Framkvæmd við Landeyjahöfn á áætlun

Stýrihópur um framkvæmdir við Landeyjahöfn fundaði síðastliðinn fimmtudag en á fundinum var upplýst að ekki væri fyrirhugaður neinn dráttur á framkvæmdinni og að hún væri á áætlun. Búið væri að hanna ferjuna en vegna ástands á fjármálamarkaði hafi íslenska ríkið fengið frest til 14. nóvember til að skrifa undir smíðasamning fyrirhugaðrar ferju. (meira…)
Fíkniefni, áflog og árekstur

Það var í ýmis horn að líta hjá lögreglunni í vikunni sem leið og þurftu bæjarbúar á aðstoð lögreglu að halda í hinum ýmsu tilvikum. Í tvígang var óskað eftir lögreglu á öldurhús bæjarins vegna átaka á milli gesta en hins vegar liggja engar kærur fyrir vegna þeirra átaka. Eitt fíkniefnamál kom upp í vikunni […]
Mikill meirihluti landsmanna vill Reykavíkurflugvöll í Vatnsmýrinni
Mikill meirihluti landsmanna, eða 70%, vill að Reykjavíkurflugvöllur verði áfram á sínum stað í Vatnsmýrinni. Þetta kemur fram í skoðanakönnun sem Capacent Gallup vann í september og byrjun október fyrir Flugstoðir ohf. Töluvert fleiri telja nú að völlurinn eigi að vera áfram á sínum stað en þegar Capacent kannaði viðhorf fólks til vallarins í maí […]
Kynningarfundar �?jórsársveita
Í dag haldinn kynningarfundurinn Þjórsárveita – uppspretta orkunnar. Fundurinn fer fram í félagsheimilinu Árnesi í Skeiða- og Gnúpverjahreppi og hefst klukkan 14.30. Dagskrá fundarins má sjá hér að neðan. (meira…)
�?akkarkveðja til Eyjamanna

Kæru Eyjamennog safnanæturgestir!Það var gaman að sjá ykkur á sýningunni minni um sl. helgi. Þið hlýjuðuð mér um hjartarætur með hrósi faðmlögum og vinsemd. Takk fyrir það,vil líka minna ykkur á að það er hægt að ná í mig í síma 892-3548 þá get ég sýnt ykkur verk mín á vinnustofu minni. Verið ófeimin að […]
Flugfélag Vestmannaeyja hættir tímabundið flugi til Bakkaflugvallar

Flugfélag Vestmannaeyja mun ekki fljúga á Bakkaflugvöll í vetur eða frá 13. nóvember til 1. apríl 2009. Ástæðan er mikil fækkun farþega hjá félaginu eftir að ríkisstyrkt flug hófst á flugleiðinni Vestmannaeyjar-Reykjavík árið 2006. Frá þeim tíma hefur farþegum á flugleiðinni Vestmannaeyjar-Bakki fækkað um 25%. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Flugfélagi Vestmannaeyja sem má […]
Rok, rigning, sól og regnbogi
Gulur, rauður, grænn og blár gerður af meistara höndum. Rétt rúmu augnabliki eftir sólaruppkomu við suðurströndina í morgun sýndi náttúrar glæsileika er saman fór: rok, rigning, sól og regnbogi. Myndir má sjá undir -meira – (meira…)
Bergur-Huginn greiðir 9.3 milljónir í meðallaun

Í nýjustu Fiskifréttum er listi yfir fyrirtæki í sjávarútvegi, sem greiða hæstu launin. Í fyrsta sæti er lítið fyrirtæki á Patreksfirði sem gerir út dragnótarbátinn Þorstein BA, en þeir greiða 11.2 milljónir fyrir ársverkið að meðaltali. Bergur-Huginn í Vestmannaeyjum er í þriðja sæti með 9.3 milljónir fyrir ársverkið að meðaltali. (meira…)
Nýta mætti verðmætin í fiskhausum mun betur
Gunnar Hallgrímsson, framkvæmdastjóri Flúðafisks, telur að vinna mætti mun meira verðmæti úr sjávarafla landsmanna með því t.d. að hirða hausa af bolfiski í afla frystitogaranna. Sér vitanlega hirði aðeins tvær útgerðir frystiskipa hausana að hluta; Ögurvík og FISK Seafood á Sauðárkróki. Bendir hann á að útgerðir rússnesku frystiskipanna í Barentshafi hirði alla fiskhausa og í […]
Seinni ferð Herjólfs fellur niður á morgun

Vegna viðgerðar á stefnisloku Herjólfs fellur seinni ferð skipsins niður á morgun, þriðjudaginn 11. nóvember. Herjólfur verður hinsvegar á áætlun í fyrramálið kl. 8.15 frá Eyjum, (meira…)
Orðlaus

