Eyjamaður stjórnarfomaður Nýja Kaupþings

Nýja Kaupþing var stofnað í gær en áætlað er að nýji bankinn verði formlega komið í gang í fyrramálið. Formaður bráðabirgðastjórnar Nýja Kaupþings er Ólafur Hjálmarsson, hagstofustjóri en Ólafur er fæddur og uppalinn í Vestmannaeyjum. Ólafur er sonur Hjálmars Þorleifssonar og Kristínar Björnsdóttur. (meira…)
350 þúsund kr. sekt fyrir fíkniefnavörslur

Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt karlmann í 350 þúsund króna sekt fyrir vörslur á rúmlega 78 grömmum af kannabisefnum sem tekin voru af honum við komuna til Vestmannaeyja í sumar. Maðurinn kom með Herjólfi til Eyja í byrjun júlí með kannabisefnin og ætlaði að afhenda þau öðrum til sölu. Hann játaði sök. Hann hefur áður hlotið […]
Hvað gerir pabbi þinn?

Nonni litli er í sjötta bekk grunnskóla. Dag einn var samfélagsfræði og þá spurði kennarinn hvað feður þeirra störfuðu. Börnin svöruðu eins og þeim er lagið: Pabbi minn er lögga, brunaliðsmaður, skrifstofumaður, vinnur í verslun og svo framvegis. En kennarinn tók eftir því að Nonni litli var óvenju hljóður og lét lítið fara fyrir sér. […]
200 manns í blysför að Kríunni í morgun.
Í morgun var þess minnst að 100 ár eru frá fæðingu Sigurjóns Ólafssonar myndhöggvara frá Einarshöfn á Eyrarbakka. Kennarar og nemendur í Barnaskólanum á Eyrarbakka og Stokkseyri ásamt fleirum, alls um 200 manns, heiðruðu minningu listamannsins með 100 kyndla blysför frá Eyrabakkaskóla að listaverkinu Kríunni eftir Sigurjón í Hraunprýði austan við Litla-Hraun. Himnafaðirinn tendraði einnig […]
Viðrar vel til blysfararinnar að Kríunni kl. 8:30 í fyrramálið 21. okt.
Á morgun þriðjudaginn 21. október nk. er 100 ár verða frá fæðingu Sigurjóns Ólafssonar munu kennarar og nemendur í Barnaskólanum á Eyrarbakka og Stokkseyri heiðra minningu listamannsins með 100 kyndla blysför frá Eyrabakkaskóla að listaverkinu Kríunni eftir Sigurjón í Hraunprýði austan við Litla-Hraun. Krían var vígð á þessum stað í ársbyrjun 1981. (meira…)
Kveðjuhóf fyrir þrjá starfsmenn eftir langt starf
Þriðjudaginn 14. október sl. var haldið kveðjuhóf á Heilbriðgðistofnun Suðurlands á Selfossi fyrir 3 starfsmenn sem hætt hafa störfum vegna aldurs. Um er að ræða 3 konur sem allar eru fæddar árið 1941 og urðu því 67 ára á árinu. Þær eru: (meira…)
Stal forgangsakstursljósum og notaði
Síðastliðinn miðvikudag hringdi vegfarandi í lögreglu og lét vita um fólksbifreið sem væri í akstri á Suðurlandsvegi í Ölfusi og notaði forgangsakstursljós til að komast framúr bifreiðum. Það náðist til mannsins sem neitaði samvinnu við lögreglu. Hann var handtekinn og færður á lögreglustöð. (meira…)
Heilsað að sjómannasið í Eyjum

Það var í nógu að snúast hjá lögreglunni í vikunni sem leið og töluverður erill í kringum skemmtistaði bæjarins. Auk tveggja líkamsárása sem tilkynntar voru til lögreglu var lögreglan í tvígang kölluð að veitingastaðnum Lundanum vegna átaka þar fyrir utan. Hins vegar liggja ekki fyrir kærur í þeim tilvikum en einhver meiðsl voru samt sem […]
Safnahelgi á Suðurlandi 7. �? 9. nóvember 2008
Söfn um allt Suðurland og í Vestmannaeyjum bjóða upp á fjölbreytta menningardagskrá helgina 7. – 9. nóvember 2008. Yfirskrift dagskrárinnar verður Safnahelgi á Suðurlandi með undirtitilinum Matur og menning úr héraði því auk hins sögulega og menningarlega hluta dagskrárinnar verður minnt á gamlar og nýjar hefðir í matargerðarlist í héraðinu. (meira…)
Hermann aðeins með 211 mínútur í vetur

Hermann Hreiðarsson kom ekkert við sögu hjá liði sínu um helgina þegar Portsmouth gerði markalaust jafntefli við Aston Villa. Hefur Hermann aðeins fengið að leika rúmlega 200 mínútur í vetur. Tvívegis hefur Hermann verið í byrjunarliði Portsmouth en í bæði þau skipti tapaði lið hans stórt. Fjögur skipti önnur hefur Hermann komið við sögu sem […]
Aldarminning Sigurjóns �?lafssonar frá Eyrarbakka
Myndhöggvarinn Sigurjón Ólafsson frá Einarshöfn á Eyrarbakka fæddist 21. október árið 1908 og ólst þar upp. Fyrstu tilsögn í myndlist hlaut hann hjá Ásgrími Jónssyni listmálara og síðar Einari Jónssyni myndhöggvara. Samhliða listnáminu lauk Sigurjón sveinsprófi í húsamálun frá Iðnskólanum í Reykjavík vorið 1927. Ári síðar sigldi hann til Kaupmannahafnar, þar sem hann hóf nám […]
ÍBV 2 með glæsilegan sigur í Meistaradeildinni

