Bæjarráð samþykkir breytingar á reglum um heimgreiðslur
Mynd/úr safni

Bæjarráð Vestmannaeyja hefur samþykkt tillögur fræðsluráðs um breytingar á reglum um heimgreiðslur til foreldra barna sem ekki hafa fengið leikskólapláss. Tillögurnar voru áður teknar fyrir á fundi fræðsluráðs 15. janúar og verður framvegis fylgst með áhrifum breytinganna, samkvæmt minnisblaði framkvæmdastjóra fjölskyldu- og fræðslusviðs.

Heimgreiðslur eru ætlaðar til að bregðast við umframeftirspurn eftir leikskólaplássum, en tekjutenging greiðslnanna varð tilefni umræðu í bæjarráði.

Fulltrúi D-lista lagði fram bókun þar sem hann lýsir andstöðu við tekjutengingu. Að hans mati gengur slíkt fyrirkomulag gegn markmiði greiðslnanna, sem sé að létta á skorti á leikskólaplássum. Hann vísaði jafnframt til fyrri bókana fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í málinu.

Fulltrúar E- og H-lista bentu hins vegar á að afnám tekjutengingar gæti haft veruleg áhrif á fjárhag sveitarfélagsins. Samkvæmt þeirra mati myndi það annað hvort tvöfalda kostnað, úr um 16 milljónum króna í 30 milljónir, eða leiða til þess að greiðslur til hvers foreldris lækkuðu úr 220 þúsund krónum í 110 þúsund, líkt og Sjálfstæðisflokkurinn lagði til í febrúar 2024. Þeir sögðu jafnframt óljóst hvort tillaga fulltrúa minnihlutans fæli í sér slíka lækkun.

Í annarri bókun hafnaði fulltrúi D-lista því að kostnaður myndi sjálfkrafa tvöfaldast og benti á að ekki lægju fyrir launaupplýsingar þeirra foreldra sem gætu nýtt sér úrræðið. Hann taldi jafnframt að jafnvel óbreyttar greiðslur upp á 220 þúsund krónur til allra gætu reynst hagkvæmari en sá kostnaður sem sveitarfélagið þyrfti annars að bera vegna reksturs nýrra leikskólaplássa.

Fulltrúar E- og H-lista vísuðu að lokum til minnisblaðs sviðsstjóra þar sem fram kemur áætlaður kostnaður vegna breytinganna.

Nýjustu fréttir

Tannverndarvika
Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Útboð Vestmannaeyjabæjar um heilsurækt aftur til kærunefndar
Myndband frá höfninni: Steðji VE landar
Að loknu prófkjöri
Bærinn eignfærir lögfræðikostnað  
ÍBV tapaði gegn Haukum
Bæjarráð hafnar bótakröfu vegna gatnagerðar við Alþýðuhús
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.