Ég hef ekki skrifað lengi hérna enda má segja að ég hafi verið orðlaus síðasta mánuðinn í öllu þessu fárviðri sem geysar á Íslandi. Við erum að keyra inn í rosalega lægð í efnahagsmálum. Svo mikla að lífsskjör okkar almennra borgara muni dragast saman, stórlega. Ég er svartsýnn. (meira…)
Málþing um Sigurjón �?lafsson myndhöggvara frá Eyrarbakka.
Í tilefni þess að liðin eru 100 ár frá fæðingu listamannsins Sigurjóns Ólafssonar efnir Listasafn Árnesinga til málþings honum til heiðurs, sunnudaginn 16. nóvember n.k. kl. 14:00 í Listasafni Árnesinga í Hveragerði. Aðalsteinn Ingólfsson, listfræðingur, ræðir um verk eftir Sigurjón í opinberu rými og mun hann sérstaklega fjalla um þau verk sem staðsett eru í […]
Árborg sigraði Mosfellsbæ.
Þau Þóra Þórarinsdóttir, ritstjóri Gluggans, Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður og Páll Óli Ólason nemi, sigruðu lið Mosfellsbæjar í spurningakeppninni Útsvar í Sjónvarpinu á föstudagskvöldinu eftir æsilega keppni. Liði Mosfellsbæjar var skipað þeim Bjarka Bjarnarsyni, Sigurði G. Tómassyni og Láru Ómarsdóttur. (meira…)
Um starfsemi HSu árið 2007
Þjónustusvæði stofnunarinnar nær til um 20 þúsund íbúa á Suðurlandi. Um er að ræða 8 heilsugæslustöðvar, 31 rúma sjúkrahús, 24 rúma hjúkrunardeild – Réttargeildeildin að Sogni með 7 vistrými og heilbrigðisþjónusta við Litla Hraun, en þar eru að jafnaði 80 fangar. Samtals voru um 500 einstaklingar á launskrá hjá HSu og Sogni. (meira…)
Dilkar vænni en í fyrra
Formlegri sláturtíð er lokið í sauðfjársláturhúsum landsins og samkvæmt fyrstu tölum virðast dilkarnir nokkuð vænni en síðastliðið haust. Aðeins sjö sláturleyfishafar annast alla sauðfjárslátrun í landinu nú. Í lauslegri samantekt frá Landssambandi sauðfjárbænda kemur fram að flestum dilkum var slátra hjá KS á Sauðárkróki, eða 103.000. Þar var meðalvigtin 15,89 kíló eða 650 grömmum meira […]
Hernámsárin á Eyrarbakka – Sunnudagur kl. 15:00
Hernámsárin á Eyrarbakka. Við byrðing Farsæls í dag sunnudag 9. nóv. kl. 15:00 segir Óðinn Andersen sögur föður síns Sigurðar Andersen póststjóra og veðurathugunarmanns um hernámsárin á Eyrarbakka. Óðinn segir ýmsar skemmtilegar sögur af samskiptum heimamanna við breska herinn og afleiðingar hernámsáranna fyrir atvinnulífið. Óðinn segir frá forláta tundurdufli sem lagt hefur verið í gætt […]
Fundarröð á sjö stöðum á Suðurlandi
Nú erum við að hefja fundarröð þar sem haldnir verða fundir á sjö stöðum á Suðurlandi með aðilum í matartengdri ferðaþjónustu, eigendum lítilla og meðalstórra matvælafyrirtækja og fólki sem hefur áhuga á verkefninu Beint frá býli til að þeir geti sameinast og stillt saman strengi sína. Sjaldan hefur verið jafn nauðsynlegt og nú að styrkja […]
Enn hrynur úr fjöllum í Eyjum

Að morgni fimmtudags urðu glöggir vegfarendur varir við að talsvert hafði hrunið úr Fiskhellum sem eru vestan megin í Hánni við Herjólfsdal. Lesandi sendi Eyjafréttum þessa mynd sem sýnir glögglega hvar stórt bjarg hefur hrunið niður í grasbrekkuna fyrir neðan og stöðvast þar. Meira af grjóti hrundi með og dreifðist um svæðið en náði þó […]
Frábært “Baðstofukvöld á Bakkanum” í gærkveldi
Baðstofukvöld í Gallerí Gónhól á Eyrarbakka með einstökum Eyrbekkingum og fleiri góðum gestum sem sögðu sögur af manni og öðrum heppnaðist frábærlega vel og var húsfyllir. Þá var einnnig opninn; grænmetis- handverks- og flóamarkaður. Kaffihúsið bauð uppá heitt súkkulaði og vöfflur ásamt ýmsu góðgæti sunnlenskra húsmæðra. Sjá dagskrá: www.sofnasudurlandi.is Sjá má fleiri myndir undire – […]
Frítt í sund á Selfossi og Stokkseyri.
Bæjarráð Árborgar hefur ákveðið að frítt verði í sund í Sundhöll Selfoss og sundlaugina á Stokkseyri fyrir börn og unglinga að 18 ára aldri. Þetta er frá og með 1. janúar n.k. Með þessari ákvörðun bætist Árborg í hóp nokkurra sveitarfélaga landsins sem gefa þessum aldurshópi frían aðgang að sundstöðum sínum. (meira…)