrði ekki tekið. Ástæðan eru aðstæður í efnahagslífi landsins. (meira…)

Hljómsveitin Karma á Kringlukránni um helgina

Meistarar sveitaballa á Suðurlandi, Hljómsveitin Karma, leggja malbik undir dekk og verða með dansleiki á Kringlukránni í Reykjavík um helgina. Sem nauðsynlegan undirbúning fyrir höfuðborgarferðina fór Hróbjartur Eyjólfsson, bassaleikari og söngvari Karma, í klippingu til Kjartans Björnssonar á Selfossi. Er Hróbjartur nú klár í slaginn og þarf aðeins að ausa sig Kölnarvatni áður en hann […]

Sungið fyrir Ásu Torfadóttur

Laugardaginn 8. nóvember fór Sönghópur ÁtVR (Átthagafélags Vestmannaeyinga á Reykjavíkursvæðinu) í heimsókn til Ásu Torfadóttur á Grund við Hringbraut. Þar sungum þau Eyjalög fyrir Ásu og annað heimilisfólk í eftirmiðdagskaffinu. (meira…)

Friðrik Sigurðsson ÁR með 100 tonn

Friðrik Sigurðsson ÁR 17 frá Þorlákshöfn gerði sér lítið fyrir og kom með tæp 101 tonn að landi og af því var ufsi rúm 97 tonn. Að netabátur nái yfir 100 tonn í löndun er mjög sjaldgjæft. En það eru til dæmi um 100 tonna róðra á einum degi á vetrarvertíð. Þessi róður er eftir […]

Hafsteinn styrkir heimaleikinn við Gróttu sem fram fer í kvöld

Okkar ágæti heiðursfélagi Hafsteinn Þorvaldsson tók sig til og styrkti næsta heimaleik Selfoss í handboltanum með 30.000 kr. framlagi. Framlagið nýtist til að kaupa 40 miða sem verða gefnir og greiða stærstan hluta auglýsingakostnaðar vegna leiksins. Hafsteinn sýnir þarna stórhug sinn í verki og kemur styrkurinn að góðum notum. (meira…)

Gleðibankinn opinn

Heimaey – þjónustuver hefur ákveðið að opna banka Eyjamanna, Gleðibankann. Markmið félaga í GLEÐIBANKANUM er að skapa jákvætt hugarfar, bjartsýni og trú á samfélagi Eyjanna. Til að gerast hluthafi leggur þú inn nafn þitt í félagatal Gleðibankans. Það gerir þú með því að koma við á skrif­stofu Heimaeyjar sem er að Vesturvegi 10. Þar færð […]

Frábær “Fýlaveisla”

Blásið var til fýlaveislu hjá rekstraraðilum Víkurskála um síðastliðna helgi. Til stóð að hafa veisluna á Ströndinni v/Víkurskála en fljótlega varð ljóst að einn salur dugði ekki til og var einnig borðað í veitingasal Víkurskála.Að auki þurfti að hætta að taka við pöntunum þar sem ljóst var að uppselt væri í veisluna. Allt útlit er […]

Niðurskurður hjá Landhelgisgæslunni

Tólf starfsmenn Landhelgisgæslunnar hafa misst vinnuna frá því um miðjan september. Þar á meðal eru 3 sjómenn og 2 flugvirkjar. Georg Lárusson, forstjóri Gæslunnar, segir niðurskurð nauðsynlegan enda hafi kostnaður aukist vegna falls krónunnar. Hann fullyrðir að uppsagnirnar skerði ekki viðbúnað en um 180 manns starfa hjá Gæslunni. (meira…)

Herjólfur þarf að fara aftur í þurrkví

Nú er ljóst að farþegaskipið Herjólfur verður að fara aftur í flotkví en aðeins er mánuður síðan að skipið kom úr reglubundnu viðhaldi í þurrkvínni á Akureyri. Bilun í öðrum af tveimur veltiuggum gerir það að verkum að taka verður skipið upp á næstunni. Herjólfur mun þó halda uppi reglubundnum siglingum milli lands og Eyja […]

Almennur borgarafundur

Til forráðamanna og annarra áhugasamra bæjarbúa um skóla- og menntamál. Ný menntastefna er boðuð með nýjum lögum og fylgja henni margháttaðar breytingar og ný verkefni fyrir sveitarfélög. Almennur borgarafundur, þar sem menntamálaráðherra kynnir hina nýju menntalöggjöf, verður í Vestmannaeyjum mánudaginn 17. nóvember n.k. kl. 16.15 í Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum. Hefst hann í beinu framhaldi af […]

Opnun Ingólfsstofu.

