Eyjamenn ekki í vandræðum með Álftanes

ÍBV átti ekki í teljandi vandræðum með Álftanes í kvöld þegar liðin mættust í forkeppni Subwaybikarkeppninnar í körfubolta. Leikurinn fór fram í Vestmannaeyjum en eftir jafnan 1. leikhluta tóku Eyjamenn öll völd á vellinum í 2. leikhluta og voru yfir í hálfleik 42:25 en staðan eftir fyrsta leikhluta hafði verið 17:12. Eyjamenn héldu gestunum svo […]

Flugslysaæfing á Bakkaflugvelli á morgun

Flugstoðir standa á morgun fyrir flugslysaæfingu á flugvellinum á Bakka en um er að ræða sjöttu æfingu félagsins á síðustu tveimur árum. Æfð verða viðbrögð ýmsa viðbragðsaðila ef flugslys verður og taka um 85 manns úr ýmsum kimum samfélagsins taka þátt í æfingunni. Eins og áður er um margra mánaða undirbúning að ræða en Bakkaflugvöllur […]

Undankeppni Stíls 2008 í sal Barnaskólans í kvöld

Í kvöld fer fram undankeppni í Stíl 2008 en Stíll er hárgreiðslu- förðunar og fatahönnunarkeppni félagsmiðstöðva landsins. Þema keppninnar í ár er framtíðin en níu lið eru skráð til keppni í Vestmannaeyjum. Vinningsliðið mun vinna sér sæti í aðalkeppninni sem fer svo fram í Smáranum 22. nóvember. Undankeppnin í Eyjum verður haldin í sal Barnaskólans […]

Aldrei að gefast upp

Það er margt sem angrar landann þessa dagana í efnahagsmálum. Einn þingmaður lét þess getið að það sem við sæum núna, væri aðeins toppurinn í ísjakanum. Það er því nauðsynlegt að létta lundina af og til. Í myndbandinu hér á eftir leggur fólk upp með góðar meiningar, sem enda á grátbroslegan hátt. (meira…)

Ekki rétt að Vestmannaeyjabær leiti leiða til að segja skilið við Fasteign hf.

Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum hafði samband við Eyjafréttir og vildi koma á framfæri eftirfarandi vegna fréttar DV í dag þess efnis að Vestmannaeyjabær leiti allra leiða til að segja skilið við Fasteign. Að gefnu tilefni vil ég taka fram að rangt er hermt í DV að Eyjamenn leiti nú leiða til að segja skilið […]

Eyjamönnum nóg boðið

Vestmannaeyjabær lætur kanna kosti þess að segja skilið við Eignarhaldsfélagið Fasteign hf. og leysa til sín þær eignir sem bæjarfélagið hefur lagt inn í félagið. EFF hf. byggist á samstafi sveitarfélaga við einkaaðila um samfélagsleg verkefni og hefur Vestmannaeyjabær lagt fjölda fasteigna inn í félagið og leigir þær síðan aftur. Þar á meðal eru tveir […]

Tæpar ellefu milljónir í styrk frá Menningarráði

Menningarráð Suðurlands úthlutaði í gær styrkjum í annað sinn á þessu áru en athöfnin fór fram á Veiðisafninu á Stokkseyri. Alls bárust 59 umsóknir og var sótt um 63 milljónir. 36 fengu styrk að þessu sinni að upphæð samtals um ellefu milljónir. Fyrr á þessu ári hafði Menningarráð veitt 67 aðilum styrki að upphæð 20,6 […]

Bikarleikur í körfunni í kvöld

Í kvöld klukkan 19.00 mun körfuknattleikslið ÍBV leika í forkeppni Subway bikarsins. Strákarnir taka þá á móti liði Álftnesinga en bæði liðin leika í A-riðli 2. deildar en hafa þó ekki mæst það áður í vetur. Mörgum er enn í fersku minni ágætur árangur ÍBV í fyrra þegar liðið mætti Íslandsmeisturum Keflavíkur í 32ja liða […]

Ekki víst að þyrlan verði seld

Eyjapeyinn og auðmaðurinn Magnús Kristinsson flaug eitt sinn á milli lands og eyja á glæsilegri lúxusþyrlu en nú hefur henni verið lagt. Magnús, sem er eigandi Toyota-umboðsins á Íslandi, segir það kosta mikla peninga að tryggja þyrluna og því hafi hann ákveðið að geyma hana um stund. Magnús hefur ekki ákveðið hvort hann selji þyrluna. […]

�?vistarfið og áhugamálin samofin

Nafn Sigurðar Sigurðarsonar dýralæknis hefur í áratugi verið tengt baráttu gegn sauðfjársjúkdómum og riðuveiki í sauðfé kemur þá fyrst í hugann. Nú er komið að tímamótum hjá Sigurði og fyrr í vikunni voru honum þökkuð góð störf við starfslok. (meira…)

