Besti árangur allra lífeyrissjóða á Íslandi árið 2017
25. maí, 2018
Lífeyrissjóður Vestmannaeyja hefur það eina hlutverk að varðveita sjóði eigenda hans og ávaxta þá til að greiða þeim sömu eigendum lífeyri. Sá lífeyrir er margvíslegur og til allrar lukku er það aðallega ellilífeyrir, því lífslíkur okkar eru orðnar það miklar. Einnig er stór þáttur örorkulífeyrir og aðrar lífeyrisgreiðslur eins og t.d. maka- og barnalífeyrir.
Á árinu 2017 greiddu 2.205 sjóðfélagar iðgjöld til sjóðsins alls kr. 1.397.000.000 eða um 1,4 milljarða króna. En á sama tíma voru útgreiðslur lífeyris kr. 1,548.000.000 og hækkuðu um 5,8% frá fyrra ári. Lífeyrisþegar voru alls 1.679, mest ellilífeyrisþegar. Sem þýðir að sjóðurinn er orðinn fullþroskaður og farinn að greiða meira út í lífeyri en sem nemur iðgjöldum. Og allur útgreiddur lífeyrir er sem betur fer tryggður með verðtryggingu.
Undanfarin misseri hefur stórt skref verið stigið í átt að jöfnun lífeyrisréttinda milli almenna vinnumarkaðarins og þess opinbera. Í kjarasamningi aðila almenna vinnumarkaðarins hækkaði iðgjald atvinnurekenda í lífeyrissjóði fyrst um 0,5% 1. júlí 2016 og um 1,5% 1. júlí 2017. 1. júlí n.k. hækkar mótframlag atvinnurekenda um 1,5% og verður þá samanlagt 11,5% að viðbættu 4% framlagi launþega sem verður áfram óbreytt eða alls 15,5%. Hækkunin á þó ekki við um alla kjarasamninga, sem dæmi er mótframlagið óbreytt hjá sjómönnum eða 8%.
Mikið og strangt eftirlit er með starfsemi og fjárfestingum sjóðsins. �?ar standa daglega vaktina framkvæmdastjóri og tveir starfsmenn. Eitt endurskoðunarfyrirtæki sér um ytri endurskoðun, endurskoðar sjóðinn og gerir ársreikning ásamt því að skoða reglulega ýmsa þætti er snúa að rekstrinum. Annað endurskoðunarfyrirtæki sér um innri endurskoðun og fer yfir verkferla og öryggismál eins og persónuvernd og ýmsa aðra þætti.
Endurskoðunarnefnd er starfandi í sjóðnum og fer yfir starfsemi og verklag það sem er viðhaft innan sjóðsins. Greiningarfyrirtæki fer nokkrum sinnum á ári yfir áhættuþætti í innra og ytra umhverfi sjóðsins og skilar skýrslu þar um. Seðlabanki Íslands og sérstaklega Fjármálaeftirlitið fylgist náið með starfseminni, fer reglulega yfir svo dæmi sé tekið fjárfestingar miðað við fjárfestingarstefnu, störf og fundargerðir stjórnar og láta sér ekkert er snýr að rekstri sjóðsins vera sér óviðkomandi. �?ar að auki fer tryggingastærðfræðingur yfir skuldbindingar sjóðsins og hvort sjóðurinn geti staðið við þær greiðslur sem hann er að lofa.
En fyrst og fremst er það stjórn sjóðsins sem ber ábyrgð á rekstri hans, að allar fjárfestingar og rekstur uppfylli lög, reglur og samþykktir. Auk siðferðislegrar ábyrgðar þá bera stjórnarmenn persónulega fjárhagslega ábyrgð misfarist eitthvað, og ef ekki hafi verið farið eftir lögum og reglum í ákvörðunum hennar varðandi sjóðinn. �?annig er hægt að fullyrða að rekstur og eftirlit með sjóðnum er eins og best gerist hér á landi.
Lífeyrissjóður Vestmannaeyja er langtímafjárfestir og horfir til þess við stýringu á fjárfestingum sínum. Horft er til þeirra kjara sem eru í boði hverju sinni að teknu tilliti til áhættu. Sjóðurinn hefur sérstaka áhættustefnu samkvæmt lögum, sem er varfærin og hefur skilað sjóðnum árangri til lengri tíma litið. Á þann máta eru hagsmunir sjóðfélaga Lífeyrissjóðsins best tryggðir. Sjóðurinn er einn örfárra lífeyrissjóða sem ekki skerti réttindi lífeyrisþega eftir hrun og erum við stjórnin og starfsmenn stolt af því.
Rekstur sjóðsins gekk vel á síðasta ári, árangur mældur í raunávöxtun er um 6,3%, nafnávöxtun um 8,2%. Jákvæð afkoma var af öllum flokkum verðbréfa þó mest í erlendum framtaks- og hlutabréfasjóðum og það þrátt fyrir umtalsverða styrkingu íslensku krónunnar.
Meðaltal hreinnar raunávöxtunar síðustu 5 ára er 4,84% og síðustu 10 ára 2,3%, þar vega hrunárið og árin á eftir þungt.
Hrein eign sjóðsins til greiðslu lífeyris nam alls kr. 49.400.000.000 eða 49,4 milljörðum í árslok. Á árinu hækkaði eignin um rúmar kr. 3.600.000.000 eða 3,6 milljarða sem gerir 8% hækkun.
Af fjárfestingum sjóðsins voru 63% í íslenskum krónum og 37% í erlendum gjaldmiðlum. Gengi íslensku krónunnar styrktist árið 2017 um 0,73% gagnvart erlendum gjaldmiðlum en um 7,45% gagnvart bandarískum dollar og hafa erlendar eignir reynst sjóðnum hvað best til lengri tíma litið.
Sem betur fer eru ævilíkur þjóðarinnar að aukast og heilsufar almennt að batna, sem er mjög jákvæð þróun. Á móti kemur krefjandi verkefni að tryggja viðunandi lífsafkomu fólks á efri árum þar sem fólk lifir lengur en heildarlífeyrisréttur eykst ekki að sama skapi að óbreyttu.
Lífeyrissjóður Vestmanneyja, stjórn hans og starfsfólk horfir til þessa krefjandi verkefnis í framtíðinni, bæði hækkun á lífeyrisaldri sem og hækkunar iðgjalda. Góður árangur er aldrei sjálfgefinn og á sér ekki stað nema fyrir góða frammistöðu stjórnenda og starfsmanna.
�?rátt fyrir að Lífeyrissjóðurinn sé í hópi minni lífeyrissjóða á Íslandi þá stendur hann framar flestum öðrum sjóðum í lágri hlutdeild rekstrarkostnaðar og það sem athyglisvert er, að sjóðurinn var með bestu ávöxtun allra lífeyrissjóða á Íslandi á síðasta ári.
Arnar Hjaltalín
Formaður stjórnar Lífeyrissjóðs Vestmannaeyja 2017 -2018
Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
6. tbl. 2025
6. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.