Bænastund í dag, sunnudagaskóli fellur niður
Viðar Örn í góðum gír

Helgihald dagsins verður með öðru sniði vegna komandi samkomubanns. Af þeim sökum hefur sunnudagaskólanum verið aflýst.

Klukkan 14:00 verður hins vegar stutt bænastund í kirkjunni sem er opin öllum. Sr. Viðar þjónar fyrir altari og flytur hugvekju. Þá verður Kitty við orgelið en þó án kórs Landakirkju.

Eðli komandi vikna samkvæmt er ýmislegt sem veldur kvíða og áhyggjum enda fordæmalausir tímar í sögu lýðveldisins. Bænastund morgundagsins er því tilvalin til að koma saman í síðasta sinn í kirkjunni fyrir samkomubann. Þar gefst okkur gott tækifæri og rými til að fela áhyggjur okkar, komandi tíma, náunga okkar, okkur sjálf og land okkar í hendur Guðs.

Nýjustu fréttir

Bæjareign við Ægisgötu sett í sölu
Eyjaliðin í eldlínunni í dag
Ófullnægjandi dýpi í Landeyjahöfn – uppfært
Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.