Baðstofukvöld á Bakkanum í kvöld

Föstudagskvöld 7.nóvember Kl. 20:00-22:00 Opnun handverks- og flóamarkaðar. Baðstofukvöld með einstökum Eyrbekkingum og fleiri góðum gestum sem segja sögur og taka í nefið. Í umsjá Árna Johnsen. Kaffihúsið býður uppá heitt súkkulaði og vöfflur ásamt ýmsu góðgæti sunnlenskra húsmæðra. (meira…)

Forvarnir og áhrif efnahagsástandsins rædd á fundi aðalstjórnar

Aðalstjórn Umf. Selfoss hélt fund í gærkvöldi í Tíbrá og var það 11. fundur aðalstjórnar á árinu. Fundir aðalstjórnar eru að jafnaði einu sinni í mánuði. Á fundinum var m.a. samþykkt ný fræðslu- og forvarnarstefna félagsins. Ákveðið var að halda sérstakan forvarnadag félagsins í samvinnu við grunnskólana þar sem megin áhersla er lögð á 8.-10. […]

Sviðaveisla starfsmanna

Fangaverðir á Litla-Hrauni ásamt mökum héldu sína árlegu sviðaveislu í Hliðskjálf, sal hestamanna á Selfossi fyrir skömmu. Björn Hilmarsson og Ólafur Jónsson á Eyrarbakka sáu um eldamennsku með glæsibrag. Þátttaka var mjög góð og voru rúmlega fimmtíu gestir. Sjá fleiri myndir undir – meira- (meira…)

Íslendingar úti kuldanum

Makrílveiðiþjóðin Íslendingar, sem veiddi 112 þúsund tonn af makríl á þessu ári eða 20% af áætluðum heildarafla í NA-Atlantshafi, fékk ekki úthlutað einu kíló við kvótaskiptingu makrílsins fyrir næsta ár sem fram fór í London í síðustu viku. Þvert á móti voru Íslendingar gagnrýndir fyrir veiðar sínar á makríl í eigin lögsögu. (meira…)

Yfirlýsing frá bæjarfulltrúum Hveragerðisbæjar

Bæjarfulltrúar Hveragerðisbæjar hafa ákveðið að taka höndum saman og vinna í sameiningu að fjárhagsáætlunargerð bæjarins fyrir árið 2009. Allir bæjarfulltrúar hvar í flokki sem þeir standa eru sammála um að efnahagslegt umhverfi sveitarfélaga og þjóðarinnar allrar sé með þeim hætti að brýna nauðsyn beri til að ráðamenn slíðri hin pólitísku sverð og einbeiti sér að […]

Gróttuleiknum frestað

Karlalið ÍBV í handbolta átti að taka á móti Gróttu á laugardaginn í Vestmannaeyjum. Leiknum hefur hins vegar verið frestað og verður leikinn um næstu helgi 29. nóvember næstkomandi. Leikið verður klukkan 14.00. (meira…)

Blessuð síldin er kærkominn fengur

Blessuð síldin hefur alltaf verið kærkomin fengur og er nú sem ljós í myrkri þegar þrengir að í efnahagsmálum þjóðarinnar. Júpíter ÞH landaði fyrsta farminum á vertíðinni hjá Ísfélaginu í síðustu viku. Í gær, miðvikudag, var hann að landa ­þriðja túrnum og búinn að ná rúm­lega tvö þúsund tonnum. Vinnslu­stöðin var búin að taka á […]

Sópran, trompet og orgel.

Sunnlenska tónlistarfólkið Margrét Stefánsdóttir sópransöngkona, Jóhann Stefánsson trompetleikari og Hilmar Örn Agnarsson orgelleikari munu halda tónleika næstunni. Á efnisskránni eru fjölbreytt verk fyrir sópran, trompet og orgel. Má nefna verk eftir Bach, Händel, Scarlatti, Atla Heimi Sveinsson og Egil Ólafsson. Tónleikarnir verða á eftirtöldum stöðum: (meira…)

Ekki hægt að taka afger­andi afstöðu

Heilbrigðiseftirlit Suðurlands hefur staðið fyrir hljóðmælingum frá Höllinni undanfarið en starfsleyfi Hallarinnar hefur takmarkast við skemmtanahald til klukkan eitt eftir miðnætti. Ástæðan er að of mikill hávaði hefur mælst frá staðnum og ekki talist viðunandi. Eigendur Hallarinnar hafa staðið fyrir breytingum og hljóðein­angrun á húsnæðinu og Höllin fékk undanþágu til dansleikjahalds gagngert til að mælingar […]

Kem jafnvel nakinn fram

Nú styttist í að Eddan verði afhent við hátíð­lega athöfn. Eyjamenn eiga í það minnsta einn fulltrúa á Eddunni en það er Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson, leik­ari sem leikur aðalhlut­verkið í stuttmyndinni Hnappurinn sem er til­nefnd. Guðmundur býr nú í Hollywood þar sem hann var m.a. við nám en starfar nú við list sína ytra. Vaktin […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.