Baráttusigur á FH stúlkum
Mynd úr safni.

ÍBV fékk FH stúlkur í heimsókn í 11. umferð Pepsi-deildarinnar nú í kvöld.

Eyjastúlkur voru mun sterkari í upphafi leiks og leiddu leikinn með tveimur mörkum gegn engu eftir engöngu 9 mínútna leik. Eftir mörk frá Sigríði Láru Garðarsdóttur á 4. mín og Cloé Lacasse á þeirri 9. Cloé var svo aftur á ferðinni á 32. mínútu og kom ÍBV í 3-0. Þannig stóð í hálfleik.

Í síðari hálfleik gáfu FH stúlkur í og skoruðu þær Þóra Björk Eyþórsdóttir og Rannveig Bjarnadóttir sitt hvort markið fyrir FH. Eyjastúlkur stóðust þó áhlaupið þó ekki hafi mikið vantað uppá á stundum. Lokastaðan ÍBV 3-2 FH.

„Við vor­um miklu sterk­ari en þær í fyrri hálfleik og átt­um að vera bún­ar að ganga frá leikn­um þar. Við átt­um enda­laust af fær­um og hefðum getað skorað fimm, sex, sjö eða átta mörk. Þrjú mörk á samt að vera nóg til að vinna fót­bolta­leik, þetta var allt annað en á móti KR. Seinni hálfleik­ur­inn var fínn fram að fyrsta mark­inu sem þær skora, við viss­um al­veg að þær myndu pressa á okk­ur til að koma sér aft­ur inn í leik­inn, svo gerðist svipað og á móti KR, það kom tíu mín­útna kafli þar sem við gerðum mjög mikið af mis­tök­um. Heilt yfir er ég þó ánægður með sig­ur­inn,“ sagði Ian í viðtali við mbl.is eftir leikinn í kvöld.

Eftir leikinn sitja FH stúlkur því áfram á botni deildarinnar með 6 stig. ÍBV siglir heldur lygnan sjó um miðbik deildarinnar í 5. sæti með 14 stig.

Nýjustu fréttir

Hermundur hugmyndasmiður Kveikjum neistann 
99 á atvinnuleysisskrá í Eyjum – árstíðasveiflur skýra haustaukningu
Ómetanlegt að sjá heilt samfélag taka höndum saman
Radarhýsið komið á sinn stað á Stórhöfða
Fjölbreytt fjögurra daga menningarveisla
Vikan í Eyjum: Fjármál bæjarins, brons og besta lundasumarið
„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.