Björgvin E. Björgvinsson á Goslokalagið 2018
Goslokanefnd og Bandalag vestmanneyskra söngva- og tónskálda hafa valið goslokalagið 2018. Sameiginleg nefnd Goslokanefndar og BEST valdi úr 15 innsendum lögum og úr varð að lagið Aftur heima eftir Björgvin E. Björgvinsson var valið.
Björgvin bjó í Vestmannaeyjum frá 1966 til 1980 og spilaði meðal annars í hljómsveitinni Brak sem gerði garðinn frægan hér áður með þeim Kalla Björns, Ingimar í Vöruval og fleirum. Björgvin starfar sem áfangastjóri við Fjölbrautarskóla Suðurlands, er íslenskufræðingur að mennt og hefur þýtt rúmlega 30 barnabækur og samið eina. Einnig má þess geta að Björgvin og Stella Hauks voru systrabörn.
Lagið verður hljóðritað einhvern tíma á næstu dögum og verður frumflutt þegar nær dregur Goslokahátíð.

Nýjustu fréttir

Samfélagsstyrkur Krónunnar styður þjálfun barna í Vestmannaeyjum  
Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4
Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.