Bjarki Björn semur við ÍBV
bjarki-bjorn_ibvsp_24
Bjarki Björn Gunnarsson í leik með ÍBV. Ljósmynd/ibvsport.is

Knattspyrnumaðurinn Bjarki Björn Gunnarsson hefur fengið félagaskipti í ÍBV. Þetta kemur fram í tilkynnigu frá ÍBV. Bjarki – sem hefur verið á láni hjá félaginu síðustu tvö ár – lék 14 leiki fyrir ÍBV í deildinni á árinu og skoraði í þeim 5 mörk en tvö þeirra voru meðal fallegustu marka deildarinnar.

Bjarki er uppalinn hjá Víkingi Reykjavík og skiptir til ÍBV þaðan en hann hefur leikið á láni síðustu fimm tímabil, fyrst hjá Haukum, síðan Þrótti Vogum, síðan Kórdrengjum og síðustu tvö ár hjá ÍBV, bæði í Bestu deildinni og Lengjudeildinni. Bjarki er ekki bara frábær leikmaður heldur einnig frábær liðsfélagi og hefur hann á tíma sínum hjá félaginu verið góður liðsstyrkur innan sem utan vallar.

Það eru frábærar fréttir að Bjarki velji að taka sín næstu skref á knattspyrnuferlinum hjá ÍBV og skrifaði hann undir þriggja ára samning á dögunum. Knattspyrnuráð hlakkar til áframhaldandi samstarfs við Bjarka og býður hann velkominn til ÍBV á ný, segir í tilkynningunni.

Nýjustu fréttir

Tap hjá ÍBV gegn Stjörnunni
Hoppukastalar, pylsur og Arsenal-stemning í Höllinni
Hjónin Rósa og Ágúst deila áhuga á handverki
Eyjakonur sækja Stjörnuna heim í mikilvægum leik
45 nemendur útskrifuðust frá FÍV
Eldri hjón deila 336 milljónum með börnum og barnabörnum
Hipsumhaps á Þjóðhátíð
Stuttir túrar skiluðu góðum afla
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.