Bifreið hafnaði á járngirðingu við Kirkjuveg
Umf 20260209 145749
Bifreiðin hafnaði á járngirðingu við Kirkjuveg fyrr í dag og skemmdist mikið. Engin slys urðu á fólki. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Töluvert tjón varð á bifreið þegar hún hafnaði á járngirðingu við Kirkjuveg fyrr í dag. Bílnum var ekið vestur götuna þegar ökumaður missti stjórn með þeim afleiðingum að hann fór út af akbrautinni og endaði á girðingunni.

Að sögn Stefáns Jónssonar, yfirlögregluþjóns hjá Lögreglunni í Vestmannaeyjum, urðu engin slys á fólki, en bifreiðin er mikið skemmd og óökufær eftir áreksturinn. Verið var að vinna að því að fjarlægja bílinn af vettvangi og kanna tildrög óhappsins.

Járngirðingin sem bifreiðin hafnaði á er ætlað að hindra að gangandi vegfarendur gangi beint út á Kirkjuveg og þar með auka umferðaröryggi á svæðinu. Ekki liggja fyrir frekari upplýsingar um orsök óhappsins að svo stöddu.

Nýjustu fréttir

Framkvæmdir hafnar í Miðgerði
Landa fyrir austan
Allison Clark tryggði ÍBV jafntefli með marki í blálokin
Staða mála hjá Herjólfi
Embla Harðardóttir sleit krossband gegn FH
Rannsóknarhola Eyjaganga komin á beinu brautina á ný
Herjólfur með sjö ferðir til Landeyjahafnar í dag
Geta Eyjastúlkur haldið pressunni á Breiðablik?
viðburðir
Sa Portret 02022026 1
27. maí 2026
08:30
Hringferð SA í Akóges-salnum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.