1565. fundur Bæjarstjórnar Vestmannaeyja verður haldinn í gegnum fjarfundabúnað, 5. nóvember 2020 og hefst hann kl. 18:00
Fundurinn verður sendur út beint í gegnum fjarfundarbúnaðinn Teams.
Tengill á beinaútsendingu frá bæjarstjórn
Dagskrá:
Almenn erindi
1. 202006242 – Fjárhagsáætlun 2021
2. 202010069 – Þriggja ára fjárhagsáætlun 2022-2024
3. 201212068 – Umræða um samgöngumál
4. 202011006 – Kosning í ráð, nefndir og stjórnir skv. 42. gr. bæjarmálasamþykktar Vestmannaeyjabæjar.
Fundargerðir til staðfestingar
5. 202010001F – Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja – 333
Liðir 1-3 liggja fyrir til staðfestingar.
6. 202010005F – Bæjarráð Vestmannaeyja – 3138
Liður 1 liggur fyrir til staðfestingar.
7. 202010002F – Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja – 256
Liðir 1-5 liggja fyrir til staðfestingar.
8. 202010012F – Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja – 334
Liðir 1-6 liggja fyrir til staðfestingar.
9. 202010008F – Fjölskyldu- og tómstundaráð – 252
Liðir 1-10 liggja fyrir til staðfestingar.
10. 202010006F – Bæjarráð Vestmannaeyja – 3139
Liðir 1-6 liggja fyrir til staðfestingar.
11. 202010016F – Fræðsluráð – 336
Liður 2, Menntarannsókn, liggur fyrir til umræðu og staðfestingar.
Liðir 1 og 3-6 liggja fyrir til staðfestingar
12. 202010017F – Bæjarráð Vestmannaeyja – 3140
Liður 4, Endurskoðun og uppgjör fyrir Vestmannaeyjabæ fyrir árin 2020 til og með 2022, liggur fyrir til umræðu og staðfestingar.
Liðir 1-3 og 5-7 liggja fyrir til staðfestingar.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.