Birgir �?órarinsson: Til Eyjamanna
Við búum í lýðræðisríki, kjósendur hafa sem betur fer völd. Kjósendur geta ákveðið hverjir fara á þing og hverjir ekki. Margir frambjóðendur telja sig geta unnið landi og þjóð gagn og vilja verða þingmenn og aðrir vilja halda áfram að vera þingmenn. Sumir ná takmarkinu en aðrir ekki. Kjósendur geta líka, sem betur fer, tekið nokkuð upplýsta ákvörðun áður en þeir setja kjörseðilinn í kassann. Viljum við hafa fólk í vinnu sem á erfitt með að taka ákvarðanir eða taka af skarið? Viljum við hafa fólk í vinnu sem fer í skóla þegar það er kosið til þess að sinna þingstörfum? Viljum við hafa fólk í vinnu sem segir eitt en gerir annað?
Sjósamgöngur til Eyja
Dæmalaus vandræðagangur þingmanna Suðurkjördæmis er varðar sjósamgöngur til Eyja er vægast sagt sorglegur. Greiðar samgöngur til og frá Eyjum eru ekki einkamál Eyjamanna. Greiðar samgöngur til Eyja eru hagsmunamál allra landsmanna til að landið allt virki sem ein heild. Kröfurnar sem Vestmannaeyjabær setur fram í dag fyrir hönd íbúa sinna sem sínar ítrustu kröfur í viðræðum sínum við kerfið og biðja þingmenn Suðurkjördæmis að aðstoða sig við eru þær helstar að heimamenn vilja tryggja reglulegar siglingar til og frá landi og að sá rekstur standi undir sér.
Er þessi ósk sem heimamenn kalla ítrustu kröfur, freklegar? Er krafan um greiðar sjósamgöngur á milli lands og Eyja, frekleg? Er óskin um að það verði siglt alla daga ársins, frekleg? Er óskin um að sömu fargjöld gildi, hvort sem siglt er að og frá �?orlákshöfn eða Landeyjahöfn, frekleg? Hvað finnst þér?
Okkur í Miðflokknum finnst þessar kröfur á engan hátt vera freklegar. �??Ítrasta krafan�?? er einfaldlega sjálfsögð.
Hvernig væri nú að kerfið og þingmenn Suðurkjördæmis settust niður með Eyjamönnum og færu ekki frá borði fyrr en besta lausnin í dag og til framtíðar er fundin og þeim síðan fylgt eftir af krafti þ.e. með framkvæmdum.
Upplýst hefur verið að nokkrir undirbúningsfundir hafi verið haldnir vegna þessa verkefnis nú rúmlega sjö árum eftir að Landeyjarhöfn var tekin í notkun. Sjö ára vandræðagangur og svo ekkert gefið upp um það hvað verið er að ræða eða hvort það sé verið að vinna að einhverri rökréttri lausn.
Miðflokkurinn telur að besta lausin í dag sé sú að Vestmannaeyjabær taki yfir rekstur ferjusiglinga á milli lands og Eyja. Eyjamenn sjái um rekstur nýju ferjunnar og að Herjólfur verði ávallt til staðar er á þarf að halda. Miðflokkurinn telur síðan að vinna þurfi af krafti að framtíðarlausn svo að samgöngur til Eyja séu minna háðar veðurguðum.
Miðflokkurinn er afl sem þorir.
Miðflokkurinn er nýtt stjórnmálaafl sem byggt er á traustum grunni. Við erum komin í stjórnmál til þess að framkvæma og erum ekki ákvarðanafælin. Við ætlum að láta lýðræðið virka á Íslandi. Við látum ekki kerfið segja okkur fyrir verkum né telja okkur trú um að engu sé hægt að breyta. Við ætlum að breyta fjármálakerfinu, lækka vexti, afnema verðtrygginguna, leiðrétta kjör eldri borgara, byggja nýjan Landspítala og bæta samgöngur. Allt kostar þetta peninga en við höfum raunhæfar tillögur um hvaðan peningarnir eiga að koma. �?eir munu koma úr endurskipulagningu fjármálakerfisins. Við munum ekki hækka skatta. Við ætlum að bæta lífskjörin á Íslandi og bæta búsetuskilyrðin í Suðurkjördæmi. Við óskum eftir þínum stuðningi á laugardaginn kæri kjósandi, svo við getum hafist handa.
X-M

Nýjustu fréttir

Matthías Harðarson með tónleika í Hallgrímskirkju
Tæplega níræður Eyjamaður með 13 rétta
Samið við Jan De Nul um dýpkun Landeyjahafnar
Gul viðvörun: Suðaustan hríð
Drífum í þessu svo við þurfum ekki að borga!
Stór viðbygging við Íþróttamiðstöðina í útboð
Páskafundur í safnaðarheimili Landakirkju
ÍBV semur við leikmann frá Portúgal
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.