Gistinætur og gestakomur á hótelum í september 2008
Gistinætur á hótelum í september síðastliðnum voru 121.700 en voru 120.700 í sama mánuði árið 2007, því má segja að lítil breyting sé milli ára. Fjölgun var í flestum landshlutum nema á höfuðborgarsvæðinu. Á Suðurlandi voru gistinætur svipaðar milli ára. Hlutfallslega fjölgaði gistinóttum mest á Austurlandi um rúm 20%, eða úr 4.100 í 4.900. (meira…)
Rekstur Keflavíkurflugvallar ohf. undirbúinn
Undirbúningur að rekstri Keflavíkurflugvallar ohf. sem tekur við rekstri Flugmálastjórnar á Keflavíkurflugvelli og Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar um næstu áramót gengur vel. Fer hann annars vegar fram á vegum stjórnar félagsins og hins vegar stýrihóps samgönguráðuneytisins. Björn Óli Hauksson rekstrarverkfræðingur var ráðinn forstjóri nýja félagsins og tók hann til starfa snemma í október. (meira…)
�?skudraumurinn að rætast

Eyjastelpan Margrét Lára Viðarsdóttir hefur farið fyrir íslenska kvennalandsliðinu í knattspyrnu undanfarin ár en liðið tryggði sér sæti í lokakeppni Evrópumótsins í Finnlandi á næsta ári, með því að leggja Íra að velli 3:0. Margrét var jafnframt langmarkahæsti leikmaður undankeppninnar, skoraði alls tólf mörk en næstu leikmenn á eftir henni voru með átta. Vaktin heyrði […]
Bæjarráð vill að samgönguráðherra standi við gefin loforð

Á fundi bæjarráðs í gær var fjallað um stöðu mála varðandi smíði á nýrri Vestmannaeyjaferju. Bæjarráð lýsir þungum áhyggjum af stöðu mál og bendir á að ekkert bendi til þess að núverandi Herjólfur geti nýtt nýja höfn en bent hefur verið á það sem möguleika að láta núverandi ferju sigla til Landeyjahafnar. Þá segir í […]
Kynnir tillögu sína að menningarhúsi
Fríða Sigurðardóttir, arkitekt FAÍ, mun kynna fyrir Eyjamönnum tillögu sína að menningarhúsi þann 10. nóvember n.k. Verkefnið var lokaverkefni hennar í Mastersnámi í Arkitektúr Savannah College of Art and Design í Bandaríkjunum. Byggingin er staðsett á uppgraftarsvæðinu við Suðurveg og þjónar heimamönnum, sem og gestum á Eynni. (meira…)
Unnið við vegagerð að Kattarhrygg

Undirbúningsvinna að efnistöku í námum í Kattarhrygg í Seljalandsheiði hófst fljótlega eftir undirskrift verksamnings við Suðurverk í ágúst sl. Gengur hún nokkurn veginn samkvæmt áætlun. Verið er að ljúka við vegarkaflann frá Þórsmerkurvegi að námu en lega hans var ákveðin í samráði við Umhverfisstofnun og Fornleifavernd. (meira…)
Bankinn lekur!

Þeir sem áttu leið hjá útibúi Nýja Glitnis í Vestmannaeyjum í morgun tóku eftir vatnsleka við bankann og var engu líkara en að bankinn læki. Vatnslekinn var þó sem betur fer utandyra, rétt við útvegg hússins en samkvæmt upplýsingum sem Stefán Jónasson, hjá Hitaveitu Suðurnesja gaf upp, eru svona bilanir ekki alvarlegar. (meira…)
Selfoss mætir KA í fyrsta leik og ÍA í síðasta leik.
Búið er að draga í töfluröð fyrir íslandsmótið í 1. deild, sumarið 2009. Selfyssingar hefja leik á heimavelli gegn KA frá Akureyri. Þar mætir Gunnlaugur þjálfari Selfyssinga því fyrrum samherjar sínum frá ÍA, Dean Martin, en þeir eru báðir spilandi þjálfarar hjá sínum liðum. Ekki er síður spennandi leikur í lokaumferðinni en þá fá Selfyssingar […]
Fýlaveisla á veitingastaðnum Ströndinni við Víkurskála 8. nóv.
Fýll var mikil búbót fyrir mörgum árum síðan og étinn einu sinni í viku á sumum bæjum allan veturinn. Í dag þykir þetta herramannsmatur og er mikil hátíð þegar fjölskyldur og vinir koma saman til að snæða fýl og svo verður vissulega laugardaginn 8. nóvember n.k. Fýlaveislan í Vík er einmitt hugsuð til þess að […]
Október var kaldur
Samkvæmt yfirliti frá Veðurstofu Íslands var október s.l. kaldur og snjór heldur meiri og þrálátari en venjulegt er á þessum tíma árs. Meðal annars varð alhvítt víða Sunnanlands í fyrstu vikunni. Þó var hlýtt var í veðri í annarri viku mánaðarins. Meðalhiti í Reykjavík var 2,8°C og er það 1,6 stigi undir meðallagi. Ekki hefur […]
Opinn fundur