Í tilefni af 10 ára ártíð Ingólfs Guðjónssonar frá Oddsstöðum, sunnudaginn 16. nóvember nk., verður opnuð sérstök Ingólfsstofa í Bókasafni Vestmannaeyja. Athöfnin hefst kl. 15:15 og eru allir hjartanlega velkomnir. Ingólfsstofa verður lesstofa safnsins og jafnframt verður þar vistað hið merkilega bókasafn Ingólfs er hann afhenti safninu að gjöf. Forsprakkar verkefnisins, Kári Bjarnason og Guðjón […]

Uppselt á konukvöld

29. nóvember verður haldið glæsilegt Konukvöld í Höllinni. Dagskráin er stórglæsileg en þeir Beggi og Pacas úr Hæðinni verða veislustjórar og Páll Óskar Hjálmtýsson skemmtir. Auk þess verða glæsilegar tískusýningar og kynningar og eitt mjög óvænt atriði. Þá mun Einsi Kaldi töfra fram hvern ítalska stórréttinn á fætur öðrum fyrir drottningarnar. Skemmst er frá því […]

�?Mjög spennandi kostur�?

„Það stefnir allt í að ég semji við Linköping. Mér leist rosalega vel á félagið og allt sem snýr að því og þetta er bara mjög spennandi kostur. Vonandi get ég gengið frá þessu sem fyrst, sagði markadrottningin Margrét Lára Viðarsdóttir við Morgunblaðið í gær en hún kom heim í vikunni eftir að hafa skoðað […]

Afli botnvörpunga í nóvember

Ansi góð byrjun hjá Ottó N Þorlákssyni RE. tæp 200 tonn í sinni fyrstu löndun. Þar af var ufsi um 120 tonn og karfi 65 tonn. Klakkur SH var með rúm 120 tonn af þorski í sínum afla. Athyglisverður afli hjá Suðurey VE, 104 tonn í fyrstu löndun. Suðurey VE er 4 mílna togari og […]

Herrakvöldið á morgun föstudaginn 14. nóv.

Knattspyrnudeild Selfoss heldur sitt árlega herrakvöld föstudaginn 14. nóvember. Að þessu sinni verður skemmtunin haldin í Þingborg, en það er félagsheimilli Flóamanna, staðsett ca. 5 km austur af Selfossi. Rúta mun ferja mannskapinn og fer fyrsta ferð kl. 18.30. Veislukokkar Menam sjá um matinn af sinni alkunnu snilld og skemmtiatriðin eru einnig í dýrari kantinum. […]

Atli til reynslu hjá FK Haugasund

Norska 2. deildarfélagið Asker hefur boðið Atla Heimis­syni, leikmanni ÍBV, samning en þetta staðfesti hann í samtali við blaðamann Frétta í gær. Atli, sem var valinn besti leikmaður 1. deildar­innar í sumar, hefur æft með Asker að undanförnu og hafa forráðamenn félagsins hrifist af frammistöðu hans og boðið honum samning. Atli er sam­n­ingsbundinn Eyjamönnum til […]

Seinkun á Herjólfi

Vegna bilunar seinkar seinni ferð Herjólfs til kl. 17.00. Þegar skipið kom til heimahafnar í dag var ekki hægt að koma öðrum af veltiuggunum inn og því gat skipið ekki lagst rétt að bryggju. Byrjað var á því að leggja skipið öfugt að bryggju, með stefnið að bryggjunni en þannig er ekki hægt að lesta […]

Bjarni Hólm til Danmerkur

Bjarni Hólm Aðal­steinsson leikmaður Meistara­flokks ÍBV í knatt­spyrnu mun á næstu dögum fara til Danmerkur til þess að skoða aðstæður hjá 2.deilar liðinu FC Fyn. Félagið situr sem stendur í öðru sæti deild­arinnar með 24 stig og er í mikilli baráttu um að komast upp. Bjarni spilaði 21 leik með ÍBV í sumar og skoraði […]

Litlu munaði að illa færi

Um klukkan hálf sjö í morgun var björgunarbáturinn Þór kallaður út þar sem togskipið Gullberg VE rak stjórnlaust við hafnarmynnið í Vestmannaeyjum. Skipið hafði verið á útleið þegar það varð vélarvana austast í innsiglingu Vestmannaeyjahafnar. Talsverður straumur var og rak skipið hratt í átt að sandfjörunni en bæði björgunarbáturinn Þór og hafnsögubáturinn Lóðsin fóru til […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.