Bæjarstjórn Vestmannaeyja fagnaði því að fundi í gær að nú skuli loks hafa verið flutt tillaga á alþingi sem felur í sér heimild til útboðs á nýrri Vestmannaeyjaferju. �?ar með verði stigið eitt af mikilvægum skrefum í átt að lausn á samgöngu vanda Eyjamanna. Bæjarstjórn minnir ennfremur á mikilvægi þess að hlustað verði eftir óskum heimamanna í því sem snýr að rekstri hinnar nýju ferju og vísar m.a. til neðangreindra áhersluatriða bæjarstjórnar:
1. Fargjald í �?orlákshöfn
Bæjarstjórn Vestmannaeyja hafnar með öllu áformum um að hærra verð sé tekið fyrir siglingar í �?orlákshöfn en í Landeyjahöfn. Eðlilegt og sanngjarnt er að eitt verð gildi fyrir báðar leiðir og fráleitt að rukka sérstaklega þegar siglt er um lengri og erfiðari leið vegna náttúrulegra aðstæðna svo sem veðurs og sandburðar.
2. Lengd útboðs
Bæjarráð hefur þegar lagst eindregið gegn því að samið verði um rekstur ferjunnar til lengri tíma en 3 til 5 ára í senn og þá með skýrum og virkum uppsagnarákvæðum. Siglingar í Landeyjahöfn eru þjóðvegurinn til Eyja. Mikilvægt er að slík grunnþjónusta sé ætíð kvik og hægt sé að skipta um rekstraraðila hratt og örugglega ef þörf er á. Í skemmri samningum er einnig aukinn hvati til árangurs í þjónustu.
3. Gjaldtaka fyrir afnot af þjóðvegi
Gerð er krafa um að gjaldtaka í Herjólf taki mið af því að um er að ræða þjóðveginn til Eyja. �?annig ætti eingöngu að greiða fyrir bíl sambærilegt verð og kosta myndi að aka þessa leið. Ekki ætti að rukka sérstaklega fyrir farþega í bílum og hófstillt verð fyrir aðra farþega.
4. Ferðafjöldi
Ítrekað í kynningu á verkefninu hefur bæjarstjórn og Eyjamönnum öllum verið kynnt að takmörkun á stærð skipsins verði mætt með stórauknum fjölda ferða. Farið er fram á að ferðir í vetraráætlun verði að lágmarki 5 ferðir á dag og 8 ferðir á dag yfir sumartímann. �?á leggur bæjarstjórn það til að inn í útboðsgögn verði byggð sjálfvirk fjölgun ferða þegar biðlistar valda orðið óþægindum fyrir notendur.
5. Árstíðarbundin áætlun
Bæjarstjórn Vestmannaeyja leggur áherslu á að áætlun skipsins taki mið af þeim breytta veruleika sem fylgt hefur auknu flæði fólks og vaxandi ferðaþjónustu. Sumartími í ferðaþjónustu í Vestmannaeyjum spannar í það minnsta 1. maí til 30. september. �?annig kemur til að mynda mikill fjöldi ferðamanna á haustin til að njóta pysjutímans (a.m.k. út sept. og fram í okt) og á sama hátt er tíminn þegar lundinn er að setjast upp og farfuglar að koma til sumardvalar (apríl og maí) mjög eftirsóknarverður fyrir ferðamenn. �?ví er farið fram á að árstíðaráætlun skiptist svo:
Vetraráætlun frá 1. okt til 30. apríl. – Sumaráætlun frá 1. maí til 30. sept.
6. Flutningsgeta
�?ekkt er að hámarksflutningsgeta skipsins er mismunandi á sumrin og veturna. Farið er fram á að þegar sumaráætlun er í gildi (1. maí til 30. sept) sé flutningsgeta skipsins 550 farþegar.
7. Aukaferðir
Samfélagið í Vestmannaeyjum er með öllu háð samgöngum á sjó. Með siglingum Herjólfs stjórna samgönguyfirvöld lífsgæðum bæjarbúa. Ítrekað gerist það að aukinn sveigjanleika þarf til að mæta sérstökum þörfum. �?annig getur það komið til að sigla þurfi aukaferð vegna stórs viðburðar á sviði íþrótta eða að bæta við ferð seint um kvöld til að koma gestum á bæjarhátíðum (goslok, �?rettándi og fl.) til síns heima. �?ví er eindregið óskað eftir því að í útboði verði boðið fast verð í aukaferðir, annars vegar þegar verið er að bæta ferð inn í áætlun (milli ákveðinna ferða) og hins vegar þegar ferð er bætt inn í utan áætlunnar. �?á er einnig óskað eftir því að boðin verði út ákveðinn pakki af ferðum (t.d. 30 til 50 ferðir) sem bæjaryfirvöld í Vestmannaeyjum geta í samráði við Vegagerðina fundið stað í viðbót við áætlun.
8. Bókunarkerfið
�?að bókunarkerfi sem nú er unnið eftir er afleitt og ekki boðlegt að áfram verði unnið á forsendum þess. �?á leggur bæjarstjórn Vestmannaeyja þunga áherslu á að hægt verði að bóka a.m.k. 2 ferðir á dag 12 mánuði fram í tímann innan vetraráætlunar og í allar ferðir í sumaráætlun. Slíkt er gríðarlega mikilvægt fyrir t.d. ferðaþjónustu enda skipuleggja ferðaskrifstofur sig a.m.k. ár fram í tímann.
9. Helgidagar
Enn og aftur er minnt á að þjónustustig Herjólfs stjórnar lífsgæðum í Vestmannaeyjum. Í samræmi við nútíma kröfur er gerð krafa um að ferjan sigli alla daga ársins án skerðingar á þjónustu og fjölda ferða nema á aðfangadag, jóladag, gamlársdag og nýársdag þegar farnar væru að lágmarki 3 ferðir. Að rjúfa samgöngur við Vestmannaeyjar á stórhátíðardögum er eins og að loka Grindavíkurvegi eða Vesturlandsvegi þessa daga. Slíkt er ekki boðlegt.
10. Einkaeiga á innri gerð.
Siglingar í Landeyjahöfn eru þjóðvegurinn til Eyja. Einkaframkvæmdir í vegakerfinu hafa eingöngu verið farnar þegar val er um aðra leið svo sem hvað varðar jarðgöngin undir Hvalfjörðinn. Eðlileg og sanngjörn krafa er að þjóðvegurinn til Eyja gegni sömu lögmálum.
11. �?jónusta í landi
Bæjarstjórn hvetur til þess að í útboði sé tryggt að þjónusta í landi sé í samræmi við mikilvægi hennar. Gera þarf ríka kröfu um rúman opnunatíma, öfluga símaþjónustu og skilvirkar upplýsingaveitur. �?á þarf aðstaða í landi að taka mið af þeim mikla fjölda sem fer þar um.
12. �?jónusta um borð
Bæjarstjórn Vestmannaeyja hvetur til þess að þjónusta um borð í ferjunni verði í samræmi við að um er að ræða fólksflutninga og ferðaþjónustu. �?annig sé til að mynda gerð krafa um góða nettengingu, góða leikaðstöðu fyrir börn, veitingaþjónustu og ýmislegt fl.
Hildur Sólveig Sigurðardóttir (sign)
Páll Marvin Jónsson (sign)
Elliði Vignisson (sign)
Trausti Hjaltason (sign)
Birna �?órsdóttir (sign)
Auður �?sk Vilhjálmsdóttir (sign)
Stefán �?skar Jónasson (sign)
Bókunin var samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.