Mánudaginn 10. nóv. nk. kl. 20 heldur Vinstrihreyfingin- grænt framboð opinn fund á Kaffi Kró undir yfirskriftinni Fortíð – Nútíð – Framtíð.Á fundinn mæta Atli Gíslason og Steingrímur J. Sigfússon þingmenn, Ragnheiður Eiríksdóttir varaþingmaður Vinstri grænna í Suðurkjördæmi og Aldís Gunnarsdóttir varabæjarfulltrúi í Vestmannaeyjum. (meira…)
ÍBV mætir Álftanesi í forkeppni bikarsins

Körfuknattleikslið ÍBV mætir liði Álftaness í forkeppni bikarkeppninnar sem nú heitir Subway-bikarinn. Liðin leika einmitt saman í A-riðli 2. deildar en hafa ekki mæst í vetur. Álftanes er í efsta sæti riðilsins með fullt hús stiga eftir tvo leiki en ÍBV er í öðru sæti með jafn mörg stig en hefur leikið einum leik meira. […]
Endurskoða þarf fiskveiðistjórnunarkerfi ESB

Joe Borg, fiskimálastjóri ESB, segir alvarleg brot á reglum fiskveiðistjórnunarkerfis sambandsins undirstrika nauðsyn þess að endurskoða kerfið. „Án virkrar stjórnunar tekst okkur aldrei að snúa af þeirri braut hnignunar sem nú einkennir evrópskan sjávarútveg, segir hann.” (meira…)
Tónleikar Hjálma falla niður

Tónleikar Hjálma sem fram áttu að fara föstudagskvöldið 7. nóvember í Höllinni Vestmannaeyjum falla niður af óviðráðanlegum orsökum þar sem Hjálmar sjá sér ekki fært að mæta á svæðið. Tónleikarnir áttu að vera hluti af dagskrá „Nótt safnanna“ en falla því miður niður. (meira…)
�?fingabúðir kórs FSu að Heimalandi
Fjörutíu manna hópur kórs FSu fór í æfingabúðir að Heimalandi undir Vestur-Eyjafjöllum fyrir skömmu. Á föstudagskvöldinu æfði kórinn til klukkan 22 en þá tók kvöldvaka við. Nýir kórmeðlimir voru vígðir inn í kórinn á viðeigandi hátt, þ.e. í nafni kórsins, stjórnandans, Stefáns Þorleifssonar og Veru Óskar Valgarðsdóttur, sem er umsjónarmaður kórsins. Stjórn kórsins sló síðan […]
Forstjóri Litla-Hrauns bauð forsvarsmönnum SFR í heimsókn
Á dögunum heimsóttu Árni St. Jónsson formaður SFR og Þórarinn Eyfjörð framkvæmdastjóri fangelsið að Litla-Hrauni. Margrét Frímannsdóttir forstjóri bauð til þessarar heimsóknar til að kynna forsvarsmönnum félagsins stöðu mála innan fangelsisins og þá starfsemi sem þar fer fram. Eftir skoðunarferð um fangelsið þá var fundað með fangavörðum (meira…)
Sólveig Ýr Sigurjónsdóttir sigraði
Söngvakeppni Zelsiuzar – SamZel var haldinn á föstudagskvöld í Félagslundi. Keppnin var stórglæsileg og voru alls 6 atriði sem kepptu. Af öllum ólöstuðum vakti karlakórinn Mc Flói mesta athygli með flutningi sínum á þjóðsöng okkar. Fyrsta sæti hlaut Sólveig Ýr Sigurjónsdóttir með flutning sinn á Kelly Clarkson laginu Breakaway. (meira…)
Krepputal

Það er orðið langt síðan að maður heyrði einhvern fréttatíma, þar sem ekki var talað um kreppu og sennilega er líka langt þangað til að maður heyrir einhvern fréttatíma, þar sem ekki er minnst á kreppu. það sem hinsvegar hefur vakið athygli mína sérstaklega að undanförnu eru yfirlýsingar íhaldsmanna um að nú sé svo sannarlega […]
Hefndu sín á heimili lögreglumanns

Það var í nógu að snúast hjá lögreglu í vikunni sem leið og töluvert að gera aðfaranótt 1. nóvember sl. vegna hinna ýmissa mála sem upp komu er varðaði ölvunarástand gesta öldurhúsanna. Að morgni 1. nóvember sl. var par handtekið eftir að það hafi brotið rúðu á heimili lögreglumanns, sem hafði fyrr um nóttina haft […]
Stórtónleikar Frostrósa í Eyjum

Íslensku dívurnar, Margrét Eir, Eivør, Hera Björk og Dísella ásamt tenórunum Garðari Thor Cortes og Jóhanni Friðgeir munu færa okkur jólin með Frostrósum í ár. Með þeim verða góðir gestir, þau Edgar Smári og Guðrún Árný. Þeim til fulltingis verður Stórhljómsveit Frostrósa, Karlakórinn Fóstbræður, Skólakór Kársness, Stúlknakór Reykjavíkur og Íslenski gospelkórinn. Tónlistarstjóri er Karl O. […]