Biðröð út á bryggju
Gríðarlegur áhugi er fyrir leik Hauka og ÍBV í Hafnarfirði í kvöld. Eyjamenn hyggjast fjölmenna á leikinn og sameinast þar brottfluttum og styðja við sitt lið. Í morgun var opnað fyrir forsölu miða í hópferð á vegum ÍBV-íþróttafélags í afgreiðslu Herjólfs. Strax var komin röð langt út á bryggju eins og sést á meðfylgjandi mynd sem Arnar Pétursson, þjálfari ÍBV setti inn á facebook síðu sína. Einhver fyrirtæki í Eyjum hafa gefið sínum starfsmönnum frí til að fara á leikinn og Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum hnikaði til prófum á morgun, föstudag. Til að hita upp fyrir kvöldið, setjum við inn myndbandið frá því í lok leiks í síðustu viðureign liðanna. �?ar var stemmning sem varla verður toppuð. Eða hvað?

Nýjustu fréttir

Gular veðurviðvaranir fyrir Suðurland og Faxaflóa
Þekkirðu leikarana? – Saga Leikfélags Vestmannaeyja lifnar við
Vinnslustöðin komin með um 11.000 tonn af síld
Um 70% foreldra sögðust finna mun
Omar Sowe yfirgefur ÍBV
Jólagleði í skókassa til Úkraínu
Helgi Rúnar hefur fylgst með Kveikjum neistann frá upphafi
Hafsteinn Þórólfsson syngur eyjaperlur í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.