Bærinn leggur út 461 milljón á meðan beðið er svara
Lögnin er komin um borð í skip. Ljósmynd/Vestmannaeyjar.is

Vestmannaeyjabær greiðir 461,4 milljónir króna til NOV vegna kaupa á almannavarnarlögninni NSL-4. Greiðslan verður fjármögnuð með handbæru fé bæjarins, en áætlaður heildarkostnaður við verkefnið er um þrír milljarðar króna.

Bæjarráð samþykkti á fundi sínum viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2026 vegna kaupanna. Ekki hafði verið gert ráð fyrir greiðslunni í fjárheimildum ársins þar sem bæjarstjórn telur að almannavarnir séu á ábyrgð ríkisins og að ríkið eigi því að greiða fyrir lögnina.

Vestmannaeyjabær á ekki vatnsveituna og innheimtir engin vatnsgjöld. Þá skilar almannavarnarlögnin sveitarfélaginu engum tekjum.

Um þriggja milljarða króna framkvæmd

Áætlað er að heildarkostnaður við vatnslögnina verði um þrír milljarðar króna. Bæjarráð hefur lagt ríka áherslu á við ríkið að verkefnið verði viðurkennt sem almannavarnamál.

Verði það niðurstaðan mun ríkið standa straum af kostnaði við lögnina. Ríkið hefur þegar samþykkt 800 milljóna króna framlag til verkefnisins en sú ákvörðun var tekin af þáverandi ríkisstjórn árið 2023.

Enn liggur ekki fyrir niðurstaða í viðræðum Vestmannaeyjabæjar við innviða-, dómsmála- og fjármálaráðuneyti um frekari aðkomu ríkisins að fjármögnun lagnarinnar.

Bæjarstjóra hefur verið falið að ítreka ósk um svör frá ráðuneytunum. Jafnframt á að upplýsa forsætisráðherra og formann allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis um skort á svörum við erindi bæjarins.

Nýjustu fréttir

Skólastarf hefst á ný í GRV
Höfum kjark til að horfa á staðreyndir
Sindri Georgsson – Fátt sem toppar utanvegahlaup í Eyjum
Fjórði stærsti júlímánuður í sögu Herjólfs
Karlasveit GV leikur í deild þeirra bestu að ári
Mikið siglt og víða leitað eftir afla
Skólastarf að hefjast á ný í FÍV
Íslendingar eru þjakaðir af launahækkunum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.