Bergur-Huginn selur Bergey VE til Grundarfjarðar

Í gær var undirritaður samningur um að útgerðarfélagið Bergur-Huginn í Vestmannaeyjum, dótturfélag Síldarvinnslunnar, selji Guðmundi Runólfssyni hf. í Grundarfirði togskipið Bergey VE 544. Gert er ráð fyrir að skipið verði afhent nýjum eiganda í síðasta lagi í septembermánuði næstkomandi.

Bergey VE er 486 brúttótonn að stærð og smíðuð í Gdynia í Póllandi árið 2007. Útgerð Bergeyjar hefur ávallt gengið vel rétt eins og útgerð systurskipsins Vestmannaeyjar VE. Í lok síðasta mánaðar var greint frá því að aflaverðmæti Bergeyjar, frá því að skipið hóf veiðar í ágústmánuði 2007, hefði rofið tíu milljarða múrinn og á þeim tíma var heildaraflinn orðinn rúmlega 39.000 tonn.

Áður hefur komið fram að Bergur-Huginn á tvö skip í smíðum í Noregi og er þeim ætlað að leysa núverandi Bergey og Vestmannaey af hólmi. Gert er ráð fyrir að útgerðarfélagið fái nýju skipin afhent á komandi sumari. Nýju skipin eru 28,95 m að lengd og 12 m að breidd og verða þau að öllu leyti afar vel búin og lögð áhersla á góða vinnuaðstöðu, góða orkunýtingu og sem fullkomnasta nýtingu á afla.

Magnús Kristinsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri og núverandi stjórnarmaður í útgerðarfélaginu Bergur-Huginn, segir að það sé eftirsjá að Bergey. „Ég kem til með að sakna skipsins mikið. Að mínu mati eru Bergey og Vestmannaey best heppnuðu skip sem veitt hafa við Ísland. Við sjáum það svart á hvítu á aflanum sem þau hafa borið að landi og aflaverðmætunum. Það gekk einstaklega vel að hanna og smíða þessi skip og þar höfðu starfsmenn útgerðarfélagsins mikil áhrif. Útgerð skipanna hefur gengið einstaklega vel enda hafa þau ávallt verið vel mönnuð. Ég er líka spenntur fyrir nýju skipunum sem félagið á í smíðum og vona að þau verði jafn miklar happafleytur og þau gömlu. Það eru spennandi tímar framundan,“ segir Magnús.

Guðmundur Smári Guðmundsson, framkvæmdastjóri Guðmundar Runólfssonar hf., segir að ástæður fyrir skipakaupunum séu einkum tvær. Í fyrsta lagi sé fyrirtækið að taka í notkun nýja og afkastamikla fiskvinnslustöð og því sé brýnt að auka veiðigetu skipa þess. Og í öðru lagi mun nýja skipið leysa af hólmi eldra og minna skip sem nú er í eigu fyrirtækisins. „Við trúum því að við séum að fá öflugt og gott skip sem hentar okkar starfsemi vel. Við eigum fyrir sambærilegt skip og það verður hagkvæmt að gera þau út saman. Hér ríkir mikil ánægja með þessi skipakaup,“ segir Guðmundur Smári.

Nýjustu fréttir

Eyjamenn sóttu þrjú mikilvæg stig norður
„Við erum ótrúlega stolt af ykkur“
Mikill ferðamannastraumur um helgina – myndband
Heimir og Særún heilluðust af Vestmannaeyjum
Glæsilegu TM móti lokið – Þróttur R. varð TM móts meistari
ÍBV getur farið upp fyrir Þór
Sýndu fjölbreytni, metnað og sköpunargleði
ÍBV stelpurnar gerðu jafntefli við Þrótt R.

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.