Ekki búið að fresta útboði fjölnota íþróttahúss

Á vef mbl.is er grein þar sem farið er yfir framkvæmdir sveitarfélaga, eða öllu heldur frestanir á þeim í því árferði sem nú er. Meðal annars er haft eftir Ólafi Þór Snorrasyni, framkvæmdastjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs í Vestmannaeyjum að ákveðið hefði verið að bíða með útboð vegna fjölnota íþróttahúss. Ólafur sagði í samtali við Eyjafréttir […]
Táknræn mótmæli við meðferðina á Sigmund

Það er með söknuði í huga að undirritaður tilkynnir uppsögn á áskrift að Morgunblaðinu sem ég hef haft samfellt í um fjóra áratugi. Ástæðan er ekki óánægja með efni blaðsins sem hefur í gegnum tíðina verið vandaðra og betra um flest en önnur íslensk dagblöð. Uppsögnin er einvörðungu táknræn andmæli við meðferð á rótgrónasta, hæfasta […]
Styrktartónleikar fyrir Sólheima í Grímsnesi
Styrktartónleikar verða haldnir í Selfosskirkju á morgun laugardaginn 25. október kl. 14:00 til styrktar nýrri byggingu á Sólheimum í Grímsnesi, sem líknar- og vinafélagið Bergmál er að byggja. Miðaverð kr 2000 krónur. Hægt er að panta miða í síma 692 1185 eða í gegnum póstfangið sigad@fiskistofa.is (meira…)
�?akkar aðilum sem stóðu fyrir blysförinni til heiðurs Sigurjóni �?lafssyni
Eyþór Arnalds, D-lista, óskaði eftir að tekin yrði á dagskrá bókun vegna aldarafmælis Sigurjóns Ólafssonar. Var það samþykkt samhljóða. Í fyrradag var þess minnst að 100 ár eru frá fæðingu Sigurjóns Ólafssonar myndhöggvara frá Einarshöfn á Eyrarbakka. Kennarar og nemendur í Barnaskólanum á Eyrarbakka og Stokkseyri ásamt fleirum, alls um 200 manns, heiðruðu minningu listamannsins […]
Lýsing á gatnamót Eyrarbakkavegar og Gaulverjabæjarvegar
Vegagerðin vinnur nú að því að koma fyrir ljósastaurum á gatnamótum Eyrarbakkavegar og Gaulverjabæjarvegar. Umferð er mikil um þennan veg og mun lýsing á gatnamótunum auka umferðaröryggi þarna til mikilla muna. Á ágætri heimasíði Óðins Andersen á Eyrarbakka má sjá umferðarteljara sem er á þessum vegi og fróðlegt er að líta á: http://www.123.is/brim/ (meira…)
Ekki útséð með hvar ÍBV spilar sína heimaleik næsta sumar

Ekki er öruggt að ÍBV spili sína heimaleiki á Hásteinsvelli eins og greint var frá í morgun en Ómar Smárason, leyfisstjóri KSÍ leiðrétti það í samtali við blaðamann og sagði eingöngu að lokafresti til framkvæmda hefði verið seinkað um tvö ár, frá 2010 til 2012. Kröfur leyfiskerfisins standa enn og enn er gert ráð fyrir […]
Kjötsúpudagurinn er næsta laugardag
Markaðsráð kindakjöts gengst fyrir hinum árlega kjötsúpudegi nú á laugardaginn, fyrsta vetrardag. Markaðsráðið hefur skipulagt þetta verkefni mörg undanfarin ár með góðum árangri. Kjötsúpudagurinn gengur út á það að fólk er hvatt með auglýsingum til að fagna vetri með því að elda íslenska kjötsúpu og nýta tækifærið og bjóða til sín vinum og ættingjum. Verslanir […]
ÍBV spilar heimaleiki sína á Hásteinsvelli næsta sumar

Stjórn KSÍ samþykkti á fundi sínum í morgun að bregðast við breyttum aðstæðum í þjóðfélaginu, bæði með því að leggja aukið fé í barna- og unglingastarf og einnig með því að fresta kröfum vegna mannvirkjagerðar við knattspyrnuvelli. Hásteinsvöllur uppfyllti ekki kröfur Leyfiskerfis KSÍ um 700 yfirbyggð sæti samkvæmt því hefði ÍBV ekki átt að fá […]
Nýr þjónustusamningur Sveitarfélagsins Árborgar og Ungmennafélags Stokkseyrar
Þjónustusamningurinn sameinar þrjá samninga sem Umf. Stokkseyri hefur haft við Árborg síðastliðin ár. Helstu atriði hans eru að Umf. Stokkseyri sér um rekstur íþróttahússins og knattspyrnuvallarins á Stokkseyri sem og undirbúning og framkvæmd hátíðarhalda í tengslum við komu jólasveinanna á Stokkseyri. Nokkur nýmæli eru í samningnum og ber þar helst að nefna: (meira…)
Hekla getur gosið hvenær sem er
Hekla getur gosið hvenær sem er, enda er þrýstingur undir eldfjallinu orðinn meiri en fyrir síðasta eldgos árið 2000, samkvæmt upplýsingum Páls Einarssonar jarðeðlisfræðings. Fyrirvari gosa í Heklu er skammur og því hafa yfirvöld áhyggjur af ferðamönnum á Heklu. Ferðamönnum þar hefur fjölgað mjög á undanförnum árum og skipta þeir hundruðum, sem ganga á fjallið […]
Grunaður um sölu á heimaslátruðu
Lögreglumenn á Hvolsvelli stöðvuðu ökumann á leið úr austurhluta umdæmisins í liðinni viku. Hann reyndist vera með 300 kíló af kindakjöti sem var heimaslátrað og ætlað til dreifingar. Kjötið var haldlagt og því eytt í samráði við Matvælastofnun eftir því sem segir í dagbók lögreglu. Hún bendir á að bændum sé einungis heimilt að slátra […]
Fiskverð á mörkuðum tekur góðan kipp
Í gær varð veruleg hækkun á fiskverði á fiskmörkuðunum. Selt var 51 tonn af óslægðum þorski og var meðalverð 317 kr/kg. Þá voru boðin upp 6,7 tonn af slægðum þorski og þar var meðalverðið 348. Ýsan var einnig á góðu flugi. Meðalverð á 84,7 tonnum var 240 kr. Þetta kemur fram á vef Landssambands smábátaeigenda […]
Mogginn endanlega kominn í þrot