Útibú handboltaliðs ÍBV í Vestmannaeyjum, Haukar, unnu í dag einn stærsta sigur íslensks handbolta þegar liðið lagði ungverska stórliðið Veszprém á Ásvöllum í dag 27:26 en Haukar höfðu mikla yfirburði í leiknum. Í liði Hafnarfjarðarliðsins má finna fjölda Eyjamanna, m.a. fimm leikmenn sem stóðu svo sannarlega fyrir sínu í leiknum. (meira…)
Menningarferðir á Listasafn Árnesinga í Hveragerði
Á þriðjudag fór Elísabet Harðardóttir myndlistarkennari með nemendur í myndlist 103 og nemendur í leiráföngum í menningarferð á Listasafn Árnesinga í Hveragerði. Sýningin sem þau sáu heitir Picasso á Íslandi” og sýnir áhrif Picassos á íslenska listamenn á síðustu öld og fram til dagsins í dag. Þetta er önnur heimsókn FSu á safnið þessa önnina. […]
Endurskoðuð fjárhagsáætlun ársins 2008 samþykkt
Endurskoðuð fjárhagsáætlun ársins 2008 var samþykkt á fundi bæjarstjórnar þann 9. október s.l. Bæjarstjóri kynnti áætlunina og í máli hennar kom fram að rekstur bæjarins er í góðu jafnvægi en aukin verðbólga gerir aftur á móti að verkum að væntingar um jákvæða niðurstöðu í lok árs munu ekki nást. Gert er ráð fyrir aukningu í […]
Vetrarvertíðin hafin hjá Sæprjóni
Vetrarvertíðin er hafin hjá Prjónastofunni Sæprjóni á Stokkseyri enda er fyrsti vetrardagur næsta laugardag 25. október. Prjónastaofan framleiðir m.a. hina vinsælu vinnuvetlinga eftir línu Mosfells á Hellu og eru þeir mikið notaðir af iðnaðarmönnum við útiverk sem og útivistarfólki svo sem hestafólki. Vettlingar renna út eins og heitar lummur þessa dagana enda allra veðra von. […]
Selfyssingar of stór biti fyrir Eyjamenn

ÍBV og Selfoss mættust í dag í 1. deild karla í handbolta en leikurinn fór fram í Vestmannaeyjum. Selfyssingar hafa verið á miklu flugi í upphafi leiktíðar og höfðu unnið þrjá af fjórum leikjum en á meðan höfðu Eyjeamenn unnið tvo, báða á heimavelli. En gestirirnir frá Selfossi voru mun sterkari í dag og unnu […]
Nýtt myndband með Hrútavinabandinu
Húsfyllir var hjá Hrútavinafélaginu/ Súluvinafélaginu á Uppskeru- og réttarsamkomu í veitingahúsinu Hafinu bláa við Ölfusárósa fyrir nokkru. Hljómsveit Hrútavina “Bændabandið” kom fram með gestasönvaranum Karen Dröfn Hafþórsdóttir á Eyrarbakka. Hér má sjá myndband frá samkomunni: http://www.123.is/vilpreb/video/ (meira…)
Fjöldi við opnun 50. málverkasýningarinnar
Fjölmenni var hjá Elfari Guðna Þórðarsyni, listmálari á Stokkseyri, er hann opnaði 50. málverkasýninguna í gærkveldi í sýningarsal sínum Svarta-kletti í Menningarversatöðinni á Stokkseyri. Sýning Elfars Guðna nú er jafnframt afmælissýning listamannsins því hann fagnaði 65 ára afmæli í gær. Sýningin verður opin daglega allt til 7. desember nk. frá kl. 14:00 – 18:00 Sjá […]
Dagur sauðkindarinnar laugardaginn 18. okt. á Hvolsvelli
Félag sauðfjárbænda í Rangárvallasýslu stendur fyrir Degi sauðkindarinnar í Rangárþingi laugardaginn 18. október í Skeiðvangi, reiðhöllinni á Hvolsvelli. Á dagskránni kl. 14:00 – 17:00 verður m.a. opinn markaður á lambhrútum og gimbrum, dómar og röðun á veturgömlum hrútum og uppboð á hrútum. Um kvöldið verður síðan Sviðamessa á Hótel Hvolsvelli Dagskrá: (meira…)
Samgöngubætur í hættu?

Samningaviðræður við þýska skipafyrirtækið Fassmeer um smíði nýrrar Vestmannaeyjaferju eru komnar í biðstöðu. Ástæðan er erfiðleikar erlendis við að fá bankatryggingar sökum lítils trausts á íslenska fjármálakerfinu og efasemda um að íslenska ríkið geti staðið við skuldbindingar sínar. (meira…)