Beðið með eftirvæntingu eftir loðnuráðgjöf
Nótin tekin um borð í Sigurð VE. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Þess er nú beðið með talsverðri eftirvæntingu að Hafrannsóknastofnun gefi út ráðgjöf sína varðandi aflaheimildir í loðnu. Búist er við að það verði gefið út á morgun, fimmtudag. Að sögn Eyþórs Harðarsonar, útgerðarstjóra Ísfélagsins er nú verið að græja skipin fyrir loðnuvertíðina sem er í vændum.

„Við erum að taka loðnunæturnar um borð í Sigurð og Heimaey og gera skipin klár til veiða þessa dagana. Við eigum von á að fara af stað þegar vika er liðin af febrúar, en auðvitað blundar í mönnum von um að loðnukvótinn verði aukinn það mikið að ástæða verði til að fara sem fyrst af stað. Ísfélagið áætlar að nota þrjú skip við veiðarnar, þ.e. Heimaey, Sigurð og Álsey, og fókusinn verður eingöngu á heilfrystingu og hrognatöku í lok vertíðar. Vonandi fáum við góðar fréttir frá Hafrómönnum á fimmtudaginn, en þá er reiknað með að útreikningar úr loðnuleiðangrinum liggi fyrir og endanleg úthlutun verði birt,“ segir Eyþór í samtali við Eyjafréttir.

Óskar Pétur Friðriksson og Halldór B. Halldórsson voru á hafnarsvæðinu í morgun og má sjá myndefni þeirra hér að neðan. Þar má einnig sjá nýjan viðlegukant sem unnið hefur verið við undanfarna mánuði, Gjábakkabryggju.

Play Video

Nýjustu fréttir

Yfir þúsund pysjur skráðar
Fjölmenni á opnum fundi Áfram Ísland
Kvennalið ÍBV sigraði alla sína leiki á Ragnarsmótinu
Styður lengri útivistartíma 10–12 ára barna
Þyrlupallurinn í Surtsey stækkaður
ÍBV tapaði gegn Þrótti R. á Hásteinsvelli
Stefnt að styttingu Hörgaeyrargarðs í lok september
Livey tekur við streymi Olísdeildarinnar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.