Þannig er því komið að ekki munu fleiri myndir frá Sigmund birtast í Mogganum enda búið að segja honum upp eftir um 40 ára starf. Það er fjallað um þetta á eyjafrettir.is og getið þið lesið þá frétt hér. Ég skil vel að það þurfi að taka laglega til í þessu dagblaða rugli sem hefur […]
Ljósmyndasýningunni lokið
Við setningu Bryggjuhátíðar á Stokkseyri þann 11. júlí s.l. opnaði Ásta Stefánsdóttir, starfandi bæjarstjóri (bæjarritari) í Árborg ljósmyndasýningu á neðri hæð Bryggjusviðsins á Stokkseyrarbryggju. Þar voru 70 ljósmyndir Jóns Sigurgrímssonar f. 7. maí 1922 d. 29. júní 2008 frá Holti í Stokkseyrarhreppi hinum forna en hann var bóndi þar 1954 til 1995. Myndirnar eru af […]
Atli á leið til Noregs?

Atli Heimisson, framherji ÍBV liðsins í knattspyrnu, er á leið til norska 2. deildarliðsins Asker til reynslu í byrjun nóvember. Atli, sem varð markahæsti leikmaður ÍBV í sumar, vakti mikla athygli í sumar fyrir vasklega framgöngu sína í 1. deildinni og var m.a. valinn leikmaður ársins í 1. deild. Atli mun dvelja í rúma viku […]
Friðrik Sófusson áfram hjá Landsvirkjun
Landsvirkjun hefur ákveðið að framlengja ráðningarsamning við Friðrik Sófusson, forstjóra fyrirtækisins, til allt að tveggja ára. Stjórn Landsvirkjunar fór þess á leit við Friðrik að hann héldi áfram störfum og hefur hann fallist á það. Til stóð að Friðrik léti af störfum að eigin ósk í lok ársins. 55 höfðu sótt um forstjórastöðuna og höfðu […]
Ekið á stóran stein við Reynisfjall.
Tvö umferðaróhöpp voru bókuð hjá lögreglunni á Hvolsvelli í síðustu viku. Fyrra var um útafakstur að ræða vegna ísingar á vegi, ekki varð tjón á bifreiðinni í því tjóni, né hlutust af því slys. Í seinna tilvikinu var ekið á 300 – 400 kg stein sem fallið hafði úr Reynisfjalli og niður á Suðurlandsveg. Bifreiðin […]
Tvær líkamsárásir sömu nóttina
Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt tvo karlmenn um tvítugt í skilorðsbundið fangelsi fyrir tvær líkamsárásir utan við íþróttahúsið í Þorlákshöfn í febrúar á síðasta ári. Þeir voru einnig dæmdir til að greiða öðrum manninum, sem þeir réðust á, 311.850 krónur í bætur auk málskostnaðar. Annar var talinn hafa átt þátt í báðum árásunum og var hann […]
Kirkjutónleikar Kórs Fjölbrautaskóla Suðurlands
Kór Fjölbraytaskóla Suðurlands hefur á haustmánuðum fengist við að syngja trúarlega tónlist og má upplifa afrakstur þessarar vinnu á tvennum tónleikum á Suðurlandi. Kórinn syngur hefðbundinn raddaðan söng og ný kirkjuleg lög með undirleik. Sópransöngkonan Gyða Björgvinsdóttir syngur með kórnum í tveimur lögum og einnig syngja nokkrir kórfélagar einsöng. (meira…)
Ekki fleiri myndir frá Sigmund í Mogganum

Lesendur Morgunblaðsins hafa væntanlega tekið eftir breytingum á blaðinu undanfarið eftir að nýr ritstjóri tók við. Ekki er víst að allar breytingarnar falli í kramið en samkvæmt heimildum Eyjafrétta er búið að segja upp samstarfssamningi við teiknarann Sigmund. Sigmund hefur teiknað skopmyndir í Morgunblaðið síðustu 44 ár en síðasta myndin birtist í mánudagsblaði Moggans. (meira…)